Morgunblaðið - 23.01.1982, Page 39

Morgunblaðið - 23.01.1982, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1982 39 Bæði liðin skoruóu yfir 100 stig ÍSLANDSMEISTARAR Njarðvíkur í körfuknattleik unnu frekar naum- an sigur á neðsta liði úrvalsdeildar innar, ÍS, í gærkvöldi í Njarðvík. Að- eins sjö stig skildu liðin að í lok leiksins. Að vísu hafði lið Njarðvíkur mikla yfirburði í fyrri hálfleiknum og skoraði þá 65 stig gegn 43. Og allt virtist stefna í einstefnu UMFN. En í síðari hálfleiknum tók leik- urinn frekar óvænta stefnu, Víkingur sigraði ÍBK með 10 mörkum 26—16 Víkingur vann öruggan sigur á liði ÍBK í bikarkeppni HSÍ í gærkvöldi er liðin léku í Keflavík. Víkingur sigraði með 10 marka mun, 26—16. Staðan í hálfleik var 11—8. Flest mörk Víkinga skoruðu Sigurður Gunnarsson, 10, og Þor- bergur Aðalsteinsson 7. Marka- hæstur Keflvíkinga var Björgvin Björgvinsson með 9 mörk og næst- ur honum kom Grétar Grétarsson með 3 mörk. emm/þr. UMFN — ÍS 109:102 Njarðvíkingar juku forskot sitt verulega fyrstu mínútur hálfleiks- ins og komust þá í 77—51, en þá var eins og leikmenn IS tæku verulegan kipp og fóru að bíta frá sér. Þeim tókst að minnka muninn niður í þrjú stig, 97—94. En þá tók sá óviðjafnanlegi Danny Shouse til sinna ráða og skoraði 11 stig í röð og tryggði UMFN öruggan sigur í leiknum. Danny skoraði 48 stig í leiknum þar af 30 í fyrri hálfleiknum. Gunnar Þorvarðarson skoraði 15. Pat Bock skoraði flest stig ÍS, 30. Nánar á þriðjudag. emm/þr. KðriuknattleiKur Leiðrétting Omar Rafnsson UBK en ekki Torfason er hjá Lokeren ÞAU LEIÐU mistök urðu á íþrótta- síðu Morgunblaðsins í gærdag að sagt var frá því að Omar Torfason væri við æfingar hjá Lokeren í Belgíu. Þetta er ekki rétt, föðurnafn Ómars misritaðist. Það er Ómar Rafnsson úr Breiðabliki sem er hjá Lokeren og mun hugsanlega skrifa undir samning hjá liðinu. Ómar Rafnsson er 19 ára gamall mjög efnilegur knattspyrnumaður í Breiðabliki sem dvalið hefur við æfingar síðastliðnar fjórar vikur hjá félaginu og leikið tvo leiki með varaliði félagsins. Forráðamenn Lokeren hafa haft gott auga með piltinum og hafa hug á að fá hann til Lokeren. Allt mun þó verá óráðið í þeim efnum. í dag mun Ómar leika með varaliði félagsins og eftir þann leik munu línurnar skýrast. — ÞR. Guðmundur Wrðarson, ÍR, sækir að horninu er Sigurður Svavarsson, og Stjörnunnar fylgist vel með leiknum vörn Stjörnunnar, en varnarmenn sjá má á varamannabekk ÍR. Sjá má í vinstra horni myndarinnar. Stjörnunnar koma vel út á moti. í hvar Gunnar Einarsson þjálfari Ljósm. rax. Naumur sigur IR Möguleikar Stjörnunnar í Garða- bæ á sæti í 1. deild að ári biðu hnekki í gærkvöldi, er ÍR sigraði lið- ið 18—16 í íþróttahúsinu að Ásgarði í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 8—7 fyrir ÍR. Lélegur handknatt- leikur var á boðstólum að þessu sinni, en mikil barátta og tauga- spenna, enda mikið í húfi. Eftir þennan sigur er staða ÍR afar sterk í deildinni, liðið hefur aðeins tapað 4 stigum, en næstu lið sex stigum og sjö. Stjarnan byrjaði afar vel, komst í 2—0 með góðum skotum Eyjólfs Bragasonar. En eftir það gekk Eyjólfi hins vegar ekkert í haginn, sóknarleikur beggja liða reyndar fumkenndur og tilviljanakenndur. Varnarleikur beggja hins vegar góður og markvarsla einnig.