Morgunblaðið - 01.12.1981, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981
27
v/
„Leggjum ekki höfuðáherslu
á að fá sem stærsta vöðva“
- segir Andreas Cahling
UM SÍÐUSTU helgi fór fram í fyrsta
sinn á íslandi líkamsræktarsýning.
Þar sýndu bædi karlar og konur og
tókst sýningin með ágætum. Gestur
sýningarinnar var Svíinn Andreas
('ahling, og vakti hann mikla athygli.
Andreas Cahling varð sigurvegari
í kcppninni Mr. International árið
1980, og þykir hafa sýnt miklar
framfarir í vaxtarrækt á skömmum
tíma. Mbl. hitti Cahling að máli og
innti hann eftir því hvenær hann
hefði hafið æfingar og af hverju.
— Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á íþróttum og líkamsrækt,
æfði bæði grísk-rómverska glímu
og ýudó sem strákur og varð
sænskur meistari í judó 18 ára
gamall. Til að standa mig vel í
þessum greinum varð ég að æfa
lyftingar. Og við það fór ég að
hafa áhuga á vaxtarrækt. Ég fór
að æfa af krafti. Ég flutti síðan
frá Svíþjóð til Los Angeles í
Bandaríkjunum gagngert til þess
að æfa þar sem aðstaðan er best.
Sex árum síðar tókst mér að vinna
hinn mjög svo eftirsótta titil
„Herra alheimur". Það var stór
stund fyrir mig.
— Ég æfi að meðaltali sex daga
vikunnar. Hver æfing stendur yfir
í 45 til 60 mínútur í senn. En ég
æfi ekki aðeins lyftingar. Ég hleyp
líka mikið og hjóla. Maður verður
að þjálfa hjartað og lungun líka.
Ég vil vera í góðri alhliða þjálfun.
— Það eru margir sem halda að
við leggjum aðaláhersluna á að fá
sem stærsta vöðva í líkamsrækt.
En það er ekki rétt. Við leggjum
áherslu á að fá fallega og vel skap-
aða vöðva.
En til að ná árangri verður að
leggja mikla áherslu á heilsusam-
legt líferni. Vera reglusamur, fara
snemma að sofa og fyrst og fremst
að gæta vel að því að neyta réttra
fæðutegunda. Mataræði er mjög
mikilvægt í vaxtarrækt. Borða
náttúrulega fæðu. Þá er það stórt
atriði að gefast aldrei upp. Æfa
með mikilli einbeitingu. Þeir sem
fara að æfa vaxtarrækt finna
fljótt hversu mikið betur þeim líð-
ur þegar líkaminn fer að styrkj-
ast, sagði Andreas og hnyklaði
vöðvana.
— 1>R.
Anderlecht efst þrátt fyrir tap
BÆÐI PÉTUR Pétursson og Arnór Guðjohnsen léku með
félögum sínum í belgísku deildarkeppninni í knattspyrnu um
helgina. Arnór lék að venju allan leikinn og stóð fyrir sínu í
1-1 jafntefli liðsins um helgina. Pétur kom hins vegar inn á
sem varamaður í síðari hálfleik hjá Anderlecht, en allt kom
fyrir ekki, Anderlecht tapaði 1-3. Úrslit leikja í belgísku
deildarkeppninni urðu þessi:
Mechelen — Standard
FC Liege — Lierse
Molenbeeck — Kortrijk
Ghent — Lokeren
Beveren — Tongeren
Waregem — Anderlecht
Antwerp — Waterschei
FC Brugge — Beringen
3-1
3-1
0-2
1-1
3-1
3-1
3-0
2-0
HM í blaki:
Sovétmenn urðu
heimsmeistarar
SOVÉTMENN urðu heimsmeistarar
í blaki um helgina, en þá lauk í
Tokyo í Japan 8-landa lokakeppni
HM. Sovétmcnn höfðu mikla yfir-
burði á mótinu, unnu alla leiki sína
16—14 og 15—11. Kúbumenn áttu
yfirleitt í meiri brösum með mót-
herja sína en Rússar, þannig töpuðu
þeir alls 9 hrinum.
og töpuðu aðcins tveimur hrinum. Lokastaðan varð sem hér segir:
Kúbumenn töpuðu aðeins fyrir Sovétríkin 7 70 21- 2 14
Rússunum og það var því ekki fyrr Kúba 7 61 18- 9 12
en í síðasta leiknum, að þeir tryggðu Brasilía 7 52 16-11 10
sér gullið. Rússar mættu þá Japön- Pólland 7 43 14-13 8
um og sigruðu örugglega 3—0, Kína 7 34 12-14 6
15—5, 15—11 og 15—11. Japan 7 25 12-15 4
Kúbumenn sigruðu Brasilíu 3—1 í Italía 7 1 6 9-18 2
síðasta leik sínum, 5—15, 15—11, Túnis 7 07 1-21 0
Bjarni stóð sig best
BJARNI Friðriksson náði bestum
árangri íslensku keppendanna á
opna skandinavíska meistaramótinu
í judo sem háð var í Gautaborg um
helgina. Bjarni keppti í - 95 kg
flokki og vann alla keppinautana í
sínum riðli á ippon (10 stig). f úr
slitakeppninni nægði þolið honum
ekki lengra en í keppnina um þriðja
sætið, en þcirri viðureign tapaði
hann. Eigi að síður góður árangur
hjá Bjarna.
Þeir Omar Sigurðsson (- 78 kg),
Kolbeinn Gíslason (+ 95 kg) og
Sigurbjörn Sigurðsson (-71 kg)
unnu eins viðureign hver í sínum
riðli.
