Morgunblaðið - 23.01.1982, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 23.01.1982, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1982 Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi: Sextán frambjóðend- ur í opnu prófkjöri SJALFSTÆÐISMENN á Seltjarnamesi efna til prófkjörs nú um helgina, til vals á framboóslista Sjálfstæðisflokksins í kaupstaðnum við bæjarstjórnar kosningar í vor. Sextán manns eru í framboði, en kosið er í aðaianddyri Félagsheimilis Seltjarnarness í dag, laugardag, milli klukkan 10 og 19, og á morgun, sunnudag, frá klukkan 14 til 19. Atkvæðisrétt hafa allir stuðn- ingsmenn Sjálfstæðisflokksins sem búsettir eru í Seltjarnar- nesbæ og kosningarétt hafa í bæj- arstjórnarkösningunum. Einnig allir félagar í sjálfstæðisfélögun- um í bænum, sem náð hafa 16 ára aldri prófkjörsdagana, og búsettir eru í kaupstaðnum. Kjósa á minnst 7 frambjóðendur og flesta 10, með því að raða þeim í núm- eraröð. Frambjóðendur eru þessir: Magnús Erlendsson, Jónatan Guð- jónsson, Bryndís H. Snæbjörns- dóttir, Anna K. Karlsdóttir, Guð- mar Magnússon, Jónas Friðgeirs- son, Jón Gunnlaugsson, Grétar Vilmundarson, Júlíus Sólnes, Erna Nielsen, Skúli Ólafs, Ásgeir S. Ásgeirsson, Guðmar Marelsson, Sigurgeir Sigurðsson, Kristín Friðbjarnardóttir og Áslaug G. Harðardóttir. Sjá einnig kynningu á fram- bjóðendum á öðrum stað í Morg- unblaðinu í dag. Ráðuneytinu ber að stöðva rekstur Steindórsstöðvar „MÁLIÐ hefur verið skoðað frá lög- fræðilegum hliðum, bæði í gær og dag og það er ekki hægt að segja annað en að það er Ijóst að ráðu- Pelagus að brotna TALSVERT brim og þung undir alda var á strandstað belgíska togarans Pelagusar við Heimaey í gær og gengu brimskaflarnir yfir skipið, sem er smámsaman að brotna sundur, en heldur dró úr briminu er leið á daginn. Lík tveggja mannanna, sem fórust á strandstað við Heimaey, voru enn ófundin er Morgunblaðið fór í prentun seint í gærkvöldi en eitt fannst í gær. neytinu ber að stöðva rekstur Bif- reiðastöðvar Steindórs sf., eða gera það sem það getur til þess, lögin eru svo afdráttarlaus og ótvíræð hvað sölu atvinnuleyfa snertir," sagði Steingrímur Hermannsson, sam- gönguráðherra, í samtali við Morg- unblaðið í gær. „Gagnvart öðrum mönnum, sem keyrt hafa árum saman sem laun- þegar í þessari stétt og bíða eftir því að fá kannski leyfi, getur það ekki gengið, að mönnum, sem sumir hverjir hafa keyrt í nokkra mánuði, líðist það að geta keypt sér leyfi, þá er þetta kerfi allt saman hrunið. Á hinn bóginn vil ég gjarnan reyna að stuðla að því, að þeir menn, sem lengst hafa keyrt hjá stöðinni, geti fengið at- vinnuleyfi, til að draga eitthvað úr sárindum, ef það er hægt. Hins vegar getur það verið að dómstól- ar þurfi að skera úr um það hvort lögin halda, en samgönguráðu- neytið telur það alveg ótvírætt að með sölu atvinnuleyfanna hafi lög verið brotin,“ sagði Steingrímur. Spá náttúruham- förum á Húsavík flúsavík, 21. janúar. SÚ SAGA hefur gengið hér um bæinn síðan um áramót, að ein- hver stórviðburður, náttúru- hamfarir, ætti að gerast hér á Húsavík hinn 23. janúar. Frá- sögn þessi hefur verið í mörgum myndum og höfð