Morgunblaðið - 16.05.1982, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MAÍ1982
pltrgmn Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 110 kr. á mánuði innanlands. I' lausasölu 7 kr. eintakiö.
Alþýðubandalagið hefur
í rauninni aðeins haft
eitt að segja í kosningabar-
áttunni fyrir borgarstjórn-
arkosningar og það er að
Sjálfstæðisflokknum sé
stjórnað af Vinnuveitenda-
sambandinu. Fróðlegt er að
huga að þessum staðhæf-
ingum Alþýðubandalagsins
í ljósi þeirra orða, sem
Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands íslands,
viðhefur í Morgunblaðinu í
gær um kjarastefnu Ragn-
ars Arnalds, fjármálaráð-
herra.
Þjóðviljinn birti í fyrra-
dag athyglisvert viðtal við
fjármálaráðherra, þar sem
hann lýsir afstöðu sinni til
kröfugerðar hjúkrunar-
fræðinga og kjaradeilu
þeirra.
Þar segir fjármálaráð-
herra: „Formlega séð eig-
um við ekki í deilu við
hjúkrunarfræðinga, þar
sem við erum nýbúnir að
gera út um þeirra mál eftir
þeim leiðum, sem samning-
ar BSRB segja til um. Sam-
kvæmt þeim úrskurði fengu
hjúkrunarfræðingar 6—7%
hækkun á meðan aðrir hóp-
ar fengu um 1,5%. Það seg-
ir sig sjálft, að þótt þessi
hópur hafi sterka stöðu, þá
verður að líta á kjaramál
hans í samhengi við kjara-
mál launþegahreyfingar-
innar í heild. Ef menn
grípa til hópuppsagna og
úrræða, sem alls ekki tíðk-
ast innan launþegasamtak-
anna bara vegna þess að
læknar hafa gert slíkt hið
sama er verið að kippa
grundvellinum undan
samnings- og verkfallsrétti
opinberra starfsmanna ...
Mér finnst öll umræða um
launa- og kjaramál hafa
um of einkennzt af því, að
einstakir hópar innan laun-
þegasamtakanna kvarta
undan því, að hafa dregizt
aftur úr einhverjum öðrum
hópi, þannig að innbyrðis
sundurlyndis gætir meðal
einstakra hópa. Kröfur
hjúkrunarfræðinga eru til
þess fallnar að koma af
stað keðjusprengingum og
kalla á illindi meðal ann-
arra launþega."
Morgunblaðið sneri sér
til Þorsteins Pálssonar,
framkvæmdastjóra Vinnu-
veitendasambandsins, og
leitaði álits hans á þeirri
stefnu í kjaramálum, sem
fram kemur í þessum um-
mælum Ragnars Arnalds,
fjármálaráðherra. Fram-
kvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins sagði í
viðtali, sem birtist í Morg-
unblaðinu í gær, að orð
Ragnars Arnalds væri eins
og töluð út úr sínu hjarta.
Orðrétt segir Þorsteinn
Pálsson: „Mér sýnist þetta
vera hárrétt hugsun hjá
Ragnari. Ég þekki að vísu
ekki nákvæmlega til hans
aðstöðu, sem vinnuveitenda
opinberra starfsmanna. Sú
lýsing, sem hann gefur,
kemur hins vegar vel heim
og saman við þann vanda,
sem við eigum við að glíma
á hinum almenna vinnu-
markaði... Reyndar er
þessi lýsing Ragnars eins
og töluð út úr mínu hjarta.
Hún sýnir, að hann metur
þessa stöðu alveg rétt. Að
minni hyggju er það býsna
mikilvægt, að stjórnvöld
meti þessar aðstæður
svona, því ella er útilokað,
að menn nái tökum á þessu
viðfangsefni."
Eftir að hafa lesið um-
mæli þeirra Ragnars Arn-
alds, fjármálaráðherra og
fyrrverandi formanns Al-
þýðubandalagsins, og Þor-
steins Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra Vinnuveit-
endasambands íslands,
hljóta menn að velta því
fyrir sér, hvaða stjórn-
málaflokki Vinnuveitenda-
sambandið raunverulega
stjórni. Það er alveg ljóst,
að meiri samhljómur er
með málflutningi tals-
manna Alþýðubandalags-
ins í kjaramálum og tals-
manna Vinnuveitendasam-
bandsins en annarra. Þor-
steinn Pálsson hefur aldrei
lýst slíkum fögnuði með af-
stöðu talsmanna Sjálfstæð-
isflokksins til kjaramála og
hann gerir nú að því er
fjármálaráðherra Alþýðu-
bandalagsins varðar. Og ef
rætt er um viðhorf Morg-
unblaðsins þá er ekki langt
síðan Þorsteinn Pálsson
skrifaði grein í Morgun-
blaðið þar sem hann gagn-
rýndi harðlega ritstjórn-
argreinar Morgunblaðsins
um kjaramál.
