Morgunblaðið - 24.12.1981, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1981
19
kaupsverði raforkunnar, en hins
vegar reiknað með 3% aukningu á
orkusölu.
Egill Skúli Ingibergsson benti á,
að raforkukaup væru nú yfir 50%
af heildarkostnaði, þannig að
Rafmagnsveitan hefði í raun feng-
ið um 23% hækkun á útsöluverði
sínu á sama tíma og verðbólgan
hefði verið talsvert meiri. „Raf-
magnsveitan þarf á næsta ári að
framkvæma dýrar viðbætur við
háspennukerfi sitt jafnframt því
sem dreifikerfið þarf að fylgja eft-
ir útvíkkun byggðar á höfuðborg-
arsvæðinu og staðsetningu nýrra
atvinnufyrirtækja," sagði borgar-
stjóri ennfremur.
Árið 1980;
1.796 fluttu til lands-
ins, 2.339 fluttu úr landi
HINGAÐ til landsins fluttu árið
1980 1.795 manns en af landi
brott fluttust 2.339 manns.
1.414 íslenskir borgarar fluttu
hingað til lands á árinu ’80 en
2.056 íslenskir borgarar fluttu
héðan. Mest af fólki sem flyst
til landsins eru því íslendingar
sem eru að snúa aftur, en að-
eins 382 erlendir borgarar fluttu
hingað til lands árið 1980.
Arið 1979 fluttu hins vegar
1.354 íslenskir borgarar til
.Undsins er brottfluttir voru
þá 1.902. Fólkið sem flutti
héðan brott árið ’80 fór mest
til Norðurlandanna, 708 til
Svíþjóðar, 575 til Danmerkur
og 349 til Noregs. Til Banda-
ríkjanna fluttu 275.
Hingað til lands kom fólk
flest frá Norðurlöndunum. 452
frá Svíþjóð, 468 frá Danmörku
og 227 frá Noregi, 213 fluttu
hingað til lands frá Banda-
ríkjunum árið 1980, en allar
þessar tölur eru mjög svipað-
ar tölum um aðflutning og
brottflutning frá 1979.