Morgunblaðið - 30.05.1982, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1982
1 Innrétting í Rekord. 2. Mœlaborö meC amp-hita-eyðslu og snúningshraOamœlum 3. Rekord 4 dyra
Hvort sem þú ekur sjálíur eða
lœtur aka þér, nýtur þú þess að
eiga þœgilega og örugga ferð í
Opel Rekord.
í Rekord er meðal annars:
Glœsilegt velúráklœBi á sœtum og innan á hurðum. kortavasar í hurðum, 4ja spegla stýrí, vökva-
stýrl. höíuðpúðar. að íraman teppalögð farangursgeymsla, 2 fjarstýrðir útispeglar. hlílðarlistar á
hliðum, vönduð hijóðeinangrun, upplýstur spegill í sólskiggni, litað öryggisgler, styrkt fjöðrun með
loftdempurum. i Berllna; álilegur 14". höfuðpúðar að aftan, raímagnslœsingar og upphalarar á
rúðum, hœðarstilling í ökumannssœtin o.m.íl.
$ VÉLADEILD SAMBANDSINS
Ármúla 3 Reykjavík MÚLAMEGIN) Sími38900
Þorsteinn S. Blöndal:
Varði doktorsritgerð
við Uppsalaháskóla
ÞORSTEINN Sölvason Blöndal
varði sl. þriðjudag doktorsritgerð við
báskólann í Uppsölum I Svíþjóð.
Þorsteinn er sérfræðingur í lungna-
sjúkdómum og fjallaði ritgerð hans
um rannsóknir á kjarnasýrum I
hingnakrabbameinsfrumum og
hvernig hagnýta má niðurstöður
þeirra rannsókna við meðferð sjúkl-
inga með lungnakrabbamein.
Þorsteinn er sonur hjónanna
Sölva Blöndal hagfræðings og
Elsu Blöndal. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR 1966, læknaprófi
frá HÍ 1973 og sérfræðiprófi í
lungnalækningum frá háskóla-
sjúkrahúsinu í Uppsölum 1979, en
þar stundaði hann framhaldsnám
og störf.
Mbl. ræddi við Þorstein símleið-
is til Uppsala í vikunni í tilefni
þessa. Við báðum hann fyrst að
lýsa í nokkrum orðum innihaldi
ritgerðarinar. Hann sagði: „Vissar
breytingar í magni kjarnasýra
verða bæði í góðkynja og illkynja
æxlum. Þetta höfum við rannsak-
að á lungnadeildinni í Uppsölum í
samstarfi við meinafræðideildina
á sama spítala. í stuttu máli sagt
höfum við fundið það út að með
því að mæla kjarnasýru eða
DNA-magnið í krabbameinsfrum-
unum kemur í ljós að það er
stundum aukið í illkynja æxlum
en í góðkynja æxlum er það nán-
ast í sama magni og heilbrigðum
frumum. Hvert er þá hið hagnýta
notagildi kann einhver að spyrja. í
stuttu máli má segja að hagnýtt
notagildi sé þríþætt. í fyrsta lagi
verður sjúkdómsgreiningin léttari
og öruggari við vissar tegundir af
æxlum. Þá auðveldar það mat á
horfum sjúklingsins að mæla
kjarnasýrumagnið og i þriðja lagi
er hægt að byggja val meðferðar á
traustari grunni."
Þorsteinn sagði einnig, að
niðurstöður þessara rannsókna
yrðu engan veginn til þess að út-
rýma þeim aðferðum sem nú væri
beitt við meðferð þessa sjúkdóms.
Alltaf væri bezt að hafa sem flest-
ar aðferðir og nota þær saman.
Við spurðum Þorstein í lokin,
hvort við mættum vænta starfs-
krafta hans hér heima. Hann
svaraði: „Við erum að flytja heim
alveg á næstunni og ég mun taka
til starfa í byrjun júlímánaðar á
lyflæknisdeild Landspítalans.
Dr. Þorsteinn S. Blöndal
Úr myndinni Forsetarániö. Hryðjuverkamaðurinn Roberto Assanti (Miguel
Fernandes) hefur hlekkjað sig við forsetann (Hal Halbrook) og hótar að
sprengja þá báða í loft upp, verði ekki farið að kröfum hans.
Nýja bíó frumsýnir Forsetaránið
NÝJA BÍÓ frumsýnir kvikmyndina forseta Bandaríkjanna og skila
„Forsetaránið" (The kidnapping of • gegn háu lausnargjaldi. Með aðal-
the president). Þetta er ný banda- hlutverk fara Hal Halbrook,
rísk-kanadísk kvikmynd í litum og William Shatner, Van Johnson,
fjallar hún um tilraun til að ræna Ava Gardner og Miguel Fernand-
es.
TENERIFE
Hin fagra
sólskinsparadís
Sjórinn, sólskiniö og skemmtanalífiö eins og fólk vill hafa þaö. Stórkostleg náttúru-
fegurð og blómadýrö. Fjöldi skemmtilegra skoöunarferöa. Lofthiti 23—28 gráöur.
Hvar annars staóar er svona ódýrt?
22 dagar kr. 8.760. 28 dagar kr. 9.985.
22 dagar á lúxus 4ra stjörnu hóteli meö morgunmat, hádeg-
ismat og kvöldmat kr. 11.345. 28 dagar kr. 12.890. (jú, jú,
flugferöirnar eru líka innifaldar.)
Frítt fyrir börn
Okkur hefir tekist að fá alveg frítt fyrir prinsinn eöa prinsess-
una aö 12 ára aldri í allar feröirnar í ibúö meö tveimur
fullorönum. Brottför alla þriöjudaga frá 7. júní. Þér veljiö um
dvöl í tvær, þrjár eöa fjórar vikur. En pantiö snemma, þvi
plíssér takmarkaö á þessum líka kostakjörum.
AORAR FERÐIR
OKKAR
Grikkland — Aþenuatrendur, alla
Amsterdam, lúxuavika, alla föatudaga
Franaka Rivieran, fleata laugardaga
Landiö helga og Egyptaland, ágúat og október
Braailíuferðir, aept., október, nóv.
Malta, laugardaga
///-lírtOUr (Flugferöir)
Aóalstræti 9,
Miðbæjarmarkaðnum 2. h.
Símar 10661 ag 15331.
Morðhelgi
frumsýnd í
Bíóhöllinni
ANNAN í hvitasunnu frumsýnir Bíó-
höllin kvikmyndina „Morðhelgi"
(Death Weekend).
Myndin fjallar um nýríkan
tannlækni, sem eyðir helgarfríum
sínum í sumarbústað í fylgd fag-
urra stúlkna. Eina helgina lenda
tannlæknirinn og þáverandi vin-
kona hans í útistöðum við fjóra
fanta og áður en yfir lýkur gerast
hræðilegir atburðir.
Með aðalhlutverk fara Brenda
Vaccaro, Don Stroud og Chuck
Shamata. Framleiðendur myndar-
innar eru Reitman, Dunning og
Link og höfundur og stjórnandi
William Fruet.