Það er því ekki hægt að
komast hjá þeirri niður-
stöðu, að um þessar mundir
ríki a.m.k. eins konar and-
legt bræðralag með for-
ystumönnum Vinnuveit-
endasambandsins og tals-
mönnum Alþýðubandalags-
ins, ef ekki eitthvað áþreif-
anlegra. Er skrifum Þjóð-
viljans kannski ætlað að
beina athyglinni frá nánum
samskiptum forráðamanna
Alþýðubandalagsins og
Vinnuveitendasambands-
ins í yfirstandandi kjara-
deilu?
Bræðralag Alþýðubandalags
og Vinnuveitendasambands
Rey ki avíkurbréf
Laugardagur 15. maí.
Morgunbladid
Umsvif í útgáfustarfsemi Morg-
unblaðsins hafa aukizt verulega á
undanförnum árum. Blaðið hefur
stækkað og nýjungar verið teknar
upp í því skyni að auka á fjöl-
breytni efnis. Má þar nefna
Myndasögur Moggans, sem útgáfa
var hafin á árið 1980 og kemur út
vikulega með litprentuðum
myndasögum og föstudagsblað
Morgunblaðsins, sem kom fyrst út
sl. haust og flytur margvíslegt
efni úr daglega lífinu. Það sem af
er þessu ári hefur vöxtur í starf-
semi biaðsins verið geysilegur.
Fjölgun áskrifenda er yfirleitt
jöfn frá ári til árs en frá ársbyrj-
un hefur hún verið a.m.k. tvöfalt
meiri en venjulega. Þá hefur orðið
mikil aukning í auglýsingamagni.
Til þess að mæta auknum um-
svifum hefur mikil tæknileg upp-
bygging farið fram innan Morgun-
blaðsins á sl. 10 árum. Má segja,
að tæknibylting hafi orðið tvisvar
sinnum á þessum áratug. Þessi
tæknilega uppbygging hefur fyrst
og fremst hvílt á framkvæmda-
stjórn blaðsins og útgáfustjórn,
sem hafa orðið að taka vandasam-
ar ákvarðanir um umtalsverðar
fjárfestingar, svo og á starfs-
mönnum tæknideildar blaðsins.
Morgunblaðið er nú tækni-
væddasta dagblað á íslandi og
raunar hefur blaðið hin síöustu ár
verið í fremstu röð dagblaða á
Vesturlöndum í notkun hinnar
nýju tölvutækni við útgáfu blaða.
Framsýni og víðsýni tæknimanna
í prentiðnaði á ekki sízt þátt í því
að betur hefur gengið að taka
þessa tækni í notkun hér en víða
annars staðar.
Samhliða tæknibyltingu og
auknum umsvifum í útgáfu hefur
starfsemi ritstjórnar Morgun-
blaðsins aukizt mjög. Nú starfa
um 55 manns við margvísleg störf
á ritstjórninni. Tæknivæðingin
hefur náð til ritstjórnarinnar, þar
sem margir af blaðamönnum
blaðsins skrifa nú beint inn á
tölvu. Verkaskipting hefur aukizt
verulega á ritstjórninni. Lengi
hefur verið verkaskipting milli
þeirra blaðamanna, sem skrifa
innlendar og erlendar fréttir. Sú
verkaskipting er nú skýrari en oft
áður. Jafnframt hefur komið til
frekari verkaskipting á öðrum
sviðum. Um þessar mundir er að
taka til starfa innan ritstjórnar-
innar sérstök sunnudagsritstjórn,
þ.e. ákveðinn hópur blaðamanna,
sem eingöngu virmur að útgáfu
sunnudagsblaðs Morgunblaðsins.
Væntir blaðið þess, að það muni
leiða til betra og fjölbreyttara efn-
is. Sérhæfing innan ritstjórnar-
innar hefur einnig aukizt á undan-
förnum árum, sérstaklega á sviði
innlendra frétta. Nú eru starfandi
blaðamenn, sem hafa sérstaklega
sérhæft sig í fréttaskrifum um
kjaramál og efnahagsmál, sjávar-
útvegsmál, viðskiptamál, stjórn-
mál, lögreglu- og dómsmál o.fl.
Þessi sérhæfing á að leiða til betri
frétta.
Morgunblaðið hefur lítið gert af
því að kynna starfsemi sína. Þetta
er að breytast eins og lesendur
hafa ef til vill tekið eftir með aug-
lýsingum í sjónvarpi og blaðinu
sjálfu. Mun þessi þáttur í starf-
semi blaðsins vafalaust aukast á
næstu árum. Framundan eru ný
átök á tæknisviðinu, sem fram-
kvæmdastjórn og útgáfustjórn
hafa unnið að á undanförnum
misserum og munu gera blaðinu
kleift að stórauka umsvif sín á
næstu árum og bæta þjónustu við
lesendur og auglýsendur. Má bú-
ast við, að merki þessa megi sjá á
næstu 2—3 árum.
