Morgunblaðið - 24.12.1981, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 24.12.1981, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1981 25 Alþjóðleg vörusýning f SuðurKóreu haustið 1982: Kóreumenn hyggjast auka innflutning sinn frá íslandi SENDIHERRA SuðurKóreu hr. sem kynnt var alþjóðleg vöru- Suk Shin Choi efndi til fundar á sýning, „SITRA ’82“, sem verð- Hótel Sögu 16. desember þar ur í Seol, höfuðborg Suður Nauðsyn sameigin- legs framhaldsskóla fyrir Vestfirði - segir m.a. í ályktun aðalfundar Kennara- sambands Vestfjarða HAUSTTÞING Kennarasambands Vestfjarða var haldið að Núpi í Dýrafirði dagana 24. og 25. sept. 1981. Þingið sóttu u.þ.b. 60 kennar ar hvaðanæva að af Vestfjörðum og var dagskráin mjög fjölbreytt. Meg- in viðfangsefnið var „Móðurmáls- kennsla" og fluttu átta kennarar úr fræðsluumdKminu erindi sem síðan spruttu af fjörugar umræður. Dagskrá þessa skipulagði Anna Skarphéðinsdóttir námstjóri í ís- lensku, en erindi fluttu: Aðalbjörg Sigurðardóttir, ísafirði, Ásrún Kristjánsdóttir, Patreksfirði, Björg Baldursdóttir, Hnífsdal, Elísabet Guðmundsdóttir, Bolungarvík, Emil Hjartarson, Flateyri, Gústaf Oskarsson, ísafirði, Helga Svana Ólafsdóttir, Bolungarvík og Sigríður Ragna, ísafirði. Sjö námstjórar voru með fundi og viðræður við kennara á þessu haustþingi, en þeir voru: Anna Skarphéðinsdóttir (íslenska), Hrólfur Kjartansson (líffræði), Hörður Bergmann (danska), Jacqueline Hannesson (enska), Páll Ólafsson (íþróttir), Ragnheið- ur Gunnarsdóttir (stærðfræði) og Þórir Sigurðsson (mynd- og hand- mennt). Ása Guðmundsdóttir sálfræð- ingur við Fræðsluskrifstofu Vest- fjarða kynnti sálfræðiþjónustu í skólum á Vestfjörðum, Svavar Guðmundsson stýrði fræðslufundi um „Töflunýtingu" og Ragna Freyja Karlsdóttir fræðslufundi um „Hegðunarvandkvæði og fyrir- byggjandi aðgerðir". Á fundinum voru samþykktar nokkrar ályktanir m.a. um nauð- syn sameiginlegs framhaldsskóla fyrir Vestfirði, og skoraði fundur- inn á sveitarfélög Vestfjarða að hefja nú þegar viðræður við ríkis- valdið um uppbyggingu slíks skóla. Þá var samþykkt ályktun um að sálfræði- og ráðgjafarþjón- ustu í skólum á Vestfjörðum væri mjög ábótavant og gerðar þær kröfur að þjónusta þessi verði að fullu greidd úr ríkissjóði, þannig að unnt verði að framfylgja 66.—71. grein grunnskólalaganna. Að auki skoraði fundurinn á skólayfirvöld að hefja nú þegar uppbyggingu skólasafna í öllum skólum á Vestfjörðum, og veita auknu fjármagni til námsgagna- stofnunar. Fundurinn taldi heldur ekki tímabært að lengja skóla- skylduna upp í níu ár. Á aðalfundi KSV var stjórnin endurkjörin, en hana skipa: Jón Baldvin Hannesson, formaður, Daði Ingimundarson, gjaldkeri, Emil Hjartarson, ritari, Þuríður Pétursdóttir, Björg Baldursdóttir og Sigurður Friðriksson. Hús- og landeigendasamband Islands: Lögum um húsaleigusamn- inga vérði þegar breytt AÐALFUNDUR Hús- og landeigendasambands íslands var haldinn í Reykjavík laugardaginn 21. nóvember 1981. Innan sambandsins eru 8 hús- og iandeigendafélög og Húseigendafélag Reykjavíkur þeirra stærst. A aðalfundinum voru rædd ýmis málefni sem snerta húseigendur á landi hér, sérstaklega varðandi samskipti við ríkisvaldið. Kóreu, haustið 1982. Sagði sendiherrann að þar sem Suð- urKórea hefði nú komist yfir ýmsa stjórnarfarslega erfiðleika, sem háð hefðu þjóðinni á undan- förnum árum, færi efnahagur landsins nú batnandi og hygðist SuðurKórea nú auka enn utan- ríkisviðskipti sín. Asamt sendi- herranum voru mættir á fundinn Changsub llm, forstjóri Við- skiptastofnunar SuðurKóreu og Árni Gestsson, núverandi ræðis- maður SuðurKóreu. Á fundinum kom fram að Kór- eumenn hafa mikinn áhuga á auknum viðskiptum við ísland. Innflutningur hingað frá Suður- Kóreu er umtalsverður eða um 7 prósent af heildarinnflutningi sl. ár. Hins vegar er það tiltölulega lítið sem Suður-Kórea flytur héð- an og er það aðeins ein vörutegund — þorskalýsi. Að sögn Changsub Um mun Viðskiptastofnun Suð- ur-Kóreu i Ósló nú snúa sér að því verkefni að finna fleiri vöruteg- undir á íslandi sem hægt væri að flyta út til Suður-Kóreu. Jafn- framt verður leitast við að kynna kóreanskar framleiðsluvörur á ís- landi og er t.d. í undirbúningi að skipulagðar verði ferðir fyrir ís- lenska verslunarmenn á vörusýn- inguna í Seoul haustið 1982 þannig að þeir geti komist á sýninguna á verulegs kostnaðar. Aðalfundurinn tók til með- ferðar ýmsa þætti löggjafar varðandi fasteignamál, sem þyrftu endurskoðunar við: 1. Skattheimta á húsnæði keyrii úr hófi og dregur úr fram- taki einstaklinga við a£ koma sér upp eigin húsnæði, enda sjást þess þegar merki. Hér verða stjórnvöld að breyta um stefnu og gera íbúðarhúsnæði og arð af því skattfrjálst eins og annað sparifé. 