Morgunblaðið - 01.12.1981, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981 3 3
Ríkið kaupir ekki hús Odda fyrir langlegudeild
LJÓST er orðið að ríkissjóður mun
ekki Testa kaup á húsnæði prentsmiðj-
unnar Odda við Bræðraborgarstíg í
Reykjavík, en hugmynd kom fram í
sumar að Landakotsspítali tæki þar
að sér rekstur sjúkradeildar fyrir
langlegusjúklinga. Á fjárlögum næsta
árs hefur ekki verið veitt fé til kaup-
anna og munu eigendur hússins hafa
ákveðið að selja það öðrum.
Ólafur Örn Arnarson yfirlæknir
Landakotsspítala tjáði Mbl. að með
því að kaupa umrætt húsnæði og
hefja þar rekstur 30 sjúkrarúma
langlegudeildar hefði verið bætt úr
brýnum vanda og létt miklu álagi af
Landakotsspítala, en þar eru um
þessar mundir 30 langlegusjúkl-
ingar. Sagði Ólafur að jafnvel þótt
þetta væri ekki besta lausnin hefði
hún verið fljótvirkust og bætt úr
brýnum vanda. Hugmyndin var sú
að fá ríkissjóð til að fjármagna
kaupin og að húsnæðið yrði síðan
afhent sjálfseignarstofnuninni
Landakoti og læknar og annað
starfslið spítalans myndi sjá um
reksturinn.
Kaupverðið sagði Ólafur örn
hafa verið 4 millj. króna, greitt á
fjórum árum, en auk þess hefði ver-
ið gert ráð fyrir annarri eins upp-
hæð til endurbóta á húsinu. Þá
sagði yfirlæknirinn, að Landakot
væri einna verst sett af spítölum í
Reykjavík varðandi rými fyrir
langlegusjúklinga. Borgarspítali
hefði langlegudeild í Heilsuvernd-
arstöðinni og Hafnarbúðum og
Landspítalinn í Hátúni. Væri því
brýnt að finna aðra lausn á þessum
vanda er sneri að Landakotsspitala.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
~yyvv"-v7y,v' ryy
tilkynningar•
á JLx.
Afmælissjóður
Jóhönnu Egilsdóttur
Vegna fjölda fyrirspurna og
askorana hefur veriö ákveöið aö
framlengja þann tíma sem tekiö
veröur viö stofnframlögum i
nokkra daga eöa fram á föstu-
dag, 4. desember. Tekiö veröur
viö framlögum á skrifstofum Al-
þyöuflokksins, AlþýðuhúSinu,
Hverfisgötu 8—10, simi 29244,
kl. 9—5 daglega.
Löggiltur skjalaþyöandi
231 Latymer Court, LONDON
W6 7LB sími 01-748-4497.
Víxlar og skuldabréf
í umboðssölu. Fyrirgreiöslu-
skrifstofan, Vesturgötu 17, sími
16223 Þorleifur Guömundsson,
heima 12469.
□ Edda 598112V,
IOOF Rb. 4 = 1311218Vr EK-91
□ HAMAR 59811217 — 1
Félagið Anglia byrjar ensku-
kennslu (talæfingar) eftir ára-
mót. Kennt veröur aö Aragötu
14
Innritun fer fram aö Amt-
mannsstig 2, mióvikudaginn 2.
og fimmtudaginn 3. desember,
frá kl. 4—7, Simi 12371.
Stjórn Anglia.
Aöventufundur í kvöld kl. 20.30
aö Amtmannsstíg 2b í umsjá
Hólmfriöar Pétursdóttur. Kaffi.
Allar konur velkomnar.
Fíladelfía
Almennur biblíulestur í kvöld kl.
20.30. Ræðumaöur Sam Daníel
Glad.
Hjálpræðisherinn
Fyrsta desemberkvöld í kvöld kl.
20.30. Astrid Hannesson talar.
Allir velkomnir.
ISIEKII AIPAKIUBBDRIIIN
ÍSAIJ' lCfLANOIC AL-PINE CLUB
Opiö hús miövikud. 2. des. kl.
20.30 aö Grensásvegi 5, 2. h.
