Morgunblaðið - 07.04.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982
5
Happdrætti SÁÁ:
Yfirlýsing
frá hag-
stofustjóra
MORGIJNBLAÐINU barst í gær
cftirfarandi yfirlýsing frá Klemenz
Tryggvasyni hagstofustjóra „vegna
rannsóknar þeirrar, er nú stendur
yfir á því, með hvaða hætti gíró-
seðlalisti vegna happdrættis Sam-
taka áhugafólks um áfengisvanda-
málið hafi orðið til“:
„Samkvæmt eðli þessa máls og
vegna sérstakra aðstæðna í sam-
bandi við það, taldi hagstofustjóri
það vera skyldu Hagstofunnar að
óska eftir opinberri rannsókn á
því. Var Rannsóknarlögreglu
ríkisins send beiðni þar að lútandi
hinn 12. mars sl., en frétt um
dreifingu happdrættisseðla til
70.000 kvenna birtist fyrst mánu-
daginn 8. mars sl., í Dagblaðinu og
Vísi.
I samræmi við sjálfsagða opin-
bera siðareglu ákvað hag-
stofustjóri að tjá sig ekki til fjöl-
miðla um málið meðan það væri í
rannsókn. En nú er svo komið, að
reynt er á áberandi hátt að nota
þessa afstöðu Hagstofunnar til að
tortryggja málstað hennar. Af
þessum sökum telur hagstofu-
stjóri rétt að lýsa því yfir, að
ekkert sem hingað til hefur komið
fram við rannsóknina, hefur dreg-
ið úr þeirri sannfæringu hans, að
brýna nauðsyn beri til að málið
fáist upplýst til hlítar á vettvangi
dómskerfisins."
Tónskólinn með
tónleika 1 kvöld
NÚ STENDUR yfir á vegum Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinssonar
námskeið í hljómsveitarleik. Nám-
skeiðið hófst í síöustu viku og æf-
ingar hafa verið þrisvar á dag en
námskeiöið mun enda með tónleik-
um í Bústaðakirkju á miðviku-
dagskvöldið. Stjórnandi á tónleik-
unum verður George Hadjinikos,
grískur hljómsveitarstjóri og píanó-
leikari, sem starfar sem prófessor
við Konunglega tónlistarskólann í
Manchester.
Þetta er í þriðja skiptið sem
George Hadjinikos kemur til ís-
lands á vegum Tónskólans, en auk
þess að kenna ferðast hann mikið,
leiðbeinir á námskeiðum, stjórnar
hljómsveitum og kemur fram sem
einleikari.
Þátttakendur á námskeiðinu
eru auk nemenda tónskóians frá
flestum tónlistarskólum í Reykja-
vík og nágrenni. Hljómsveitina
skipa um 60 hljóðfæraleikarar.
A efnisskrá eru þrjú verk: Sin-
fónía í þrem þáttum eftir Igor
Stravinsky, Sinfónía í C-dúr
(stóra sinfónían) eftir Franz
Schubert og svíta í h-moll fyrir
flautu og strengjasveit eftir J.S.
Bach. Einleikari á flautu er
Gunnar Gunnarsson.
Tónleikarnir verða eins og áður
sagði í Bústaðakirkju miðviku-
dagskvöldið 7. apríl og hefjast kl.
20. (Krétlatilkynnini!)
Elsti Dalvíking-
urinn látinn
Dalvík, 3. apríl.
ÞANN 20. mars sl. andaðist á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri elsti
íbúi Dalvíkurbæjar, Arngrímur Jó-
hannesson, fyrrum útgerðarmaður
og smiður í Sandgerði. Hann var
fæddur 11. mars árið 1886 og var því
nýlega orðinn % ára. Arngrímur var
sonur hjónanna Jóhannesar Þor-
kelssonar útvegsbónda og Guðrúnar
Gísladóttur frá Ytra-Holti.
Arngrímur Jóhannesson hóf
snemma afskipti af útvegsmálum
hér, fyrst í samfloti við föður sinn
en síðar einn. Árið 1917 saltar
hann síld fyrstur manna á Dalvík.
Arngrímur lærði trésmíði og hafði
réttindi sem bátasmiður, húsa-
smiður og mublusmiður sem kall-
að var. Það kom því snemma í
hans hlut að smíða bryggjur við
Böggvisstaðasand ásamt árvissu
i viðhaldi eða jafnvel uppbyggingu
Föstuvaka í
Seljasókn
SÚ nýbreytni verður í Seljasókn að
haldin verður vaka frá kvöldi skír-
dags til guðsþjónustu á föstudaginn
langa.
