Morgunblaðið - 30.05.1982, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ1982
Ástandið hroðalegt,
en yonum það besta
— er tónninn í Illinois
Myndir ab.
Það hefði mátt búast við að
matstaður Walt Schneiters á
gatnamótum tveggja hraðbrauta
um 60 km fyrir sunnan Chicago og
rétt fyrir utan Joliet væri þétt set-
inn um tíuleytið á laugardags-
kvöldi. Svo var þó ekki. Country-
söngvarinn Mel Kennedy sat og
spilaði fyrir starfstúlkur staðar-
ins sem sátu við barinn og sötruðu
bjór og eitt par sem var að ljúka
úr glösunum og á leið út. „Ég
heyrði að atvinnuleysi í landinu
væri komið upp í 9,4% og upp
fyrir 10% hér í Illinois," var það
fyrsta sem Schneiter sagði til að
fitja upp á samræðum við aðkom-
endur sem létu fámennið ekki á
sig fá og báðu um bjór. Atvinnu-
leysistölur í Bandaríkjunum fyrir
aprílmánuð höfðu verið birtar í
Washington daginn áður og það
var augljóst að efnahagsörðug-
leikar landsins eru alvarlegir og
ekki aðeins til umræðu í fjölmiðl-
um.
„Ástandið er verra hér í ríkinu
en það var í kreppunni miklu,"
hélt Schneiter áfram. „Matargest-
um hjá mér hefur fækkað jafnt og
þétt síðustu þrjú árin. Fólk hefur
minna fé milli handanna og verð-
ur að horfa í hvern eyri.“ 10,3
milljónir Bandaríkjamanna eru
atvinnulausar og þeim fjölgar
stöðugt. I vikunni eftir að þetta
samtal átti sér stað misstu 24.000
til viðbótar vinnuna, a.m.k. um
stundarsakir, þegar Braniff-flug-
félagið lýsti yfir gjaldþroti. Exx-
on-olíufyrirtækið hætti við meiri
háttar orkuframkvæmdir í Col-
orado og Caterpillar-þungavinnu-
vélafyrirtækið sagði 8000 manns
upp vinnu.
Mel Kennedy starfar á teikni-
stofu Caterpillar í Kankakee á
virkum dögum og kemur fram hjá
Schneiter um helgar. Það var
sannarlega ekki honum að kenna
hversu fámennt var á staðnum.
Hann sagðist geta átt von á að
missa vinnuna hjá Caterpillar
hvenær sem væri, svo slæmt væri
hamingju
Viö óskum vinningshafa nr. 1 innilega til hamingju meö feröa-
vinninginn.
Þúsundasti hver viðskiptavinur Glöggmynda fær feröavinning,
aö eigin vali, meö Feröaskrifstofunni Sögu, í leiguflugi þeirra,
geti hann ráöiö stutta gátu sem lögö verður fyrir hann.
Roy Phillips, tæknistjóri Glöggmynda, afhendir fyrsta vinnings-
hafanum, Eggert Halldórssyni, Stykkishólmi, feröaverölaunin á
flugvellinum viö Stykkishólm.
Viö heimsækjum vinningshafana, hvar á landinu sem þeir eru
búsettir, og færum þeim feröaverölaunin heim.
Nú eru 29 vinningar
eftir í risa-lukkupott-
inum okkar!
Hafnarstræti 17,
sími 22580.
Suöurlandsbraut 20,
sími 82733.
Magasín,
Auöbrekku 44—46,
Kópavogi,
sími 45300.
Fólk á öllum aldri er óánægt með Reagan, stefnu hans og Micbel.
ástandið þar. Einn viðskiptavinur
ranglaði inn á staðinn rétt fyrir
lokun. Hann var feginn að sjá fólk,
sagðist vera eftirlitsmaður hjá
Caterpillar og ekki hafa séð hræðu
í 12 tíma. „Fyrir nokkrum mánuð-
um voru alltaf einhverjir við
vinnu allar helgar en nú hefur sú
vakt verið lögð niður í sparnað-
arskyni," sagði hann.
