Morgunblaðið - 30.05.1982, Page 1
92 SÍÐUR
116. tbl. 69. árg. SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sólin hefur ekki langa viddvöl við hafflötinn úr því komið er að maílokum en þetta stundarkorn sem hún minnist við hann er líklega fegursta augnablik
sólarhringsins. Mynd: KÖE.
Landganga suðvestur
af Stanley yfirvofandi
•m i D
London, 29. maí. AP.
Brezku landgöngusveitirnar á Falklandseyjum voru reiðubúnar að
hefja lokaárás á stöðvar argentínska innrásarliðsins við Stanley, þegar
Morgunblaðið fór í prentun í gær. Hafa brezku sveitirnar tryggt sér
fótfestu í Darwin og Goose Green, sem féllu í gær, en þangað hafa
Harrier-þotur verið fluttar, og búist er við herskipum til Darwin, sem
stendur við djúpan fjörð. Að sögn sérfróðra manna er landganga 3.000
hermanna, sem eru um borð í Queen Elizabeth II skammt suðvestur af
Stanley, yfirvofandi, en ef af henni yrði væri herlið Argentinumanna,
sem ver Stanley, umkringt.
Krafta-
verka-
kross
Brighton, 29. maí. AP.
LÖGREGLAN í Sussex fékk
margar upphringingar frá fólki,
sem taldi sig hafa upplifað
kraftaverk, þar sem það sá stór-
an hvítan kross á himni um það
leyti sem þota páfa lenti á
Heathrow-flugvelli.
Fólkið hélt þetta vera skýja-
myndun, en það sem gerst
hafði var að lítil og sérstak-
lega útbúin einkaflugvél hafði
myndað stóran hvítan gufu-
kross við suðurströndina þeg-
ar þota páfa kom inn yfir
ströndina.
Romy Schneider
Schneider
fannst
látin
París, 29. maí. AP.
LEIKKONAN heimsfræga,
Romy Schneider, fannst látin í
íbúd við Rue Barbey de Jouy í
sjöunda hverfi Parísar í morgun.
Lögreglan sagði að leikkonan
hefði fyrirfarið sér, en seinna
var haft eftir læknum að dauð-
dagi hennar hefði verið eðli-
legur, líklega hjartabilun.
Talið er að Schneider, sem var
43 ára, hafi aldrei jafnað sig full-
komlega eftir að 14 ára sonur
hennar, David, fórst af slysförum
í fyrrasumar. Hún lifði einangr-
uðu lífi eftir lát sonarins, og fór
sjaldan út á meðal fólks.
Schneider lætur eftir sig fjög-
urra ára dóttur, Söru, af seinna
hjónabandi. Schneider var fædd í
Vínarborg 23. september 1938.
Hún gekk að eiga þýzka leikarann
Harry Meyen 1966, en þau skildu
1975. Meyen framdi sjálfsmorð
1979, og fékk það mjög á Schneid-
er, að sögn. Hún giftist ljós-
myndaranum Daniel Biazini 1975,
en þau skildu tveimur árum
seinna. Eftir þáð sótti hún félags-
skap til franska leikarans Alain
Delon.
Schneider lék í yfir 50 kvik-
myndum, sem flestar voru teknar
í Frakklandi og á Ítalíu. Kvik-
myndaferill hennar hófst 1953, er
hún fór með hlutverk í myndinni
„Les Lilas Blancs", eða „Liljurnar
hvítu“. Hún bjó í Frakklandi frá
1960.
Heimildir herma að Queen
Elizabeth liggi skammt undan
Stanley, en um borð í skipinu eru
3.000 úrvalshermenn úr fimmta
stórfylki brezka hersins, og sér-
stakar víkingasveitir frá Nepal.
Herstjórnin í Buenos Aires gaf
til kynna í dag að argentínska lið-
ið hefði beðið rnikinn hnekki við
Darwin og Goose Green, en brezk-
ar heimildir herma að mikið
mannfall hafi orðið í argentínska
liðinu þar, meðan Bretar hafi orð-
ið fyrir óverulegu mannfalli.
Að sögn BBC hefur landgöngu-
liðið, sem sækir frá landgöngu-
svæðinu til Stanley náð Douglas
og Teal Inlet, sem er miðja vegu
til Stanley, og herma fregnir að
framsóknin gangi framar vonum,
en á þessu svæði er landið erfitt
yfirferðar.