ÍR náði frumkvæðinu, komst í 5—3, en Stjarnan jafnaði 5—5 og 6—6. Tvö mörk frá ÍR og staðan breytt- ist í 8—6, en Stjarnan átti loka- orðið. I síðari hálfleik voru jafnteflis- tölur allt upp í 12—12, en eftir það náði ÍR frumkvæði sem liðið lét ekki af hendi, lokatölur því 18—16 eins og áður segir. Lið Stjörnunnar var ívið meira léttleikandi en lið ÍR, hins vegar af og frá að uppskeran hafi verið meiri, skyttur liðsins brugðust hræðilega, en aðrir leikmenn sýndu góða takta á milli. Bestir voru Viðar Símonarson, Magnús Teitsson og markvörðurinn Hösk- uldur Ragnarsson, sem varði geysilega vel. Magnús Andrésson og Guðmundur Óskarsson stóðu einnig fyrir sínu. Sigurliðið IR var ekki sannfær- andi þrátt fyrir sigurinn, en leikmenn flutu meira á leik- reynslu og seiglu en nokkru öðru. Jens var góður í markinu, varði m.a. tvö vítaköst og var siðan næstum búinn að skora undir lok- in, er hann óð fram völlinn og skaut þrumuskoti í stöng. Guð- mundur Þórðarson bar verulega af útileikmönnum ÍR, Ársæll var einnig meira en frambærilegur. Mörk Stjörnunnar: Magnús Teitsson 5, Guðmundur Óskarsson 4, Eyjólfur Bragason, Eggert ísdal og Viðar Símonarson 2 hver og Magnús Andrésson eitt mark. Mörk ÍR: Guðr.iundur Þórðar- son 7, Ársæll Hafsteinsson 4, Sig- urður Svavarsson 3, Sighvatur Bjarnason og Einar Valdimarsson 2 hvor. — gg- Skíðalyfta Fram opnuð í dag • Skíðalyfta Fram í Eldborgargili verður opnuð í dag. Allgott skíðafæri er nú á skíðasvæði Fram í Bláfjöll- um, og án efa munu skíðamenn not- færa sér helgina, þar sem flesta er farið að lengja eftir að komast á skíði. ST1IM BfeJUI HVBW SraUIET SEIJA SVIKNA SKREIfl A ERL MARGSKIPTUR. STEFNULAUS HiS^kSíö M [arnarflug, sis IÍSCARGÚ, ESSfi IRUNKA SAMAN Mánudagsblaðið nýlega? Hefurðu séð Mánudagsblaðið er blað fyrir alla og er op- ið öllum þeim, sem hafa eitthvað til mál- anna að leggja. Þar er fjallað opinskátt og undanbragðalaust um hlutina. Blaðið hefur breytt verulega um svipmót að undanförnu, og er nú bæði aðgengilegra og skemmtilegra blað. Þú ættir að kanna málið með því að koma við á næsta biaðsölustað og fá þér eintak. í gær kom einmitt út nýtt tölublað, því að Mánudags- blaðið og stórblaðið Time Magazine eiga það meðal annars sammerkt að bæði eru dagsett fram í tímann. Þannig kemur Mánudagsblaðið út á föstudögum síðla, en er dagsett á mánudeginum á eftir. Og loks orðsending til nýrra útsölustaða: Hafið samband um helgina í síma 13496. Hver veit nema við getum bætt ykkur á listann og sent ferskt Mánudagsblað í hvert sinn og það kemur út. Það gerir við- skiptavini ykkar ánægða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.