Morgunblaðið - 01.12.1981, Side 38

Morgunblaðið - 01.12.1981, Side 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1981 Lóðbyssur Lóðboltar Málbönd Lufkin Ódýr topp- lyklasett í úrvali Vald Paulsen Suðurlandsbraut 10, sími 86499. Hvað segja þeir um greinargerð Alþýðubandalagsmanna um sjávarútveg? MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við þá Steingrím Hermannsson, sjávarútvegsráðherra, Kristján Ragnarsson, formann LIIl og Árna Benediktsson, framkvæmdastjóra Framleiðni og voru þeir spurðir álits á úrdrætti þeim sem birtist á baksíðu Mbl. sl. sunnudag, en þar segir frá greinargerð fulltrúa Alþýðubandalagsins um sjávarútveg. Þar er fiskveiðistefna Steingríms kölluð „dýravernd“ og lagt er til að rannsóknarsveitir rannsaki rekstur fiskvinnslufyrirtækja. „Stormsveitir sem fara um landið bæta ekki reksturinn“ segir Kristján Ragnarsson formaður LIU vFISKVEIÐAR og fiskvinnsla Islendinga geta borið sig sam- an við sömu atvinnuvegi hvar sem er í heiminum, enda hafa íslendingar náð langt í þessum efnum. Hins vegar verður alltaf um þróun að ræða og menn eru alltaf að bæta, þ.e. eigin rekst- ur. t>að gerist hins vegar ekki með einhverjum stormsveitum, sem fara um landið,“ sagði Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands ísl. útvegs- „EF I>ARF að setja rannsókn- arnefnd á einhvern atvinnu- rekstur, þá myndi það síður vera fiskvinnslan heldur en fjölmargt annað. I>ar að auki þá myndi kannski verða að leita í suma stjórnmálaflokka hér á landi eftir þeim vandræð- um sem íslenzkt atvinnulíf á við að búa og kannski full þörf að skipa rannsóknarnefndir til manna, þegar hann var spurður álits á útdrættinum úr greinar- gerð þeirra Alþýðubandalags- manna. „Að vísu er fiskveiðistefnan dýravernd í þeim skilningi að ganga ekki á stofnana. Það er hins vegar hagræðingaratriði að hafa ekki of mörg skip og það hlýtur að vera hægt að láta þessi atriði ganga saman og það höfum við viljað gera innan LIÚ. Ríkisstjórnin hef- þess að finna út hver þau eru og hvernig á að losna við þau,“ sagði Árni Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Framieiðni hf. þegar hann var spurður álits á útdrætti greinargerðar Alþýðu- bandalagsins um sjávarútveg sem birtist í Morgunblaðinu sl. sunnudag. „Það er alveg augljóst mál að fiskvinnslan er ein sú atvinnu- ur á hinn bóginn ekki látið þessi atriði ganga saman, með því að fjölga alltaf skip- um. Þetta er hagrænt mál, þar sem stofninn þolir ekki svona stóran flota og höfum við lagt á það áherzlu. Um rannsóknarsveitirnar er það að segja, að þetta er ekkert annað en einhvers konar ráðstjórnarfyrirkomu- lag, sem við teljum fráleitt með öllu. Hver og einn hlýtur að vera hæfastur til að stjórna sínu fyrirtæki, en ekki einhver hjálparsveit að- sendra manna,“ sagði Krist- ján Ragnarsson ennfremur. grein, sem erfiðast er að stjórna og þar er margt sem kemur til, sérstaklega hvað það er erfitt að hafa reiður á hvernig afli berst að landi og eins hvað hann berst óhjákvæmilega misjafnt að landi af ýsmum orsökum, það eru árstíðaskipti o.fl. Þetta eru erfiðleikar sem miklu fleiri þjóð- ir en íslendingar þurfa að glíma við og ég held að mér sé óhætt að segja að stjórnun hér á landi og árangur fiskiðnaðarins sé með því bezta í heiminum, enda er fiskvinnslan ein af fáum grein- um íslenzks atvinnulífs sem get- ur keppt við hvaða þjóð sem er,“ sagði Arni ennfremur. „Tek hlutina ekki of bók- staflega þó þeir birtist í blöðum“ segir Steingrímur Hermannsson sjávar- útvegsráðherra „ÉG HEF ekki séð þessa greinar gerð Alþýðubandalagsmanna um ísl. sjávarútveg sem sagt er að leggja hafi átt fram á flokksráðs- fundinum, og ég