A mótinu var óvenjusterkt sam-
ansafn judomanna frá fjölmörg-
um löndum. M.a. sendu Austur-
Þjóðverjar marga af sínum sterk-
ustu mönnum og fór svo að þeir
unnu sigur í fjórum þyngdarflokk-
um af sjö. Pólverjar unnu í tveim-
ur og ítalir í þeim léttasta. Norð-
urlandabúar unnu því engan
meistaratitil að þessu sinni.
Elnkunnagiöfln
LIÐ IR:
Benedikt Ingþórsson 5
Jón Jörundsson 6
Kristinn Jörundsson 5
Hjörtur Oddsson 4
Ragnar Torfason 4
Óskar Baldursson 5
Helgi Magnússon 4
LIÐ FRAM:
Símon Ólafsson 8
Þorvaldur Geirsson 5
Guðsteinn Ingimarsson 7
Björn Magnússon 6
Björn Jónsson 5
Ómar Þráinsson 5
Þorkell Sigurðsson 4
Þórir Einarsson 6
Hörður Arnarsson 4
Örn Eiösson endurkjörinn
ÖRN Eiðsson var endurkjörinn
formaður Frjálsíþróttasambandsins
á ársþingi sambandsins á Selfossi á
laugardag og verður næsta starfsár
því 14. árið sem hann veitir sam-
bandinu forstöðu.
Þingið á Selfossi var mjög anna-
samt, mörg mál þar tekin fyrir, og
fram kom að frjálsíþróttamenn
munu hafa í mörgu að snúast á
næsta ári.
Þá telst það til tíðinda, að af-
gangur varð á rekstri sambands-
ins á síðastliðnu starfsári, rúmar
29 þúsund krónur, og munaði þar
mest um að íslendingar hættu við
• Gæfan brosir ekki við hinum 32
ára gamla Leopoldo Luque, miðherja
argentínska landsliðsins í knatt-
spyrnu sem varð heimsmeistari í síð-
ustu HM-keppni. Hann hefur ekki
verið fastamaður í landsliðinu síð-
ustu misseri og ofan á allt saman
hefur hann verið seldur til Mexíkó.
Hann hefur þó ekki gefið upp alla
von og hefur lýst því yfir að hann
hyggist skora svo mikið í s
mexíkönsku deildinni, að Cesar
Luis Menotti, landsliðseinvaldui
Argentínu, geti ekki annað en
valið sig í liðið fyrir loka
keppnina á Spáni
næsta sumar.
þátttöku í Kalott-keppninni á síð-
ustu stundu sökum gífurlegs
kostnaðar sem þátttakan hefði
haft í för með sér.
í stjórn Frjálsíþróttasambands-
ins fyrir næsta starfsár voru
kosnir auk Arnars, þeir Sigurður
Björnsson, Sveinn Sigmundsson,
Finnbjörn Þorvaldsson og Magnús
Jakobsson. I varastjórn voru kosn-
ir þeir Agúst Asgeirsson, sem
verður formaður tækninefndar,
Kristinn Sigurjónsson og Hreinn
Erlendsson. Formaður laganefnd-
ar var kjörinn Sigfús Jónsson og
formaður útbreiðslunefndar Sig-
urður Helgason. Þá var Þór
Jakobsson kjörinn formaður víða-
vangshlaupanefndar.
Þrátt fyrir tapið er Anderlecht í
efsta sætinu, liðið hefur 21 stig,
eða jafn mörg stig og Ghent, sem
leitt hefur hjörðina síðustu vik-
una. Kortrijk, Antwerp og Lierse
hafa öll hlotið 20 stig, síðan kemur
Standard með 19 stig.
Knatlspyrna ]
Úrslitaleikurinn í Evrópukeppni
mcistaraliða fer fram í Rotterdam, á
leikvelli Feyenoord, 26. maí næst-
Jón sigraði í
f jölmennu hlaupi
Krá Stcindóri Tryggvasyni í Köln:
JON Diðriksson frjálsíþróttamaður
úr UMSB tók þátt í 10 kílómetra
götuhlaupi í bænum Portz við Köln
og sigraði góða hlaupara með mikl-
um yfirburðum.
Hljóp Jón á 31:39 mínútum, en
næstur var góður þýzkur lang-
hlaupari, Wasser, á 31:55 mín., og
þriðji varð skólabróðir Jóns,
Manfred Nellesen, á 32:12 mínút-
um, en þess má geta að Nellesen
hefur verið í landsliði Vestur-
Þýzkalands í 1500 metra hlaupi í
mörg ár og hljóp þá vegalengd á
3:38 mínútum í sumar.
Hlaupið var mjög fjölmennt.
hátt á annað hundrað keppendui
tóku þátt. Eftir þrjá kílómetra tók
Jón forystu í hlaupinu, en þeir
Wasser og Nellesen fylgdu honum
fast eftir. Þegar hlaupið var
hálfnað hristi Jón þá af sér, náði
góðu forskoti og hélt því til loka
hlaupsins.
Jóni hefur gengið mjög vel við
æfingar nú í haust, er t.d. nýkom-
inn úr æfingabúðum í Hollandi
þar sem hann hljóp 160 kílómetra
á viku. Jón áformar að taka þátt í
alþjóðlegu hlaupi í Frankfurt í
byrjun desember.
komandi. Úrslitaleikurinn í Evrópu-
keppni bikarhafa fer hins vegar
fram í Nou Camp, leikvelli Barce-
lona á Spáni, þann 12. maí. Úrslita-
leikirnir í UEFA-bikarkeppninni eru
hins vegar tveir, úrslitaliðin leika
hcima og heiman.
Jón sigraði góða hlaupara í fjöl-
mennu hlaupi.