Morgunblaðið - 30.05.1982, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ1982
Umsjónarmenn þátUrins Áfram hærra! sem er á dagskrá hljóðvarps kl. 14.00.
SUndandi f.v. Halldóra, Bjórgvin og Hulda, sitjandi Ásdís, Gunnar Haukur
og Rúnar.
Sjónvarp á mánudagskvöfd kl. 22.00:
„Sannur soldát“
- bresk sjónvarpsmynd, byggö á sam-
nefndri skáldsögu Ford Madox Ford
Eðvarð Ingólfsson og Hróbjartur JónaUnsson í Stúdiói 4.
Hljóðvarp á annan í hvítasunnu
Úr stúdíói 4
Á dagskrá sjónvarps á mánudags-
kvöld, annan i hvítasunnu, kl. 22.00 er
bresk sjónvarpsmynd, „Sannur soldát"
(The Good Soldier), byggð á sam-
nefndri skáldsögu eftir Ford Madox
Ford. Leikstjóri er Kevin Billington, en
í aðalhlutverkum Robin Ellis, Susan
Fleetwood, Vickery Turner og Elizabeth
Garvie.
Sagan gerist á árunum fyrir fyrri
heimsstyrjðldina og segir frá tvenn-
um hjónum, breskum og bandarísk-
um, sem hittast árlega í þýskum
heilsuræktarbæ. Allt virðist í lagi hjá
þeim; lifið og hjónabandið fara eftir
hefðbundnum reglum þess tíma. En
eins og þar stendur: Ekki er allt sem
sýnist. Og einn úr hópnum á víst ekki
mjög langt eftir.
Hljóðvarp kl. 14.00:
Áfram hærra!
- kristilegur umræðu-
og tónlistarþáttur
Á dagskrá bljóðvarps kl. 14.00 er
kristilegur umræðu- og tónlistarþátt-
ur: Áfram hærra! Umsjón: Rúnar Vil-
hjálmsson, Gunnar H. Ingimundar-
son, Björgvin I'órrtarson, Hulda
Helgadóttir, Halldóra Ásgeirsdóttir
og Asdís Emilsdóttir.
— í þættinum verður spiluð létt
trúarleg tónlist, sagði Rúnar Vil-
hjálmsson, — en trúarleg tónlist
hefur ekki átt mikinn hljómgrunn í
fjölmiðlum, þó að talsvert sé til af
henni á plötumarkaði. Við kynnum
einnig tvö lög af nýútkominni plötu
Samhjálpar og ræðum við tvo
söngvara af þeim sem leggja þar til
raddir sínar, hjónin Garðar Sigur-
geirsson og Anne Marie Antonsen.
Þá flytur borgfirskur nýstúdent
varnaðarorð til þeirra sem alltaf
segja satt. Rætt verður við ungan
Reykvíking, Ólaf Jóhannsson, en
hann tekur prestvígslu á annan
hvítasunnudag. Ásdís Sæmunds-
dóttir flytur pistil um kristileg
mót, sem hún hefur tekið þátt í.
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup
flytur hugleiðingu um hvítasunn-
una. Loks er að geta stuttra viðtala
við vegfarendur í Austurstræti, um
viðhorf þeirra til kristinnar trúar.
Á dagskrá hljóðvarps á mánudags-
kvöld kl. 20.45 er þátturinn Úr stúdiói
4, með léttblönduðu efni fyrir ungt fólk.
Stjórnendur: Eðvarð Ingólfsson og
Hróbjartur Jónatansson.
— Tónlistin er meginuppistaðan í
þessum þætti okkar, sagði Eðvarð, —
en þetta er eini þátturinn í dag-
skránni um þessar mundir sem
sérstaklega er ætlaður ungu fólki.
Ætlunin er að reyna að fjalla um það
sem er efst á baugi hjá ungu fólki á
hverjum tíma. Nú er t.d. allt íþrótta-
starf að lifna við, og við ætlum að
fylgjast með því í sumar og ýmissi
annarri æskulýðsstarfsemi. í næsta
þætti munum við taka til athugunar
sumaratvinnumál ungmenna og
kanna hvernig ástandið er í þeim efn-
um hérna í Reykjavík. Margeir Pét-
ursson, skákmaður, ætlar að koma og
ræða við okkur um skáklistina, og líf-
ið og tilveruna. Hringt verður í
nokkra íþróttamenn og þeir spurðir
hvernig sumarið leggist í þá til
íþróttaiðkunar og e.t.v. verður eitt-
hvað imprað á því hvernig þeir hafa
undirbúið sig í vetur. Þá verða smá-
skot með kjaftasögum og stuttfrétt-
um.
Loks er að geta þess, að í þættinum
verður leikin hress tónlist, gömul og
ný, þ.á m. lög úr glænýrri plötusend-
ingu frá Bandaríkjunum.
Sjá einnig
Útvarpsdagskrá á bls. 44
Sturtu
klefar
eftir máli
Smíðum sturtuklefa eftir yðar máli, úr áli og akrylgleri.
Þér veljið plastglerið: lit, þykkt og tegund.
Tvöfaldareða þrefaldar hurðir. Opnanlegt
horn eða sturtuklefa með hliðar á þrjá vegu
og rennihurðum. Rennihurðir fyrir ofan baðkarið.
Allt eftir yðar óskum og málum.
Fyrir heimilið, vinnustaðinn, skólann eða heilsuhælið.
