Morgunblaðið - 30.05.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ1982
23
Tæknimenn
fresta upp-
sögnum sínum
TÆKNIMENN hjá Ríkisútvarpinu
hafa ákveðið að fresta uppsögnum um
óákveðinn tíma. Tæknimenn sögðu
upp fyrir þremur mánuðum vegna
óánægju með laun og áttu uppsagnir
þeirra að taka gildi á þriðjudag, 1.
júní. Fulltrúar fjármálaráðuneytisins
áttu á föstudag fund með fulltrúum
Starfsmannafélags Ríkisútvarpsins
um sérkröfur félagsins. Á þeim fundi
áttu tæknimenn fulltrúa.
„Þar sem viðræður eru komnar í
gang þá var ákveðið að fresta upp-
sögnum um óákveðinn tíma. Menn
töluðu af skilningi um stöðu mála
en ekkert tilboð hefur komið fram,“
sagði Runólfur Þorláksson, tækni-
maður hjá Ríkisútvarpinu, í sam-
tali við Mbl. Nýr fundur hefur verið
boðaður á þriðjudag.
IGNIS - býöur
nokkur betra
verö?
Djúpfrysti
skapar
140 l 160 L 180 L 220 L 270 L L 3 340 L 265 L \ J 310 L 350 L 1 l 410 L J 1 1 300 L l 380 L 1 1 100 L
h 85 cn H 85 cm H 104.5 cm H 113.5cm H 133.5 cm H 144.5 cm H 139 cm H 159 cm H 160 cm H 160 cm H 165 cm H 180 cm H 52.5 cm H 80.5
B 45.5 B 55 B 47.5 B 54.8 B 54.5 B 59.5 . B 55 B 55 B 59 6 B 67.6 B 55 B 60 B 52,5 B 76 5
D 60 D 60 " D 60 D 60 D 60 D 64 D 58.5 D 58 5 D 60 D 60 d 60 D 60 D 60 D 52.5
360 L
H 180 cm
B 60
D 60
RAFIÐJAN H.F.
Kirkjustræti 8 Sími: 19294
Seðlabanka-
hússbyggingin:
Vignir H.
Benediktsson
með lægst til-
boð í 2. áfanga
SEÐLABANKINN hefur undirritað
samning við Vigni H. Benediktsson
múrarameistara f.h. Steintaks hf. um
að byggja 2. áfanga Seðlabankahúss-
ins við Arnarhól. Vignir átti lægsta
tilboð af sex, sem var um 21 og hálf
milljón kr.. Hæsta tilboð var liðlega
25 millj. kr. en áætlaður kostnaður
var 23 millj. kr.
Að sögn rekstrarstjóra Seðla-
bankans, Stefáns G. Þórarinssonar
er 2. áfangi framkvæmdanna upp-
steypa og frágangur bifreiða-
geymslu á tveimur hæðum, einnig
undirstaða og botnplata sjálfs
Seðlabankahússins. Þessum fram-
kvæmdum skal lokið fyrir miðjan
febrúarmánuð nk. í samningum við
Reykjavíkurborg á bankinn að skila
bílageymsluhæðunum frágengnum
tveimur árum eftir samþykkt teikn-
inga. Bifreiðastæði í geymslunni
verða fyrir 175 bíla.
Borgarráð:
Staðfesti
samning
við hjúkrun-
arfræðinga
BORGARRÁÐ staðfesti á fundi sínum
á lostudag samning borgarinnar og
hjúkrunarfræðinga, en fulltrúar borg-
arinnar i launamálanefnd undirrituðu
hann með fyrirvara á fimmtudag.
Hér er um að ræða tvennskonar
kjarasamninga, sérkjarasamning
sem gerður var á grundvelli aðal-
kjarasamnings, en hann samsvarar
kjaranefndarúrskurði ríkisins og
samning samhljóða þeim sem ríkið
gerði við hjúkrunarfræðinga á dög-
unum.
Lauk stúdents-
prófi á 2 árum
VEGNA fréttar í Mbl. sl. föstudag
um skamman námstíma nýstúdents
við MH hefur athygli Mbl. verið
vakin á því, að vorið 1974 útskrifað-
ist Helgi Þorleifsson eftir aðeins
tveggja ára nám í skólanum. Helgi
var þá 17 ára gamall og var í
stærðfræðideild. Helgi er um þess-
ar mundir að ljúka námi í stærð-
fræði í Þýzkalandi. Samkvæmt
sömu heimildum, er námstími
Helga sá stysti, sem vitað er um í
stúdentsnámi hér.
Allir kostir
vönduöustu einingahúsa
-og sveigjanleiki aö auki
Nú býðst ný lausn fyrir þá sem gera
bæði kröfur um vandað og fallegt
húsnæði á hagkvæmu verði - og vilja
fullnægja óskum og þörfum fjöl-
skyldunnar. Sveiguanleikinn varðar
bæði stærð, efni, innréttingu, liti og
allan búnað og byggist á einingakerfi
hönnuðu af arkitektunum Torben Rix
og Leif Jensen m.a.a..
Flexplan húsin eru árangur af þró-
unarstarfi og samvinnu danskra og
íslenskra aðila. Hönnun og notkun
byggingarefna er nýstárleg og í fyllsta samræmi við
kröfur nútímans - enda hlaut húsið 1. verðlaun í sam-
keppni tímaritsins „Bo Bedre"
Tveir sýnilegir límtrésdreglar bera hallandi loftið sem er
klætt panel. Allir innveggir eru vandlega hljóð-
einangraðir og klæddir með panel
eða öðrum hefðbundnari klæðning-
um. Húsin eru rækilega einangruð og
þrefalt gler er í öllum gluggum. Gólf-
in eru steypt og frjálslegt val um gólf-
efni. Allar innréttingar fylgja og eru
húsin búin fullkomnum tækjum í
baðherbergjum og eldhúsi. Hægt er
að fá húsin tilbúin til notkunar með
gardínum, lýsingu, húsgögnumo.fl.
Aukeinnarhæða einbýlishúsa gefst
kosturá2ja hæða húsum, raðhúsum,
parhúsum og bílskúrum.
Skjólbær sf. veitir ráðgjöf innanhúsarkitekta og hvers
konar fyrirgreiðslu, þ.á.m. uppsetningu, undirbygg-
ingu og aðstoð við lóðaútvegun.
Síðast en ekki síst ber að hafa í huga tímasparnaðinn
sem þessi byggingarmáti hefur í för með sér.
flexplan
-húsin
(\<í>
SKJÓIBÆR SF.
Borgartúni 29
Sími29393