Varnarmálaráðuneytið brezka
sagði í morgun, að Pucara-flugvél
hefði verið skotin niður við Goose
Green í bardögum á föstudag, og
að Argentínumenn hefðu gert loft-
árásir á brezk herskij), en ekki
hæft neitt þeirra. Aður hafði
ráðuneytið sagt tvær Skyhawk-
þotur hafa verið skotnar niður, og
fimm hermenn hafa fallið í loft-
árásum á San Carlos í gær.
Sérfræðingar í London telja að
erfitt kunni að reynast að ná
Stanley. Talið er að sjö þúsund
manna lið, þar af úrvalssveit tvö
þúsund hermanna, verji borgina.
Argentínska liðið sé vel búið vopn-
um, þ.ám. frönskum AMX-13 og
TAM skriðdrekum með 105 mm
byssum. Þeir telja að þeir muni
einbeita sér að því að leggja undir
sig hæðótt landsvæði vestur af
Stanley og flytja þangað fallbyss-
ur, og að samtímis verði skotið
þaðan á stöðvar Argentínumanna
og gerðar skotárásir úr lofti og af
sjó.
Falklendingur, sem kom til San
Carlos í gær frá Stanley og Fann-
ing Head, sagði, að mikils kvíða
gætti meðal argentínskra her-
manna í Stanley, og hefðu þeir átt
það til að skjóta á hús í Stanley af
ótta við að þar leyndust brezkir
hermenn. Falklendinga hefur ekki
sakað í þessum skotárásum. Hann
sagði Falklendinga í góðu andlegu
jafnvægi eftir að Bretar gengu á
land.
Samtök Ameríkuríkja sam-
þykktu ályktun á fundi sínum í
dag, þar sem aðildarríki Ríó-
sáttmálans frá 1947 eru beðin um
að bjóða Argentínumönnum „þá
aðstoð sem þau telja viðeigandi"
vegna Falklandseyjadeilunnar.
Ályktunin, sem tók miklum breyt-
ingum í umræðum á bak við tjöld-
in, var samþykkt af 17 ríkjum, en
fulltrúar Bandaríkjanna, Chile,
Kólumbíu og Trinidad sátu hjá.
Queen Elizabet II siglir til Falklandseyja. Búizt er við landgöngu sveitanna, sem
um borð eru, fyrir suðvestan Stanley yfir hátíðirnar.
Páfi hvetur til kirkjueiningar
Gengið til kirkju — Jóhannes Páll páfi og Robert Runcie yfirmaður ensku
þjóðkirkjunnar ganga fremstir í fylkingu kardinála, biskupa og klerka til
dómkirkjunnar í Kantaraborg í gær, þar sem páfi hvatti til sameiningar
allra kristinna manna. Simam;nd-AP.
KanUraborg, 29. maí. AP.
„Eftir þessum degi hefur verið
beðið í aldir, kynslóð eftir kyn-
slóð,“ sagði Jóhannes Páll páfi
þegar hann heimsótti Kantara-
borg, þar sem æðsti maður ensku
þjóðkirkjunnar situr, á hápunkti
heimsóknar sinnar til Bretlands.
Við athöfn í kirkjunni hvatti páfi
til sameiningar allra kristinna
manna í anda Krists.
„Ég flyt ykkur ást í þessari
fyrstu heimsókn páfa til Kant-
araborgar," sagði páfi í stólræðu
í dómkirkjunni. Við sama tæki-
færi sagði Robert Runcie, erki-
biskup af Kantaraborg, að sam-
eining kirkjunnar væri „framtíð-
arsýn allra kristinna manna“.
Þegar páfinn og Runcie gengu
í fylkingarbrjósti upp að altari
dómkirkjunnar, söng kór kirkj-
unnar 16. aldar sálm, frá þeim
tíma sem viðskilnaður ensku
kirkjunnar og Vatikansins átti
sér stað á dögum Hinriks átt-
unda.
Páfinn átti fund með Karli
Bretaprins við komuna til Kant-
araborgar, og fyrir utan kirkj-
una höfðu þúsundir safnast sam-
an og hélt fólkið á rauðum og
hvítum blómum, pólsku fánalit-
unum. Páfi gaf sér tíma til að
blessa og kyssa börn úr hópi
viðstaddra.