eftir ýmsum draumspekingum. Hún hefur magnast eftir því, sem hún hef- ur lengur gengið manna á með- al. Sumir leggja trúnað á þetta, en aðrir ekki. Nú er bara að sjá hvað gerist og vona, að um falsspár sé að ræða. Staðfesting fyrir draumunum hefur ekki feng- ist og þeir sem við spána hafa verið orðaðir vilja ekki kann- ast við hana svo ég viti til. — Fréttaritari Athugasemd frá Guð- mundi Árna Stefánssyni MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá rit- stjórnarfulltrúa Alþýðublaðsins, Guðmundi Árna Stefánssyni: í til- efni athugasemdar Alberts Guð- mundssonar í Morgunblaðinu í gær vill Guðmundur Árni Stefánsson, rit- stjórnarfulltrúi á Alþýðublaðinu, taka fram eftirfarandi: „Ég átti samtal, fyrir hönd Al- þýðublaðsins, við Albert Guð- mundsson í Alþingishúsinu á mið- vikudag og spurði hann, hvort hann ætlaði ekki að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í borg- arstjórnarkosningunum. Hann svaraði þá „að enginn hefði við sig talað og boðið sér sæti“ og síðan „að það mætti ætla að þeir vildu losna við mig“. Rétt var eftir Al- bert haft og ekki mál Alþýðu- blaðsins hvort þingmaðurinn og borgarfulltrúinn segi annað í dag en hann gerði á miðvikudaginn, það er vandamál Alberts Guð- mundssonar. Megin atriðið er að nefnt viðtal átti sér stað og ná- kvæmlega eftir Albert haft í frétt Alþýðublaðsins á fimmtudag. Hvort Albert telur ástæðu til að leiðrétta sjálfan sig og breyta fyrri yfirlýsingum er hans höfuð- verkur." Lftill afli LÍTILI. afli hefur enn borist á land eftir að sjómannaverkfalli lauk. En neta- og línubátar hafa þó land- að nokkru af þorski. Morgunblað- ið fékk þær upplýsingar í verstöðv- um á suðvesturhorni landsins að afli sem bátar hefðu landað þar væri að jafnaði frá þremur og upp í tólf tonn, en fáeinir voru með meira. í Grindavík fékk Albert GK 31 fimmtán tonn í fyrsta róðri eftir verkfall, en aðrir 7—12 tonn. Fékkst aflinn að mestu í þorska- net um 50 mílur út af Reykja- nesi. í Sandgerði höfðu nokkrir línubátar fengið 6—8 tonn á bát, en aðrir bátar minna. Var mál manna þar að fiskiríið færi hægt af stað. í Vestmannaeyjum hefur veð- ur hamlað veiðum og því lítill afli borist á land, en þó höfðu bátar komið inn með afla allt frá 3 tonnum og upp í 24 tonn. Þær upplýsingar fengust í Þorlákshöfn að þar hefði enginn afli borist á land síðan á þriðju- dag, en, von væri á bátum til hafnar á fimmtudagskvöld. Alls hafði verið landað 156 tonnum úr 11 bátum, þar af tveimur sem reru með línu. Einn bátur hafði landað 46 tonnum og annar 38 tonnum, en aðrir höfðu fengið minna en 13 tonn. Vinnsla aflans hafin í söltunarstöð Hraðfrystihúss Grindavíkur. Ljósm. (audfinnur Fundur Varðbergs og SVS: Aukin þátttaka Islendinga f vörnum landsins KJARTAN Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, flytur ræðu á fundi Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu, sem haldinn verður í dag. Umræðu- efni hans nefnist: „íslenskt frum- kvæði í _ öryggismálum — aukin þátttaka íslendinga í vörnum lands- ins.