Vakan fer fram í Tindaseli 3 og
byrjar hún kl. 18.00 á skírdags-
kvöldi. Tilgangur með þessari
vöku er að íhuga pínu og dauða
Jesú Krists. Verður í gangi
dagskrá alla vökuna. Vakan er öll-
um opin.
þeirra. Þar vann hann þrekvirki á
sínum tíma. Margar byggingar
reisti Arngrímur hér um slóðir en
byging Sundskála Svarfdæla árin
1928—29 er eitt af hans meiri
Arngrímur Jóhannesson
háttar verkum ef miðað er við þær
aðstæður og tæki, sem fyrir hendi
voru á þeim tímum.
Árið 1919 kvæntist hann Jór-
unni Antonsdóttur frá Hamri og
eignuðust þau þrjú börn sem öll
eru á lífi og búsett hér. Konu sína
missti hann 3. maí árið 1960. Útför
Arngríms Jóhannessonar, eins af
frumbýlingum þessa byggðarlags,
fór fram frá Dalvíkurkirkju 27.
mars sl. Fréttaritarar.
Tollur á neyðarfæði:
Sjálfsagt endurskoðað
— segir fjármálaráöherra
„ÞAÐ ER margt skrítið í tolla-
löggjöfinni. Tollalöggjöfin í heild
er í endurskoðun og sjálfsagt er
þetta eitt af því sem verður endur-
skoðað,“ sagði Ragnar Arnalds,
fjármálaráðherra, er Mbl. spurði
hann um ástæðu þess að matur í
björgunarbáta fiskiskipa er talinn
eins konar lúxusvara, ef dæma má
af tollmeðferð á slíkri vöru.
Vara þessi er skattlögð á þann
hátt, að fyrst er lagt á 3% jöfn-
unargjald, síðan kemur 24%
vörugjald og loks 32% tíma-
Sjálfstæðis-
menn með opið
hús í Eyjum
Sjálfstæðismenn í Vestmanna-
eyjum hafa opið hús í Eyverja-
salnum nk. laugardag kl. 1—7.
„Það verður kaffi á könnunni og
spjall eins og okkur er lagið, aðal-
atriðið er að fólk hittist og við
viljum hvetja til þess,“ sagði Sig-
urgeir Ólafsson í samtali við Mbl.,
en bæjarfulltrúar flokksins og
væntanlegir fulltrúar verða á ráp-
inu á staðnum.
bundið innflutningsgjald. Sam-
anlagt gerir þetta 68%. Ragnar
sagði, að honum væri ekki kunn-
ugt um þetta, nema það sem
hann hefði lesið um það í Mbl.,
en samkvæmt fréttinni þar,
væri um það að ræða að sam-
kvæmt tollskránni væri farið
eftir því úr hvaða efni varan
væri framleidd.
Leiðrétting
í SAMTALI við Vilhelm Þorsteins-
son framkvæmdastjóra Útgerðarfé-
lags Akureyringa í Morgunblaöinu i
gær, er haft eftir honum að ætlunin
hafi verið að taka ákvörðun um
endurnýjun togarans Sólbaks á ár-
inu 1979, en ekki orðið af því sökum
erfiðleika fyrirtækisins.
Vilhelm hafði samband við
Morgunblaðið í gær, og sagði að
hér væri ekki haft rétt eftir sér.
Hann hefði sagt við viðkomandi
blaðamann, að árið 1979 hefði ver-
ið til umræðu að endurnýja Sól-
bak, en vegna hás verðs og þeirra
lánakjara, sem þá voru í boði,
hefði ekki orðið af því. Þá sagðist
hann vilja árétta að aldrei hefði
verið rætt um að ÚA yfirtæki
Þórshafnartogarann.
Jónas Guð-
mundsson
sýnir í Eden
JÓNAS Guðmundsson heldur
málverkasýningu í Eden í
Hveragerði um páskana og sýnir
þar myndir, olíumálverk og
vatnslitamyndir, sem voru á
sýningu hans í ráðhúsinu í Lux-
emborg í síðasta mánuði.
Sýningin verður opnuð á
skírdag og stendur til 25. apríl.
Jónas Guðmundsson
Brandtex kvenbiússur,
kvenbuxur, kvenjakkar.
Mjög vandaður danskur kvenfatnaöur í sumar-
litunum úr bómull-polyester-flannel og ekki
spillir veröiö fyrir.
Austurstræti 10
sinii: 27211