Morgunblaðið - 30.05.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1982
37
Koivisto, forseti Finnlands, þakkar Agli Friðleifssyni fyrir söng kórsins.
Vel heppnuö söng-
ferð kórs Öldutúns-
skóla til Finnlands
— Söng meöal annars fyrir Koivisto forseta
Kór Öldutúnsskóla, ásamt stjórnanda
sínum, Agli Frióleifssyni, kom á þrióju-
daginn var úr viku tónleikaferð til Finn-
lands. Þar átti m.a. fyrir Öldutúnsskóla-
kórnum að liggja að verða fyrstur kóra til
að sækja Koivisto Finnlandsforseta heim.
„Tildrög ferðarinnar voru þau að Kór
Óldutúnsskóla fékk boð um að taka
þátt í alþjóðlegu kóramóti í Lahti í
Finnlandi. Kórinn fór fyrst til Tapiola
en þar er starfandi einn þekktasti
barnakór heims, Tapiola-kórinn, sem
kom hingað til íslands fyrir tveimur
árum og margir minnast fyrir ógleym-
anlegan söng.
Morgunblaðið ræddi við Egil Frið-
leifsson, stjórnanda Kórs öldutúns-
skóla, og kvað Egill kórinn hafa haldið
fyrstu tónleika sína í Finnlandi í kirkj-
unni í Tapiola og hafa hlotið mjög góð-
ar undirtektir og fengið lofsamleg um-
mæli fyrir fágaðan söng. í Tapiola-
kirkjunni, sem er þekkt fyrir góðan
hljómburð, tók finnska útvarpið upp
söng kórsins.
Frá Tapiola hélt kórinn síðan til
Seinájoki sem er 25 þúsund manna bær
norðvestur af Helsinki og m.a. frægur
fyrir kór sem getið hefur sér mjög gott
orð á síðastliðnum árum og hefur t.d.
verið valinn til að taka þátt! alþjóðlega
kóramótinu í Hong Kong seinna í
sumar. „Þar sem að við erum einnig á
leiðinni á þetta sama mót var tilvalið
að við hittumst. Og ég sé sannarlega
ekki eftir því að við kynntumst, þv! það
verður ánægjulegt að hitta vini sína
hinum megin á hnettinum hjá andfætl-
ingum vorum,” sagði Egill.
— Er eitthvert atvik þér sérstaklega
minnisstætt úr ferðinni?
„Já, í Seinájoki var okkur færð mjög
táknræn gjöf sem snart okkur djúpt.
Það var vasi sem er þannig í laginu að
hann virðist „ganga í öldum", hannaður
af Alvar Aalto, en orðið aalto, nafnið
hans, þýðir alda og þar sem við erum
frá Öldutúnsskóla er afskaplega falleg
hugsun á bak við þessa gjöf.
I Seinájoki héldu kórarnir svo sam-
eiginlega tónleika og enduðu með að
syngja saman. Þaðan héldum við svo til
Lahti. Á mótinu, sem stóð í 2 og hálfan
dag, voru 15 kórar með rúmlega 800
þátttakendur. Kórinn okkar hlaut
ánægjulegar móttökur og mynd af hon-
um og grein um hann birtist á forsíðu
stærsta blaðsins í Lahti.
í Lahti komum við fjórum sinnum
fram og einn konsertinn var tekinn upp
af finnska útvarpinu og höfð viðtöl
bæði við mig og krakka úr hópnum.
Mótið endaði með að allir kórarnir
söfnuðust saman í stórri íþróttahöll og
það var voldugur söngur þegar allir
kórarnir stemmdu raustir sínar sam-
an.“
Inflúensa setur
strik í reikninginn
Egill kvað hafa verið farið að bera á
lasleika hjá sumum krakkanna síðasta
daginn í Lahti og hefði ein telpan verið
orðin svo illa haldin að hún hefði ekki
getað tekið þátt í hljómleikahaldi, en
orðið að liggja í rúminu. „Eftir lok
tónleikanna í Lahti fékk ég síðan þau
óvæntu skilaboð að forseti Finnlands,
Mauno Koivisto, og kona hans, Tellervo
Koivisto, byðu kórnum til sfn daginn
eftir.
Um nóttina vaknaði ég illa haldinn
af inflúensu með bullandi hita. Um
morguninn frétti ég svo að nokkrar
stúlkur til viðbótar hefðu veikst, og þar
af væru tvær þeirra svo illa haldnar að
þeim væri ekki treystandi til að fara í
forsetaheimsóknina. Endirinn varð
samt sá að allir héldu af stað í þeirri
von að allt gengi vel."
— Og hvernig fór þetta svo?
„Nú, þegar til forsetahallarinnar
kom tók á móti okkur siðameistari for-
seta og síðan hófst athöfnin í þessum
íburðarmiklu húsakynnum með himn-
eskum hljómburði. Athöfnin var af-
skaplega formleg Kórinn söng fyrst ís-
lenskt þjóðlag. Eg flutti ávarp til for-
setahjónanna þar sem ég flutti þeim
þakkir okkar og árnaðaróskir. Ein telp-
an úr hópnum færði forsetahjónunum
gjöf. Forsetin þakkaði sönginn og bað
fyrir kveðjur og árnaðaróskir til ís-
lendinga. Eftir það sungum við eitt lag
á finnsku. Það leið yfir tvær veikustu
telpurnar vegna inflúensu á meðan á
athöfninni stóð og á heimleiðinni voru
þær svo alltaf að reyna að muna hvern-
ig forseti Finnlands hefði litið út.
Við áttum siðan tvo ánægjulega daga
í Kaupmannahöfn. Rétt áður en að far-
ið var heim þaðan gáfu nokkrar telpur
í kórnum mér rósavönd ! þakklætis-
skyni fyrir ferðina. Mér þótti vænt um
þessa hugulsemi telpnanna og gætti
rósanna vandlega á Íeiðinni heim. En
þegar til Keflavíkur kom voru rósirnar
hrifsaðar af mér og þær brenndar á
þeirri forsendu að það geisaði gin- og
klaufaveiki i Danmörku. Við skulum
bara vona að rósabruninn í Keflavfk
hafi bjargað blessuðum kúnum okkar,"
sagði Egill að lokum.
Kagnheiður Guðmundsdóttir færir forsetahjónunum giafir.
Laugavegi30
Vid eigum
1 árs afmæli
í því tilefni veitum viö
10—30% afslátt
í 3 daga.
Þriöjudag, miövikudag og fimmtudag.
OUU OG LOFTSIGTI
í fólksbíla, vinnuvélar og önnurtæki.
Hringið og leitið upplýsinga.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633
ÞETTA
ER...
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ I
MORGUNBLAÐINU