Caterpillar er stærsta fyrirtæk-
ið í Ulinois. Fyrir tveimur árum
voru 50.000 manns á launaskrá hjá
fyrirtækinu í Illinois og þar af
störfuðu 35.000 manns í og á svæð-
inu í kringum Peoria. Peoria er
300.000 manna borg um 250 km
suðvestur af Chicago. 10 fyrirtæki
þar sögðu alls upp 3800 manns á
síðasta ári og í febrúar misstu 700
manns vinnuna þegar Pabst-
bjórverksmiðjunni var lokað og
hún flutt til Árizona. En erfiðleik-
ar Caterpillar hafa komið verst
niður á íbúum borgarinnar. 5000
manns hafa misst vinnuna þar á
síðustu tveimur árum og 4000
munu bætast við í júní. Þá munu
alls 17500 manns hafa misst vinn-
una hjá Caterpillar, eða 38% af
verkamönnum fyrirtækisins.
Talsmaður fyrirtækisins sagði
að engar fjöldauppsagnir hefðu
átt sér stað hjá Caterpillar á ár-
unum 1960 til 1980. Efnahags-
kreppan gerði seinna vart við sig
hjá þeim en annars staðar vegna
12 vikna verkfalls 1979. Fyrirtæk-
ið þurfti að byggja upp lagerinn
eftir að verkfallið leystist og vinna
var nóg. „En salan í ár hefur hrap-
að miðað við slæma sölu í fyrra,"
sagði Steve Newhouse. „Ástandið
hefur ekki verið svona slæmt síð-
an í kreppunni miklu 1932.“ 58%
af Caterpillar-þungavinnuvélum
eru seldar erlendis en Newhouse
sagði að eftirspurn hefði minnkað
alls staðar, jafnvel í Miðaustur-
löndum þar sem framkvæmda-
starfsemi hefur blómstrað.
Newhouse sagði að verksmiðjur
Caterpillar væru nú um 40 til 50%
undirnýttar. „Við reynum þó að
halda þeim við, endurnýjum tæki
og erum tilbúnir að hefja vinnu af
fullum krafti um leið og eftir-
spurn eykst á ný og efnahags-
ástandið batnar." Hann kenndi
háum vöxtum um ástandið en
sagði að þeir hlytu að lækka fyrr
eða síðar. Caterpillar-fyrirtækið
styður efnahagsstefnu Ronald
Reagans og Newhouse sagði að
það væri augljóst að hún þyrfti
tíma til að hafa tilætluð langtíma
áhrif: „Við áttum von á þessum
erfiðleikum en við eigum líka von
á að dafna í framtíðinni eins og
við gerðum áður fyrr.“
Richard Nixon var vanur að
miða vinsældir sínar við skoðanir
fólks í Peoria. „How does it play in
Peoria?" spurði hann. Ronald
Mel Kennedy fældi engan fri með
söng sínum en staðurinn var svo til
tómur.
Holly hefur haft það niðugt í vinn-
unni undanfarið.
Reagan miðar ekki allt sitt við
Peoria enda kannski eins gott þar
sem margir þar kenna honum um
ástandið. Hann borðaði með göml-
um háskólafélögum sínum í
Peoria í byrjun mai. Verkalýðs-
hreyfingin í borginni og aðrir bar-
áttuhópar notuðu þá tækifærið og
héldu mótmælafund og gagnrýndu
Reagan, íhaldsstefnu hans, og Bob
Michel fulltrúadeildarþingmann
svæðisins. Fundurinn var vel sótt-
ur og fólk á öllum aldri var sam-
taka þegar það hrópaði andmæli
gegn atvinnuleysi.
Michel er leiðtogi repúblikana í
fulltrúadeild bandaríska þingsins.
Hann var fyrst kjörinn á þing
1956 og hefur ávallt sigrað mót-
frambjóðendur sína með þó
nokkrum atkvæðamun. Hann
vann ötull að því í fyrra að koma