Morgunblaðið - 30.05.1982, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiöslunni er
83033
orgjMttMoMíb
SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1982
1.200 manns
í Húsafelli
í fyrrinótt
Vetrarveður er nú
norðanlands og austan
og illa viðrar til
útilegu um allt land
Ferðamannastraumurinn sunnan-
lands um hvítasunnuhelgina hefur
aðallega legið til Borgarfjarðar og í
Húsafell og aðfaranótt laugar-
dagsins voru um 1.200 manns í tjöld-
úm í Húsafelli. Vegna aðstöðuleysis
hefur svæðinu nú verið lokað, en
ekki voru þar teljandi ólæti eða
óhöpp þrátt fyrir talsverða ölvun. Að
sögn Veðurstofunnar viðrar illa fyrir
útivist um helgina, kalt um allt land
og snjókoma og frost víða austan-
lands.
Að sögn lögreglunnar í Borg-
arnesi, sem var með gæzlu í Húsa-
felli, var nokkuð um ölvun, en
ólæti ekki teljandi, þó voru 7 tekn-
ir grunaðir um ölvun við akstur.
Kristleifur Þorsteinsson, hrepp-
stjóri í Húsafelli, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að hann
teldi að um 1.200 manns hefðu
verið í tjöldum við Húsafell
aðfaranótt laugardagsins og
vegna þess að ekki væri hreinlæt-
is- eða þjónustuaðstaða fyrir
fleiri, hefði hann nú lokað tjald-
svæðinu. Hann sagði einnig að
talsvert hefði verið um ölvun, en
ekki borið mikið á ólátum. Svalt
væri í veðri og ekki væri ráðlegt
fyrir fólk að fara í útilegur nú,
nema það væri sérlega vel til þess
búið.
Á veðurstofunni fengust þær
upplýsingar að nú væri alls staðar
kalt á landinu og illa viðraði til
útilegu. Norðanlands og austan
hefði hitastig í gær verið í kring-
um frostmarkið, víðast hvar
slydduhrið og á nokkrum stöðum
hefði snjó fest og væri nú vetrar-
veður á þessum slóðum. í Æðey
hefði jörð verið flekkótt og víða
austur um landið. Á Kambanesi
var í gær frost og 11 sentimetra
snjódýpt og á Dalatanga var snjó-
dýptin 4 sentimetrar. Upp til
fjalla var enn kaldara og meiri
snjódýpt. Sunnanlands var heldur
hlýrra og í Reykjavík og á Hellu
var hitinn klukkan 9 í gærmorgun
7 stig og 5 á Síðumúla. Búizt var
við því að áframhaldandi austan-
átt yrði um hvítasunnuhelgina en
heldur hlýnaði í veðri.
. ' ■
BÍLAINNFLUTNINGUR hefur verið með mesta móti það sem af er árinu, að sögn Kjartans Jónssonar hjá Eimskip. Gegnumstreymi hefur
jafnframt verið mikið hjá skipafélögunum, þar sem sala nýrra bíla hefur verið mikil. Kristján Einarsson, ljósmyndari Mbl., tók þessa mynd úr
lofti yfir Borgarskálaportinu við Sigtún.
Dollaraverð heftir hækk-
að um 32,4% frá áramótum
Dollarinn hækkaði hins vegar um 31% allt árið 1981
DOLLARAVERÐ hefur hækkað
um liðlega 32,4% frá áramótum, en
síðasta dag ársins var sölugengið
skráð 8,185 krónur, en á föstudag
var það skráð 10,832 krónur. Allt
árið í fyrra hækkaði dollaraverð
hins vegar um liðlega 31%.
Frá áramótum hefur verð á
brezka pundinu hækkað um lið-
lega 24,2%, eða úr 15,652 krónum
hvert pund í 19,443 krónur, en
þannig var gengið skráð á föstu-
dag.
Danska krónan hefur hækkað
heldur minna í verði frá áramót-
um, eða um tæplega 22%. Hver
króna var skráð á 1,1189 krónur
síðasta dag ársins, en er nú skráð
á 1,3642 krónur.
Sjö menn ákærðir
vegna bílasvika
EMBÆTTI ríkissaksóknara hefur gefiö út ákæru á hendur sjö mönnum
búsettum í Reykjavík vegna ætlaðra svika í bílaviðskiptum. Mennirnir festu
kaup á bílum af einstaklingum gegn víxlum, sem svo féllu í gjalddaga og
hafa aldrei verið greiddir. Þeir endurseldu bilana, þá iðulega á lægra verði
og gegn staðgreiðslu að hluta eða að öllu leyti, og komust þannig yfir
umtalsvert fé.
