Morgunblaðið - 24.12.1981, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1981
3
Sveinn Björnsson ráð-
inn skrifstofustjóri
viðskiptaráðuneytisins
SVEINN Björnsson, sem gengt
hefur stöðu verzlunar og við-
skiptafulltrúa við sendiráð ís-
lands í París, hefur verið ráð-
inn skrifstofustjóri viðskipta-
ráðuneytisins frá nk. áramót-
um.
Sveinn Björnsson tekur við
starfi skrifstofustjóra af
Björgvin Guðmundssyni, sem
ráðinn hefur verið fram-
kvæmdastjóri hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur.
Sveinn Björnsson
Færð með
besta móti
Brauð handa hungmðum heimi:
Safnast hafa um 3 millj.
Viðbrögð fólks aldrei jafn skjót og nú
SÖFNUN undir kjörorðinu „Brauð handa hungruðum heimi“ hófst fyrir
rúmri viku. í gær höfðu safnast um 3 milljónir króna. Söfnunaraðilar eru
Hjálparstofnun kirkjunnar, Alþýðusamband íslands og kaþólska kirkjan.
Segja þessir aðilar, að viðbrögð íslendinga hafi oft verið skjót, þegar til
þeirra hefur verið leitað vegna neyðar úti í heimi, en þó sé það samdóma
álit þeirra, sem að söfnuninni standa, að aldrei hafi viðbrögð verið jafn
skjót og nú.
Verulegur hluti þess fjár, sem
safnast hefur, er ætlaður Pólverj-
um að sögn Sigurjóns Heiðarsson-
ar hjá Hjálparstofnun kirkjunnar.
Mikill og vaxandi skortur er nú í
PóIIandi á matvælum, lyfjum og
hreinlætisvörum og verður söfn-
unarfénu varið til kaupa á þessum
vörum, og að svo miklu leyti sem
unnt er innanlands.
Einnig hefur safnast töluvert fé
til áframhaldandi þróunaraðstoð-
ar í S-Súdan og til skólabyggingar
á svæði íslensku kristniboðsstöðv-
arinnar í Kenýa.
Söfnunin hófst með því að
sendir voru gíróseðlar og hjálp-
arbeiðnir inn á flest heimili lands-
manna og einnig til verkalýðsfé-
laga, fyrirtækja og stofnana.
Að sögn söfnunaraðila hafa
verulegar fjárhæðir borist frá
verkalýðsfélögum og fyrirtækjum,
en mest munar þó um framlög al-
mennings. Til viðbótar fjárfram-
lögum hafa mörg íslensk fyrirtæki
gefið til söfnunarinnar af fram-
leiðslu sinni og má nefna að kex-
verksmiðjan Frón hf. hefur gefið
tæp 2 tonn af kexi og Sambands-
verksmiðjurnar á Akureyri hafa
gefið 3500 ullarpeysur. Fatagjafir
hafa einnig borist frá saumastof-
unni Drífu á Hvammstanga og
prjónastofunni Dyngju á Egils-
stöðum.
Enn hefur engin ákvörðun verið
tekin um það hve lengi söfnunin
muni standa. Hlýtur það meðal
annars að fara eftir því hvernig
mál þróast í Póllandi að sögn
söfnunaraðilanna. Ljóst er þó að
söfnunin mun standa fram yfir
áramót, enda sýnt að enn eiga um-
talsverðar fjárhæðir eftir að ber-
ast.
ÞRÁIT fyrir mikinn jafnfallinn snjó
á austanverðu Norðurlandi og á
Norð-austurlandi, má segja að færð á
vegum sé tiltölulega góð á landinu
öllu og ef ekki hvessir verður því
fæ.ð um hátíðarnar með besta móti
miðað við árstíma.
Samkvæmt upplýsingum sem Mbl.
aflaði sér síðdegis í gær hjá Vegaeft-
irlitinu, var þá fært frá Reykjavík og
austur um, allt til Egilsstaða. í gær
morgun var mokað milli Hafnar og
Egilsstaða og verið var að moka bæði
Fjarðarheiði og Oddsskarð.
Færð var þokkaleg í Borgarfirði
og á Snæfellsnesi og um Bröttu-
brekku vestur í Gufudalssveit.
