Morgunblaðið - 01.12.1981, Qupperneq 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981
Fólk og fréttir í máli og myndum
Ársþing SKÍ:
Ríkið greiðir sömu upphæó til
allrar starfsemi ÍSÍ og skíða-
iðkendur greiða í toll af skíðavörum
FYRIR skömmu var haldid haust-
þing Skídasambands íslands. Aðal-
mál þingsins var vetrarstarfið sem
nú er ad hefjast. Ákveðin var niður
röðun móta vetrarins og verður
Skíðamót íslands haldið í Reykjavík
dagana 7.—11. apríl en Unglinga-
meistaramót íslands á ísafirði helg-
ina 20.—21. mars. Kinnig var skýrt
frá áa tlun um undirbúning æfinga-
liðs SKÍ. Liðið er nú að undirbúa
hálfsmánaðar æfingaferð til Noregs
í byrjun desember. Lagt var fram
fræðsluskipulag SKÍ sem byggist að-
allega upp á A-, B-, C- og D-nám-
skeiðum fyrir þjálfara og má nefna
að í febrúar verður B-námskeið fyrir
þjálfara í alpagreinum á ísafirði og
A námskeið verða víða um land.
Einnig verður fræðsla fyrir skíða-
kennara og mótshaldara. Á þinginu
var dreift fréttabréfi frá trimmnefnd
og kemur þar fram aðSKl er fyrsta
sérsambandið innan ÍSÍ sem hefur
tekið trimm inn í sína starfsemi.
Gefin eru út sérstök trimmmerki
fyrir almenning sem eru viðurkenn-
ing fyrir þátttöku í trimmmótum
SKÍ. Ætlunin er að halda trimmmót
sem víðast um landið. Geta má þess
að nú er í athugun að halda almenn-
ingstrimmgöngu í vetur með þátt-
töku erlendra skíðamanna.
Þá kom fram á þinginu að fjár-
hagur sambandsins er mjög bág-
borinn um þessar mundir. Til að
reyna að bæta úr því ástandi er
SKI að fara inn á nýjar brautir
með fjáröflun. Haldin verður
vörusýning 22.-24. janúar nk.
Hún ber heitið Útivera og íþróttir
og verður þar kynnt allt það nýj-
asta sem á boðstólum er í dag af
skíðavörum, auk margs annars.
Einnig hefur SKÍ ákveðið komu
svonefnds „Volvo-Team“ en það
eru fjölleikamenn á skíðum og
munu þeir sýna hvað í þeim býr
3.-4. apríl í vor. Tollamál voru
nokkuð til umræðu. Þar kom fram
að tollar þeir, sem skíðaiðkendur
greiða til ríkisins, eru sömu upp-
hæðar og ríkið greiðir til allrar
starfsemi ÍSÍ. Dæmi um óréttláta
tolla er að skíðaskór eru í 25%
tolli en aðrir skór í aðeins 6%
tolli.
Ætla má að u.þ.b. 18% tollur sé
tekinn af skíðum, skóm og bind-
ingum. Á þessum málum er þörf
mikilla breytinga. Lækka þarf
tollana svo að skíðaiðkendur sitji
við sama borð og aðrir og að það
megi verða til þess að auka iðkun
almennings enn meir á þessari
hollu og skemmtilegu íþrótt.
Skíðasambandið er nú annað
stærsta sérsambandið innan ÍSÍ
með um 12.000 iðkendur.
Stjorn SKÍ er skipuð sem hér
segir:
Hreggviður Jónsson, formaður,
Trausti Ríkharðsson, varaformað-
ur, Sveinn Guðmundsson, gjald-
keri, Skarphéðinn Guðmundsson,
ritari, Haukur Viktorsson, Guð-
mundur Ólafsson, Ingvar Einars-
son og Árni Jónsson og þjálfari er
Karl Frímannsson.
Knattspyrnupunktar
Ýmislegt þykir nú benda til þess,
að hollenski landsjiðsmaðurinn
sterki, Rud Krol, gangi til liðs við
spænska stórliðið Barcelona næsta
keppnistímabil, en Krol leikur með
ítalska félaginu Napólí um þessar
mundir. Viðræður hafa farið fram
milli félaganna og Krol hefur sjálfur
lýst yfir áhuga sínum á þessum nýja
ráðahag.
— O —
Meira frá Argentínu. Þrír af
HM-leikmönnum Argentínu frá
1978 hafa verið dæmdir í 7 daga
fangelsi í heimalandi sínu, fyrir að
efna til áfloga á götum úti í Buenos
Aires. Hér er um llbaldo Fillol,
Daniel Passarella og Alberto Tar
antini að ræða.