“ Fundurinn hefst klukkan 12 á hádegi í dag, laugardaginn 23. janúar, í Átthagasal Hótel Sögu (neðstu hæð, suðurenda). Fundur- inn er opinn félagsmönnum í Varðbergi og Samtökum um vest- ræna samvinnu og gestum þeirra. Kjartan Gunnarsson Kristinn Finnbogason, framkvæmdastjóri íscargó: __ r Salan á Electra-vél Iscargó til Perú er út úr myndinni Höfum í hyggju ad auka hiutafé félagsins, auk þess að leita eftir aukinni fyrirgreiðslu „VIÐ HÖFUM fengið afsvar frá Perúmönnum, þeir fengu ekki tilskil- in leyfi og það verður því ekkert af sölu Electra-vélar félagsins," sagði Kristinn Finnbogason, framkvæmdastjóri íscargó, í samtali við Mbl. „Þetta setur okkur auðvitað í mikinn vanda. Þessir menn hafa dregið okkur á svari svo mánuðum skiptir, svo við munum krefja þá um skaðabætur,“ sagði Kristinn Finnbogason ennfremur. — Við höfum undanfarna Arnarflugsmenn hafa allar sain- daga verið að leita fyrir okkur með aukningu hlutafjár í félag- inu, sem er nauðsynleg í þeirri stöðu, sem upp er komin, auk þess að fá aukna fyrirgreiðslu. Okkur er nauðsynlegt að skipta Electrunni upp í Boeing 727-100-farþegavél til að geta sinnt okkar farþegaflugi, auk þess sem viðræður okkar við Einþáttungar í Leikbrúðulandi Á MORGUN, sunnudaginn 24. janúar, verður sýning á tveim ein- þáttungum í Leikbrúðulandi, Frí- kirkjuvegi 11; „Hátíð dýranna" og „Eggið hans Kiwi“. Sýningin hefst kl. 15. stoppað á Electrunni. Þeir hafa hreinlega ekki not fyrir hana, sagði Kristinn ennfremur. Kristinn sagði ennfremur, að upp úr viðræðum félaganna, sem staðið hafa yfir um nokk- urra mánaða skeið, hefði slitn- að vegna þess, að Arnarflugs- menn hefðu ekki haft nein not fyrir Electruna. — Ég er hins vegar viss um, að saman hefði gengið með okkur hefði vélin verið seld, því hagsmunir félag- anna iara aö morgu ieyu an. Það hafa til að mynda um 85% hluthafa í íscargó sam- þykkt að selja hlutabréf sín Arnarflugi, sagði Kristinn. Þá kom það fram hjá Kristni, áð Iscargómenn væru að sjálf- sögðu tilbúnir til viðræðna við Arnarflugsmenn hvenær sem er, því hagsmunir félaganna færu saman. ö INNLENT Fjórir skákmenn^ fá heiðurslaun BÍ STJÓRN Brunabótafélags íslands hefur ákveðið í tengslum við 65 ára afmæli sitt, að stofna stöðu- gildi á skrifstofu félagsins og veita einstaklingum heiðurslaun, þó ekki lengur en eitt ár í senn. Stjórnin hefur ákveðið að veita fjórum skákmönnum heið- urslaun á þessu ári, hverjum 3 mánuði í senn. Skákmennirnir eru alþjóðlegu meistararnir Helgi Ólafsson, Haukur Angan- týsson, Jón L. Árnason og Mar- geir Pétursson. Munu þeir þiggja laun samkvæmt 20. launaflokki opinberra starfsmanna, efsta þrepi, sem munu vera liðlega 10 þúsund krónur á mánuði. „Stjórn Brunabótafélags ís- lands sýnir skákmönnum al- mennt mikla virðingu með þessu og ég fagna þessum heiðurslaun- um. Þetta er mér, og ég efast ekki um félögum mínum líka, mikil hvatning til að gera enn betur og kemur í góðar þarfir í viðleitni okkar til að ná betri árangri," sagði Margeir Péturs- son í samtali við Mbl. Framvegis mun auglýst eftir umsóknum um heiðurslaun, en þar sem ekki fékkst ráðrúm til að auglýsa eftir heiðurslaunum á árinu 1982 ákvað stjórnin að veita skákmönnunum fjórum heiðurslaunin í ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.