Höfðu vegir á Svínadal og í Gils-
firði verið ruddir. í gær var góð
færð á sunnanverðum Vestfjörð-
um. Fært var frá Patreksfirði um
Kleifaheiði yfir á Barðasrönd og
sömuleiðis til Tálknafjarðar og
Bíldudals. Þá var fært milli Þing-
eyrar og Isafjarðar og vegir ruddir
á Breiðadalsheiði og Botnsheiði.
Frá ísafirði var fært til Bolungar-
víkur og Súðavíkur og fært jeppum
inn í Isafjarðardjúp.
Talið var mjög greiðfært frá
Reykjavík, norður til Skagafjarðar
og einnig til Hólmavíkur. Þá höfðu
verið ruddir vegir til Siglufjarðar
og á Öxnadalsheiði til Akureyrar.
Mokað var frá Akureyri til Ólafs-
fjarðar og fært var um Dalsmynni
til Húsavíkur og þaðan upp í Mý-
vatnssveit. Mokað hafði verið af
veginum um Tjörnes og Melrakka-
sléttu og greiðfært var til Rat .
hafnar. Frá Raufarhöfn var 1
jeppum og stórum ‘'ílum um Há'
Færð var ágæt í Þistilfirð'
Bakkafirði og þaðan fært jepi
til Vopnafjarðar um Sandvík,
heiði. I gær var fært innan sveit
í Vopnafirði.
Það kom fran
vegaeftirlitsmei
snjóruðningstæl.
væru nú upptek
,amtali Mbl. við
í gær að öli
gagerðarinnar
en ekki yrdi
mokað að nýju fyrr en milli jóla r>.»
nýjárs, dagana 28., 29. og 30. des
ember og síðan hæfist snjómokstur
með venjulegum hætti fjórða janú-
ar.
Peninga- og fata-
söfnun Mæðrastyrks
nefndar gengið vel
„Bæði peninga- og fatasöfnun hef r
gengið mjög vel hjá okkur. Borist ha'v
rúmlega 230 beiðnir frá einstaklingv 1
og fjölskyldum, sem við höfum afgr> t
jafnharðan." sagði Guðlaug Kunói; .-
dóttir hjá Mæð.-i styrksnefnd.
„Söfnun Mæðrastyrksnefndar f<>
þannig fram, að við sendum fyri: -
tækjum lista og var hverjum og ein-
um síðan í sjálfsvald sett hvað har.n
legði af mörkum.
Það eiga margir um sárt að bin, t
um þessi jól, sem endranær og goft
að geta létt undir með því fólki, á
einhvern hátt,“ sagði Guðlaug Rui -
ólfsdóttir.
o
INNLENT
Safnast vel
í jólapotta
Hjálpræð-
ishersins
„ÞAÐ hefur safnast vel í jólapott-
ana hjá okkur,“ sagði Daníel
Óskarsson yfirmaður Hjálpræðis-
hersins á íslandi. „Við höfum líka
farið í heimsókn til gamals og
sjúks fólks og gefið því jólastjörnu
og jólakerti, einnig höfum við farið
með matarpakka og peningagjafir
til þeirra, sem þurft hafa á að
halda.
Hjálpræðisherinn fer ávallt
með boðsmiða til Félagsmála-
stofnunarinnar, þannig að ein-
mana fólk og þeir, sem ekki eiga
í önnur hús að venda geti komið
til okkar á aðfangadagskvöld og
fengið sér að borða og eytt jólun-
um hjá okkur. Á jóladag verðum
við með hádegismat og kaffi auk
hátíðahalda, fyrir þá sem vilja,
aðra daga jóla,“ sagði Daníel
Óskarsson.
Leiðrétting
í VIÐTALI við Aðalstein Davíðs-
son um sænsk-íslenzka orðabók
var farið rangt með nafn Bjarn-
fríðar Ingþórsdóttur hjúkrunar-
konu og leiðréttist það hér með.
Biðst Mbl. afsökunar á þessum
mistökum.
FerÖaskrifstofan Útsýn
býður yöur velkomin,
sendir beztu óskir um gleöileg jól,
þakkar vidskipti á liönum árum,
og óskar farsældar og fararheilla
á komandi ári
Ingólfur Guðbrandsson
og starfsfólk
Feróaskrifstofan
OTíÝi'J
í
Reykjavík/Akureyri.