Vönduð innlend framleiðsla unnin af
fagmönnum og verðið samkeppnisfært við erlenda
fjöldaframleiðslu.
Hringið, skrifið, eða lítið við.
Hornklefi m/ 2-hluta huröum.
Staölaö mál: 80X80 cm.
io’ 4.
Baökarshlíð m/ 2 hluta
huröum
n 5.
ElcEi1
Sturtuhliö
Sturtuklefi m/ 3-hliöar
og 3-hlutahurð.
6.
Ávallt eitthvað nýtt í
Nýborg
Óskum eftir
umboðsmönnum úti á landi.
ÁRMÚLA 23
Ál- og
Plastdeild
SÍMI
82140
SUNNUDAGUR
30. maí — hvltasunitudagur
17.00 Hvltasunnuguðsþjónusta
Guðsþjónusta Hvítasunnusafn-
aóarins í beinni útsendingu.
Stjórnandi útsendingar: Marí-
anna Friðjónsdóttir.
18.00 Stundin okkar
í þessari stund flytur séra
Rernharóur Guðmundsson
myndskreytta hugvekju um
hvítasunnuna, sýndar veróa
teiknimyndirnar Felix og Kyrj-
álasaga, fluttir dansar sem Unn-
ur Guðjónsdóttir hefur samió
fyrir Listdansskóla Þjóðleik-
hússins. Franskir listamenn úr
Theatre du Fust sýna atriði.sem
fiutt voru á Leiklistarhátíð
brúðuieikhúsanna. Sigurður
Sigurðsson, ritstjóri tímaritsins
Áfangar, leiðbeinir ungu hjól-
reiða-og göngufólki um skoðun-
arverða staði í nágrenni borgar-
innar. Hijómsveit úr Kópavogi,
sem þar hefur unnið hæfileika-
verðlaun, flytur lagið Te fyrir
tvo. Umsjón: Bryndís Schram.
Stjórn upptöku: Viðar Víkings-
son
18.50 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmali
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku
Umsjón: Magnús Bjarnfreðs-
son.
20.55 Musica Antiqua
Musica Antiqua leikur verk frá
17. og 18. öld i Kristskirkju.
Flytjendur eru: Signý Sæm-
undsdóttir, sópran, Camilla
Söderberg, blokkflautur, Mika-
el Sheldon, fíðla, Heiga Ing-
ólfsdóttir, semball og Olöf S.,
Óskarsdóttir, viola da gamba.
Stjórn upptöku: Tage Ammen-
drup.
21.25 Byrgið
Þriðji þáttur.
I>ýðandi: Jón O. Edwald.
22.15 Með lögguna á hælunum
(Sugerland Express)
Bandarisk bíómynd frá 1974.
Leikstjóri: Steven Spielberg.
Aðalhlutverk: Goldie Hawn,
Ben Johnson, Michael Sacks og
William Atherton.
Myndin segir frá konu, sem
lætur eiginmanninn flýja úr
fangelsi. Þau ætla að ná í barn
sitt, sem á að taka frá þeim, en
lögreglan í Texas er á hælunum
á þeim.
I>ýðandi: Björn Baldursson.
MHMHMDagskrárlok^^^^^^^^
MÁNUDAGUR
31. mai — annar hvítasunnudagur
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Tommi og Jenni
20.45 íþróttir
Umsjón: Bjarni Felixson.
21.15 A léttu nótunum
Biandaður skemmtiþáttur með
innlendum skemmtikröftum.
Leikin verður létt tónlist, dans-
að og spjallað.
Umsjón: Páll Magnússon.
Stjórn upptöku: Tage Amm-
endrup.
22.00 „Sannur soldát"
(The Good Soldier)
Bresk sjónvarpsmynd byggð á
skáldsögu eftir Ford Madox
Ford.
Leikstjóri: Kevin Billington.
Aðalhlutverk: Robin Ellis, Sus-
an Fleetwood, Vickery Turner,
Elizabeth Garvie.
Sagan segir frá tvennum hjón-
um, öðrum frá Englandi en hin-
um frá Bandaríkjunum, sem
hittast árlega í þýska heilsulind-
arbænum Bad Nauheim.
Allt er slétt og fellt á yfirborð-
inu, en ekki er allt sem sýnist.
Þýðandi: Jón O. Edwald.
23.45 Dagskrárlok
ÞRIÐJUDAGUR
1. júni
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Bangsinn Paddington
Tólfti þáttur. Þýðandi: Þrindur
Thoroddsen. Sögumaður: Mar-
grét HelgX Jóhannsdóttir.
20.40 Fornminjar á Biblíuslóðum.
Níundi þáttur. Ríkinu skipt.
Leiðsögumaður: Magnús Magn-
ússon. Þýðandi og þulur: Guðni
Kolbeinsson.
21.25 Hulduherinn
Tiundi þáttur. Guð á raargan
gimstein þann ... í þessum
þætti standa félagar Liflínu
frammi fyrir sérstæðum vanda.
Þeir verða að reiða fram fjár-
muni til þess að fá illa særðan
flóttamann í sínar hendur — og
seljendurnir eru börn. Þýðandi:
Kristmann Eiðsson.
22.15 Hvernig er að fara á eftir-
laun?
Umræðuþittur i tiiefni af ári
aldraðra. Umræðum stýrir Stef-
án Jón Hafstein, fréttamaður.
23.05 Dagskrárlok