Morgunblaðið - 16.05.1982, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MAÍ1982
Eileen Ford-keppnin á íslandi:
stúlkur
í úrslit
UNDIRBÚNINGUR að vali íslenskrar stúlku
til þátttöku í fyrirsætukeppni á vegum tísku-
drottningarinnar Eileen Ford hefur staðið yfír
hér á landi að undanförnu, eins og reyndar
hefur komið fram í Morgunblaöinu. Það er
tímaritið „Lír* sem annast framkvæmd keppn-
innar hér á landi og í samtali við Morgunblaðið
sagði ritstjóri Líf, Katrín Pálsdóttir, að undir-
búningur væri vel á veg kominn.
„Það voru á milli 60 og 70 stúlkur sem fóru í
myndatöku og úr þeim hópi er nú búið að velja 20
stúlkur, sem koma til greina í úrslitin," sagði
Katrín. „María Guðmundsdóttir og Lacey Ford,
dóttir Eileen Ford, hafa valið þessar 20 úr og
María kom sérstaklega hingað til lands til að
ganga endanlega frá þessu vali.
Margar af þessum stúlkum hafa aldrei komið
nálægt sýningarstörfum og það er eins og sumar
þeirra hafi hreinlega sprottið upp úr jörðinni,"
sagði Katrín ennfremur. „í flestum tilfellum var
hringt í okkur og bent á ákveðnar stúlkur eða að
við fengum myndir sendar af stúlkunum og í
mörgum tilfellum urðu stúlkurnar sjálfar hissa
þegar við hringdum í þær og báðum þær um að
koma í myndatöku. Þær höfðu þá ekki haft hug-
mynd um að einhver hafði bent á þær. Allar
þessar 20 stúlkur sem nú hafa verið valdar úr
hafa verið mjög jákvæðar og tekið þátt í undir-
búningnum af lífi og sál og ég held að það sé ekki
endilega áhuginn á að vinna keppnina heldur for-
vitni á að fylgjast með hvernig þetta er unnið.
Þetta er ekki bara það að stilla sér upp fyrir
framan myndavél heldur liggur mikil vinna
margra aðila að baki hverri myndatöku. Þarna
hefur þeim gefist kostur á að vinna með færustu
hárgreiðslumeisturum og snyrtifræðingum og svo
auðvitað þaulvönum ljósmyndurum, Friðþjófi
(Ljótna. Mbl. Emin*.)
Tveir þátttakenda í keppninni, Helga Jóna Sveinsdóttir og Brynja Sverrisdóttir.
Friðþjófur Ijósmyndari leiðbeinir einni stúlkunni, Lilju
Hrönn Hauksdóttur, í myndatökunni. Helga Möller, aug-
lýsingastjóri Líf, íylgist með.
Helgasyni og Jens Alexanderssyni, en þeir hafa
annast alla myndatöku," sagði Katrín.
Um það hvert yrði næsta skrefið í framkvæmd
keppninnar sagði Katrín: „Keppninni, sem halda
átti í Atlantic City í júlí, hefur nú verið frestað og
verður hún haldin í New York í september.
Ástæðan er sú, að undirbúningur er svo um-
fangsmikill að í mörgum löndunum voru menn
ekki tilbúnir að velja stúlkurnar í tæka tíð, en í
þessari keppni taka þátt stúlkur frá yfir 20 lönd-
um. Þetta kom sér að vissu leyti vel fyrir okkur
því við vorum á síðasta snúningi eins og svo
margir aðrir. Við munum kynna þessar tuttugu
stúlkur í „Líf“, sem kemur væntanlega út í lok
júní. Blaðið hefur ekki komið út að undanförnu og
liggja til þess ýmsar ástæður. Bæði er það þessi
mikla vinna í sambandi við valið á stúlkunum svo
og eigendaskiptin á útgáfufyrirtækinu. Nú hefur
hins vegar verið gengið frá útgáfunni á næstu
blöðum og mun blað koma út eftir nokkra daga,
en blaðið þar sem stúlkurnar verða kynntar kem-
ur væntanlega í lok júní.
Lacey Ford mun hins vegar koma hingað í byrj-
un júní eins og áður var ákveðið og eins María
Guðmundsdóttir og þær munu velja þá stúlku
sem ber sigur úr býtum. Nafn hennar verður sett
í lokað umslag og haldið vandlega leyndu þangað
til eftir að blaðið með kynningunni er komið út og
þá verður það tilkynnt opinberlega, væntanlega
með einhverri viðhöfn," sagði Katrín.
— Sv.G.
Unnur Steinson og Kristín Hrund Davíósdóttir stilla sér upp til myndatöku og starfsfólkið fylgist meó.
Hirgreióslumeistarar HCF-klóbbsins annast hárgreiósluna og hér má sjá
einn þeirra að störfum.