Morgunblaðið - 30.05.1982, Qupperneq 38
<NI CO ^
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ1982
Karlakórinn Þrestir.
Verötryggð spariskírteini ríkissjóös eru tvímæla-
laust ein arðbærasta og öruggasta fjárfestingin,
sem völ er á í dag. Athygli er vakin á eftirfarandi
atriðum:
IVextir eru nú 3,5% á ári og jafnir allan lánstím-
ann.
Skírteini í 1. flokki 1982 verða innleysanleg að
þremur árum liðnum, þ.e. frá 1. mars 1985. Á bindi-
tíma hefur jafnan verið hægt að selja spariskírteini
með skömmum fyrirvara á hinum almenna
markaði.
Fjárfesting í spariskírteinum er mun fyrirhafnar-
og áhyggjuminni en fjárfesting í fasteign og skilar
auk þess öruggum arði.
Skv. gildandi lögum um tekjuskatt og eignarskatt
kemur ekki í neinu tilviki til skattlagningar á vaxta-
og verðbótatekjur af spariskírteinum hjá mönnum
utan atvinnurekstrar.
Full verðtrygging. Háir vextir og umfram
allt örugg fjárfesting.
Kynnið ykkur bætt kjör á verðtryggðum
spariskírteinum ríkissjóðs og gerið saman-
burð við aðra ávöxtunarmöguleika.
Útboðslýsingar liggja frammi hjá sölu-
aðilum, sem eru bankar, sparisjóðir og
nokkrir verðbréfasalar.
A
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Árlegir
samsöngvar
Karlakórs-
ins Þrasta
ÁRLKGIR samsöngvar Karlakórsins
„Þrasta“ verða í Bæjarbíói, Hafnar-
firði, dagana 1., 2., 4. og 5. júní nk.
Á efnisskrá verða m.a. íslensk
og erlend þjóðlög, lög eftir Friðrik
Bjarnason, Sigfús Einarsson, Inga
T. Lárusson, Emil Thoroddsen og
Grieg og lög úr söngleikjum. Ein-
söngvarar með kórnum verða Inga
María Eyjólfsdóttir og John
Speight og á tónleikunum munu
þau að auki syngja dúetta úr óper-
um.
Kórinn var stofnaður 19. febrú-
ar 1912 af Friðrik Bjarnasyni,
tónskáldi, og er elsti starfandi
karlakór landsins. í tilefni 70 ára
afmælisins fer kórinn í söngför til
Skotlands 25. júní nk. og mun
syngja á tónleikum í Glasgow og
Edinborg.
Söngstjóri karlakórsins
„Þrasta“ er Herbert H. Ágústsson
og undirleikari Sveinbjörg Vil-
hjálmsdóttir.
„Bíllinn“ í
nýrri útgáfu
Bókaútgáfan Iðunn hefur gefið út
fjórðu útgáfu bókarinnar Bíllinn eft-
ir Guðna Karlsson, forstöðumann
Bifreiðaeftirlits ríkisins. Bókin er
aukin og endurskoðuð, bæði megin-
mál, myndir og viðgerðatöfhir.
í frétt frá útgáfunni segir m.a.:
„Meðal nýjunga má nefna upplýs-
ingar um viðhald á hjólbörðum,
nýjan tengibúnað, transistor-
kveikju, rafmagnsbifreiðir og
beina inndælingu á bensíni. Þá er
greint frá nýjungum í hemlabún-
aði, meðal annars er sagt frá nýj-
um hemlum, þar sem ekkert
snertiviðnám myndast milli flata
og ekkert slit á hemlaborðum.
Viðgerðatöflur hafa verið færðar
til árgerðanna 1982 og bætt inn í
nýjum tegundum bifreiða."
Bókin er 346 blaðsíður í stóru
broti og bundin í snyrtilegt band.
Prisma sf. prentaði.
HVADCR AÐBILSUM?
ÍPARIO EU3SNEVTI
JPARI6 ViOCERÐARKOSTNAÐ
AUT UM TÆKNIBUNAÐ
AUT UM VI0HAI.0 OC REKSTUR
IOUNN