tek ekki svona hluti alltof bókstaflega þó svo að þeir hafi birst í einhverjum blöð- UID ** ’ sagði Steingrímur Her- mannsson sjávarútvegsráðherra, þegar hann var spurður hvað hann hefði að segja um það sem kemur fram í greinargerð þeirra Ragnars Árnasonar, Þrastar Ólafssonar og Þórðar Vigfússon- ar og leggja átti fram á flokks- ráðsfundi Alþýðubandalagsins, en þar segir að fiskveiðistefna Steingríms beinist jafnvel að dýravernd og ennfremur er lagt til í greinargerðinni, að rann- sóknarsveitir verði skipaðar til að rannsaka rekstur fiskvinnslu- fyrirtækja. „Leita þarf í stjórnmála- flokka til að finna vandræði“ * segir Arni Benediktsson framkvæmdastjóri Vinnudagur í Æfingaskóla KHÍ ÞRJÚ síðastliðin ár hefur foreldrafélag /Efingaskóla Kennaraháskóla íslands gengist fyrir sérstökum vinnudegi, og hafa foreldrar, nemendur og kennarar tekið þátt í vinnudeginum. í gær var vinnudagur foreldrafélagsins og var unnið að lagfæringum á leiktækjum á lóð og húsgögnum í anddyri og var þá margt um manninn. Allt er þetta starf unnið í sjálfboðavinnu og með frjálsum framlögum foreldra og fyrirtækja; þannig gáfu að þessu sinni fyrirtækin Harpa, Slippfélagið, Hampiðjan og Alafoss efni. Jazz á Sögu STÓRHLJÓMSVEITIN „Bigbandið“ heldur jazzleika í Átthagasal Hótel Sögu í kvöld klukkan 21.00. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Björn R. Einarsson. Auk „Bigbands- ins“ munu kvartett Kristjáns Magnússonar, Tradkompaníið og hljómsveit sem kallar sig Kvikyndi koma fram á þessum jazztónleikum. Ungmennafélagið íslendingur 70 ára llvannevri, 30. nóvember. IINGMENNAFÉLAGIÐ íslendingur heldur upp á 70 ára afmæli að Brún í Bæjarsveit, laugardaginn 5. desember nk. Formaður íslendings er Ríkharð Brynjólfsson, Reykholti, og formað- ur hátíðarnefndar er Bjarni Vil- mundarson, Mófellsstöðum. Kréttaritari. Opið hús OPIÐ hús verður hjá Vöku, Félagi lýð- ræðissinnaðra stúdenta, í félagsheim- ili Vöku að Skólavörðustíg 12, f dag klukkan 14-17, í tilefni fullveldis- dagsins 1. desember. Kaffi verður á borðum og munu góðir gestir mæta á staðinn og ræða um þjóðmálin. Gamlir Vökufélagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Uppsagnir blaðamanna: Sjö af Vísi og þrír af Dagblaðinu VIÐ samruna Dagblaðsins og Vísis í „Dagblaðið & Vísi“ var sjö af blaða- mönnum Vísis sagt upp störfum. Þeir eru Kristín Þorsteinsdóttir, Sveinn Guðjónsson, Árni Sigfússon, Sigurjón Valdimarsson, Jakob S. Jónsson, Þráinn Lárusson, Ijós- myndari og Þröstur Haraldsson, út- litsteiknari. Á DB var þremur sagt upp og voru þeir allir í hópi þeirra starfsmanna, sem skemmstan starfsaldur höfðu; Ólafur Frið- riksson, Víðir Sigurðsson og Kristján Örn Elíasson, ljósmynd- ari. Áður en sameining blaðanna kom til, hafði verið ákveðið að fjórir úr hópi eldri blaðamanna hættu, en þau eru Anna Bjarna- son, Atli Steinarsson, Bragi Sig- urðsson og Ásgeir Tómasson. Kjartan Stefánsson, aðstoðar- fréttastjóri Vísis, hafði sagt upp störfum og mun hann hætta á hinu nýja blaði um áramótin. Veggur milli ritstjórna blað- anna hefur verið brotinn niður þannig að þær liggja saman. Á rit- stjórnarskrifstofum DB sem voru, verða fréttaskrif til húsa, bæði innlendar og erlendar fréttir. í húsnæði því sem Vísir hafði verða yfirmenn, ritstjórar og frétta- stjórar og þeir blaðamenn, sem vinna að innblaðsefni og föstum þáttum hins nýja blaðs. Símaskiptiborð blaðanna eru enn tvö og ekki mun enn alveg frágengið á hvern hátt annað starfsfólk en hlaðamenn mun starfa, né heldur hve mörgum starfsmönnum á skrifstofum, auglýsingadeildum, við dreifingu og víðar, verður sagt upp.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.