Frábær
frammmistaða
Frábær frammistaða Davíðs
Oddssonar, borgarstjóraefnis
sjálfstæðismanna í komandi borg-
arstjórnarkosningum, í útvarps-
þætti sl. fimmtudagskvöld hefur
vakið almenna athygli í borginni.
Þar kom hvoru tveggja til, sköru-
legur og rökfastur málflutningur
og víðtæk þekking á borgarmál-
um. Davíð Oddsson sýndi í þessum
þætti, að hann er verðugur arftaki
þeirra manna, sem áður hafa veitt
Sjálfstæðisflokknum forystu í
borgarstjórn Reykjavíkur. Sjálf-
stæðismenn heyja nú markvissa
baráttu fyrir því að endurheimta
meirihluta sinn í borgarstjórn
Reykjavíkur. Sú barátta hefur
ekki verið hávaðasöm, enda gerist
þess ekki þörf. Hins vegar liggja
þeir kostir sem um er að tefla
fyrir reykvíska kjósendur afar
ljóst fyrir.
Talsmenn þeirra þriggja vinstri
flokka, sem nú ráða meirihluta í
borgarstjórninni, hafa allir talað
á þann veg í kosningabaráttunni,
að ljóst má vera, að þeir stefna að
áframhaldandi samstarfi að kosn-
ingum loknum. Samsetning
Kvennalistans er með þeim hætti
að langmestar líkur eru á, að fái
hann fulltrúa kjörna muni þeir
hneigjast til samstarfs við vinstri
flokkana þrjá. Þess vegna er það
rétt, sem Davíð Oddsson sagði á
dögunum, að valið stendur milli
meirihlutastjórnar Sjálfstæðis-
flokksins eða vinstri stjórnar fjög-
urra flokka.
Þeir Reykvíkingar, sem vilja
breyta til um meirihluta i borgar-
stjórninni en horfa ef til vill til
annarra átta en til Sjálfstæðis-
flokksins, hljóta að hugleiða þá
staðreynd, að málflutningur Al-
þýðuflokksins er með þeim hætti í
þessari kosningabaráttu, að hann
stefnir ákveðið í nýtt vinstra sam-
starf. Þetta kemur skýrt fram í
málflutningi Sigurðar E. Guð-
mundssonar og Bjarna P. Magn-
ússonar og Sjöfn Sigurbjörnsdótt-
ir, sem stundum sendir kommún-
istum tóninn, hefur tekið alveg
sérstaklega fram, að vinstra sam-
starf í borgarstjórn hafi gengið
mun betur en samstarf sömu
flokka í ríkisstjórn. Sömuleiðis er
ljóst, að samúð ráðandi afla á
Kvennalistanum er með vinstri
flokkunum, enda hefur einn af
frambjóðendum Kvennalistans
beinlínis lýst því yfir, að fulltrúar
Kvennalistans hljóti að vera
ákjósanlegur samstarfsaðili t.d.
fyrir Alþýðubandalagið. Þeir, sem
vilja skipta um meirihluta í
borgarstjórn verða því að gera sér
ljóst, að atkvæði greitt Alþýðu-
flokki eða Kvennalista er atkvæði
greitt nýjum vinstri meirihluta í
borgarstjórn Reykjavíkur.
í síðustu borgarstjórnarkosn-
ingum vissu Reykvíkingar hvað
þeir höfðu, þar sem Sjálfstæðis-
flokkurinn var, en þeir voru hins
vegar í óvissu um, hvað leiða
mundi af vinstri meirihluta í
borgarstjórn. Kjósendur í höfuð-
borginni tóku áhættuna og kusu
yfir sig vinstri stjórn. í þeim kosn-
ingum, sem framundan eru, er
ekki um neina óvissu að ræða. Nú
Úr Ueknideild Morgunblaðsins. Þar h<
vita Reykvíkingar hvað vinstri
stjórn þýðir í borgarmálum og
þeir hafa langa reynslu af meiri-
hlutastjórn sjálfstæðismanna. Val
kjósenda getur því byggzt á þekk-
ingu á báðum kostum.
Meirihlutastjórn Sjálfstæð-
ismanna einkenndist af tvennu:
annars vegar öflugri framkvæmd-
astefnu en hins vegar af hugm-
yndaríkri félagsmálastefnu. í tíð
Sjálfstæðismanna hafði Reykja-
vík forystu um verklegar fram-
kvæmdir. Ný byggingarhverfi
risu, götur voru malbikaðar, hita-
veita lögð í hús, þjónustustofnanir
byggðar og höfðuborgin var for-
ystuaðili í virkjunarmálum lands-
manna.
I tíð Sjálfstæðismanna hafði
Reykjavík einnig forystu um upp-
byggingu félagslegrar þjónustu.
Vinstri menn hafa jafnan haldið
því fram, að þeir hafi meiri áhuga
á þeim málaflokki en Sjálfstæð-