Teitur Þórðarson og Karl Þórðar
son, íslensku leikmennirnir í
frönsku deildarkeppninni í knatt-
spyrnu, voru sigursælir í síðustu um-
ferðinni sem fram fór í vikunni.
Teitur og félagar hjá Lens unnu
langþráðan og dýrmætan sigur gegn
IJIIe, Laval, með Kalla Þórðar í far
arbroddi, sigraði hins vegar Monako
2—1 á útivelli. Laval er enn í hópi
efstu liða, Lens lyfti sér hins vegar
úr fallsæti, þó staðan sé enn Ijót.
— O —
Þegar argentínska knattspymu-
stórveldið Boca Juniors festi kaup á
snillingnum Maradonna frá Argen-
tinos Juniors skuldbatt liðið sig til
að greiða 30.000 Bandaríkjadali á
mánuði. Það þótti gríðarleg upphæð
á sínum tíma, en síðan hefur verð-
bólgan í landinu leikið upphæðina
svo grátt, að Boca er hreinlega að
fara á höfuðið undan skuldbinding-
unni. Maradonna hefur slík árslaun,
að félagið ræður varla við það vegna
þess að aðrir leikmenn líða fyrir
það, fá ekki laun sín og þvíumlíkt.
Hitt stórveldið í Argentfnu, River
Plate, er einnig í peningaklípu. Eftir
að hafa fest kaup á Mario Kempes
frá spænska liðinu Valencia, á liðið
nú varla fyrir mánaðargreiðslum ...
— O —
Og enn meira frá Argentínu. Snill-
ingurinn Diego Maradonna var á
sínum tíma yngsti landsliðsmaður í
knattspyrnu sein um getur. Þegar
strákur lék sinn fyrsta landsleik var
hann 16 ára, 8 mánaða og 16 daga
gamall. Snillingurinn Pelé var 16
ára, 8 mánaða og 16 daga gamall
þegar hann lék sinn fyrsta landsleik
fyrir Brasilíu ...
• Keppnistímabil skíðafólks er að
hefjast. Margir eru kallaðir en fáir
útvaldir til að standa uppi sem stór
stjörnur keppnistímabilsins. Einn
sem þykir líklegur til að veita hinum
ókrýnda skíðakóng Ingemar Sten-
mark mikla keppni í vetur, er And-
reas Wenzel frá smáríkinu Licht-
enstein. Wenzel er aðeins 21 árs og
þykir gæddur miklum hæfileikum
sem skíðamaður. Og eins og sjá má
á myndinni er stíllinn á kappanum
góður, og keppnisskapið skín út úr
andlitinu.
• Það væri synd að segja að lög-
reglan í Hamborg héldi ekki vel
saman. Hér má sjá hvar hópur
þeirra horfir á vináttuleik í knatt-
spyrnu milli Hamborg S.V. og lands-
liðs Sovétríkjanna á Volkspark-vell-
inum í Hamborg. Áhorfendur voru
aðeins 10 þúsund og því vakti hópur
lögrcglunnar á hálf tómum vellinum
athygli á pöllunum. En leikvangur
inn tekur 50 þúsund manns í sæti.
í>
• Keppni í torfæruakstri á mótorhjólum er alltaf að verða vinsælli. Keppni
sú er ekki með öllu hættulaus. Keppendur fara oft flugferðir á hjólum sínum
eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
• Lið Ipswich er meðal efstu liða f 1. deild í Englandi um þessar mundir.
Áður en keppnistímabilið hófst að þessu sinni fjárfesti félagið í mjög glæsi-
legum langferðabíl. En löng ferðalög eru á dagskrá um aðra hverja helgi hjá
leikmönnum liðsins. Og til þess að leikmönnum líði sem best á ferðalögun-
um var lögð mikið áhersla á að hafa í bflnum ýmis þægindi. Eins og sjónvarp,
myndband, eldhús þar sem hægt er að fá sér snarl, 2 salerni, rúm til að
lcggja sig í o.fl. Að sjálfsögðu er bfllinn vel merktur liðinu í bak og fyrir eins
og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Hagnaður dönsku getraunanna
FYRIR nokkru komu út ársreikningar dönsku getraunanna fyrir tímabilið
1980—1981 og nam heildarveltan D.kr. 859,7 millj. og hagnaður alls kr.
192,8 millj. Af þeirri upphæð komu kr. 60,2 millj. í hlut danska íþróttasam-
bandsins, 56,1 millj. til dönsku ungmennafélaganna, 2,7 millj. til danska
knattspyrnusambandsins og einnig 2,7 millj. kr. til dönsku ólympíunefndar
innar. Hagnaður danska fþróttasambandsins er 100-faldur á við hagnað ÍSÍ
af getraunum á sama tíma, en Danir eru 25 sinnum fleiri en íslendingar.