2. Lögum um erfðafjárskatt verður að breyta í það horf, að skattþrep hækki nú og framvegis í samræmi við hækkun fasteignamats og leyfa ætti að greiða erfða- fjárskatt með afborgunum á nokkrum tíma, þegar ekki eru peningar í dánarbúi, en ef til vill aðeins ein íbúð, sem eftirlifandi maki þarf að búa í. 3. Lögum um húsaleigusamninga verði nú þegar breytt, þann- ig að samningsfrelsi ein- staklinga verði virt og gert verði eftirsóknarvert fyrir húseigendur að leigja út frá sér húsnæði. 4. Fundurinn telur að húsaleiga sé almennt of lág og gefi mik- ið lélegri arð af því fjár- magni, sem bundið er í hús- næðinu, heldur en verð- tryggðir innlánsreikningar og spariskírteini ríkissjóðs. Vísitala húsnæðiskostnaðar, sem notuð er af verðlagsyf- irvöldum við ákvörðun allrar leigu í landinu, sé röng og verði að endurskoðast. Hún sé ekki lögbundin og hafi hækkað mikið minna en aðr- ar vísitölur og taki ekki tillit til nýrra skatta á húsnæði, t.d. skrifstofuhúsnæði. Aðalfundurinn var þess mjög hvetjandi að haldið yrði áfram samstarfi við hús- og landeig- endasamtök á hinum Norður- löndunum og var því fagnað að sett hefur verið upp sameigin- leg skrifstofa í Gautaborg, sem Hús- og landeigendasamband íslands á aðild að. Munu tveir fulltrúar sambandsins taka þátt í sameiginlegum fundi í Kaupmannahöfn vegna þessa hinn 26. þ.m. í stjórn sambandsins voru kosnir: Páll S. Pálsson, Reykja- vík, formaður, Jón Hjaltason, Vestmannaeyjum, varaformað- ur og meðstjórnendur Pétur Blöndal, Reykjavík, Jóhannes Bjarnason, Mosfellssveit, Ey- þór H. Tómasson, Akureyri. KrétUtilkynnmg. Lokaúrslit í hjól- reiðakeppni skólanna I LOK október fóru fram lokaúrslit í hjólreiðakeppni milli þeirra 16 bestu sem kepptu í milliriðlum sl. vor. Keppt var í tveimur riðlum, á Akureyri og í Reykjavík. Eins og áður var úrslitakeppnin þríþætt, þ.e. spurningar um umferð- armál, góðakstur og hjólreiðaþrautir. Alls höfðu 16 keppendur áunnið sér rétt til þátttöku en 14 mættu til leiks. í átta efstu sætum urðu: 1. Theódór Kristjánsson, Hagaskóla Reykjavík 2. Einar B. Malmquist, Gagnfræðaskóla Akureyrar 3.-4. Agnar Guðmundsson, Grunnskólanum Blönduósi 3.-4. Kristinn Guðlaugsson, öldutúnsskóla Hafnarfirði 5. Hjörtur Þór Grétarsson, Árbæjarskóla Reykjavík 6. Kári Lúthersson, Réttarholtsskóla Reykjavík 7. Kristjana G. Bergsteinsd., Laugalandssk. Eyjaf. 8. Valdimar Svavarsson, Víðistaðaskóla Hafnarf. Keppendur voru mjög jafnir og munur í stigum lítill. Þeir Theódór og Einar sem urðu í 1. og 2. sæti keppninnar fara sem fulltrúar ís- lands í hjólreiðakeppni á vegum lorfoii RESTAURANT S. 13303 VeitingahúsiÖ Torfan óskar landsmönnum gleöilegra jóla og farsæls komandi árs Við höfum lokað aðfangadag og jóladag. Opnum kl. 17.00 annan í jólum. Opið til kl. 14.00 gamlársdag. Lokað ngársdag. Verið ávallt velkomin Stlg 414 406 392 392 387 386 385 383 PRI — alþjóðasamtaka umferð- arráða, en hún verður haldin í Hollandi í maímánuði nk. Þar munu ennfremur 2 vélhjólapiltar, þeir Rúnar Guðjónsson frá Sel- fossi og Karl Gunnarsson, Reykja- vík, keppa í vélhjólaakstri, en þeir sigruðu í úrslitakeppni vélhjóla- pilta sem haldin var í Reykjavík á vegum Bindindisfélags ökumanna o.fl. í samráði við Umferðarráð, 3. okt. sl. Umferðarráð þakkar keppend- um og starfsmönnum fyrir þátt- tökuna, og vonast itl að þessir ungu menn sem þarna leiddu sam- an hjólhesta sína hafi lært nokkuð af reynslu sinni, og muni í krafti þess verða enn betri þátttakendur í almennri umferð framtíðarinn- ar. Fréttatilkynning.. Þrítugasta bókin um Morgan Kane I'RENTHÚSIÐ sf. hefur gefid út þrí tugustu bókina í bókaflokknum um Morgan Kane og heitir hún „Ap- ache“. Fimm ár eru nú síðn fyrsta bók- in um Morgan Kane kom út á ís- lenzku og auk þessara 30 bóka í númeraröð hafa komið út þrjár stærri bækur um Morgan Kane.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.