Mennirnir eru ákærðir fyrir að
hafa haft í frammi svik í kaupum
á alls um 20 bílum. En til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins komu til
rannsóknar mun fleiri tilvik, að
minnsta kosti annar eins fjöldi
Mennirnir eru ákærðir fyrir fjár-
svik; það er brot á 248. grein hegn-
ingarlaganna og skjalafals. Þeir
föisuðu nöfn á víxla, en einnig
skrifuðu þeir sjálfir upp á víxla,
en eiga það allir sammerkt að vera
eignalausir og því ekki hægt að
ganga að þeim. Yfirleitt uggði fólk
ekki að sér fyrr en fyrsti víxill féll
í gjalddaga, en þá var bíllinn seld-
ur og ekkert hægt að gera í málinu.
Hér er um prófmál að ræða; í
hvaða mæli svona viðskipti þurfa
að vera til þess að sviksamlegur
hugur sé sannaður. Mennirnir
hafa allir lýst því yfir, að þeir hafi
ætlað að greiða hina föllnu víxla
og að það muni gert. Þeir hafa
hins vegar ekki greitt neina víxla
og ekki er sýnilegt að þeir hafi
fjárhagsiegt bolmagn til þe3s.
Viðskipti þessi áttu sér sjaldnast
stað á vegum bílasala heldur í
gegn um smáauglýsingar Dag-
blaðsins & Vísis og þá oft um helg-
ar þegar ekki var hægt að komast
í vanskilaskrár eða veðbókarvott-
orð.
„Við viljum láta reyna á hvað
menn mega ætla gjaldfærni sína í
þessum efnum og hvaða varúðar
megi krefjast í sambandi við
svona viðskipti," sagði Jónatan
Sveinsson, saksóknari, í samtali
við Mbl.
„Það var mjög áberandi í þess-
um viðskiptum að mennirnir höfn-
uðu alltaf tilmælum seljenda um
að fá veð í bílum. Það er full
ástæða að vara við bílaviðskipt-
um, sem fara fram í allríkum
mæli í gegn um smáauglýsingar,“
sagði Jónatan Sveinsson.
Vestur-þýzka markið hefur hins
vegar hækkað nokkru meira eða
um liðlega 27%. Það var skráð á
3,6418 krónur síðasta dag ársins,
en er nú skráð á 4,6281 krónu.
Varðandi dollaraverð má geta
þess, að í tíð núverandi ríkis-
stjórnar, frá febrúar 1980, hefur
það hækkað um liðlega 169,65%,
en verð á hverjum dollara við
valdatöku hennar var 4,017 krón-
ur, en var skráð á föstudag 10,832
krónur eins og áður sagði.
Á einum mánuði hefur dollara-
verð hækkað um liðlega 4,15%, en
í lok aprílmánaðar var það skráð á
10,400 krónur, en 10,832 krónur nú
í lok maímánaðar.
KM-gjald hækkar
um 15-16% 1. júní
Kílómetragjaldið svokallaða
hækkar frá og með 1. júní nk. um
15,07—16,0%, en þaö er greiðsla sú,
sem opinberir starfsmenn fá fyrir
notkun eigin bíla. Almenna gjaldió
fyrir fyrstu 10 þúsund kílómetrana
hækkar um 15,63%, eöa úr 3,20
krónum á ekinn kílómetra í 3,70
krónur.
Almenna gjaldið, séu eknir
10—20 þúsund kílómetrar á ári,
hækkar um 15,79%, eða úr 2,85
krónum fyrir ekinn kílómetra í
3,30 krónur. Kílómetragjaldið, ef
eknir eru meira en 20 þúsund kíló-
metrar á ári, hækkar úr 2,50 krón-
um á ekinn kílómetra í 2,90 krón-
ur, eða um 16%.
Breiðafjörður:
Fundust
heilir á
húfi eftir
mikla leit
KLUKKAN 8 í gærmorgun barst
Slysavarnafélagi íslands tilkynn-
ing um það frá Búðardal, að
saknað væri lítils opins báts með
þremur mönnum, sem farið
hefðu frá bænum Hnjúki í Klofn-
ingi eftir hádegi á föstudag og
ætlað að fara út í Rúfeyjar til að
líta þar eftir varpi. Þá var strax
bafin skipulögð leit af björgun-
arsveitum Slysavarnafélagsins
við innanverðan Breiðafjörð, og
þyriu Landhelgisgæzlunnar.
Þyrlan fann fólkið síðan um
klukkan 12.15 í Hafnareyjum og
var það allt heilt á húfi.
Að sögn Hannesar Hafstein,
framkvæmdastjóra Slysa-
varnafélagsins, voru það björg-
unarsveitir frá Stykkishólmi,
Grundarfirði, Búðardal og
Reykhólum, sem leituðu fólks-
ins á bátum.
Heldur var slæmt útlit til
leitar vegna veðurs í gærmorg-
un, að sögn Hannesar, hann
gekk á með norðaustan 5 til 7
vindstigum.