Sighvatur Blöndal spjallar um
skófatnaö til fjalla Aögangur
ókeypis. Allir velkomnir.
islenski Alpaklubburinn.
Fimir fætur
Dansæfing í Hreyfilshúsinu,
sunnudaginn 13. desember kl.
9.00. Félagsfundur kl. 8.30.
Mætum öll.
Jólafundir Kvenfélags og
bræörafélags Langholtssóknar
veröa í safnaöarheimilinu,
þriöjudaginn 1. des kl. 8.30. Efni
helgaö nálægö jóla, veitingar,
heitt súkkulaöi og smákökur.
Takiö meö lítinn jolapakka.
Stjórnirnar
raðauglýsingar — radauglýsingar — raðauglýsingar
fundir — mannfagnaöir
: ; p;i
tilkynningar
JC Reykjavík
ICR veröur haldinn í kvöld 1. des-
ember aö Hótel Loftleiöum, Víkingasal, og
hefst stundvíslega kl. 20.30.
Meðal dagskráratriöa verða ávarp, Methúsa
lem Þórisson skrifstofustjóri Umbúðamiö-
stöövarinnar flytur jólahugvekju, barnakór
Laugarnesskóla syngur auk þess sem Einar
Logi Einarsson mun leika á orgel fyrir fund.
Félagar og makar: Fjölmennum á jólafundinn
og gerum hann ekki síöri en síðasta fund.
Jólafundur
FJÖLBRAUTASKÚUNN
BREIÐHOLTI
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Enn er hægt aö bæta viö nemendum á
málm- og tréiðnabrautir.
Skólasmiðjan verður opin fyrir væntanlega
nemendur á vorönn og aðstandendur þeirra
laugardaginn 5. des. frá kl. 10—15.
Stjórnin.
Skóiameistari.
Kaupmenn
Viröiö reglur um verðmerkingar og spariö
viöskiptavinum ykkar tíma og fyrirhöfn.
Verðlagsstofnun.
Lögtaksúrskuröur
Samkvæmt beiðni Innheimtudeildar Ríkisút-
varpsins úrskurðast hér með sbr. 20 gr. út-
varpslaga nr. 19 frá 1971 aö lögtök fyrir
ógreiddum afnotagjöldum sjónvarps- og út-
varpstækja vegna seinni hluta ársins 1981
ásamt eldri gjöldum auk álags, dráttarvaxta
og kostnaöar mega fara fram að átta dögum
liðnum frá birtingu úrskurðar þessa.
Sýslumaðurinn í Norður-Múlasýslu,
Bæjarfógetinn á Seyðisfirði
27. nóvember 1981
Sigurður Helgason
Jakob Jónsson:
SKUGGSJÁ
FRÁ SÓLARUPPRÁS TIL
SÓLARLAGS
Bók, sem þú lest í einni lotu!
Þessi bók sameinar á sérstæóan hátt
skemmtun og alvöru. Sá lesandi er
vandfundinn, sem ekki les hana í einni
lotu, ýmist hugsi og veltandi vöngum,
eöa með bros á vör, — jafnvel kunna
sumir að hlæja dátt yfir hinum stór-
fyndnu sögum af samferðamönnum
séra Jakobs. Stutt lýsing hans á atburði
eða smámynd af persónu gefur oft betri
hugmynd um lífsferil en langar lýsingar.
BÓKABÚO OL/VEBS STEIHS SE
Jón Auóuns: TIL HÆRRI HEIMA
Fögur bók og heillandi.
Bókin hefur að geyma 42 hugvekjur, úr-
val úr sunnudagshugvekjum séra Jóns,
sem birtust í Morgunblaðinu. Það voru
ekki allir sammála honum í túlkun hans
á sannindum kristindómsins, en flestir
voru sammála um snilld hans í fram-
setningu sjónarmiða sinna, ritleikni
hans og fagurt mál.
Það er mannbætandi að lesa þessar
fögru hugvekjur og hugleiöa>
þeirra og niðurstöður höfunc
SKUGGSJÁ
BÓKABÚO OUVERS STEINS SE
n?3M