Morgunblaðið - 06.06.1982, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ1982
Rafeindaverkiin í stað nálastungu:
„Ég lít á Marinó
sem brautryðjanda
á þessu sviði“
— segir Ævar Jóhannesson hjá Raunvísindastofnun Háskólans
I'annig lítur taekið út að innan. Það gengur fyrir 9 volta rafhlöðu. Svörtu
kubbarnir á plötunni eru svonefndir transistorkubbar, þ.e. hver kubbur
felur í sér fjölmargar transistoreiningar. Aðrar einingar eru þéttar og
mótstöður.
í viðtalsgrein við Marinó
Olafsson, tæknimann hjá sjón-
varpinu, er birtist sl. sunnu-
dag, 30. maí, var fjallað um
nýtt rafeindatæki er hann hef-
ur fundið upp. Tækið er lækn-
ingatæki sem byggir á kín-
versku nálastunguaðferðinni
og fullyrðir Marinó, að það
geti í flestum tilfellum komið í
staðinn fyrir nálarnar. Þar sem
nokkrar fyrirspurnir hafa bor-
ist til blaðsins varðandi raf-
eindatækið og framtíð þess,
ákváðum við að grennslast
frekar fyrir um málið.
I samtali við Mbl. sagði Marinó
Óiafsson, að hann stefndi nú að
því að setja tækið í fjöldafram-
leiðslu. „Framleiðslan mun þó
fara hægt af stað til að byrja með
og í fyrstu verður aðeins um
handvirka raðframleiðslu að
ræða. Einn framleiðsiuaðili hefur
málið í athugun, og hefur hann
boðist til að framleiða nokkra
tugi svona tækja án skuldbind-
inga, og leggja fram fé til þess.
Það kom víst hvergi fram í við-
talinu hvað tækið heitir. Ég hef
valið því nafnið „E1 ACU“ sem er
eiginlega skammstöfun á „Electr-
onic acupoint locating and inject-
ing apparatus". Mér hefur ekki
tekizt að finna íslenzkt nafn á
þetta tæki sem ég er ánægður
með, en ef til vill kæmi orð eins
og punktatæki til greina. Þetta
tæki byggir á kínversku nála-
stunguaðferðinni — kemur í stað-
inn fyrir nálarnar og auðveldar
þannig meðferð. Mér þykir því
eðlilegast að nefna þessa aðferð
punktameðferð til að greina hana
frá nálastungulækningum og
venjulegum læknisaðferðum,"
sagði Marinó.
Morgunblaðið hafði samband
við Ævar Jóhannesson hjá Rann-
sóknastofnun háskólans sem hef-
ur fylgzt nokkuð með þroiun í
rafeindatækni í iækningum er-
lendis, en notkun rafeindatækja í
lækningum fer nú mjög í vöxt
víða um heim. I samtali við Mbl.
sagði Ævar að hann hefði kynnt
sér tæknilega hlið rafeindatækis-
ins „E1 ACU“, sem Marinó
Ólafsson hefur fundið upp, og
sagði hann að það byggði á lítið
könnuðum raffræðilegum eigin-
ieikum nálastungupunkta.
„Japanir hafa verið með um-
fangsmikla tilraunastarfsemi til
að þróa hliðstæð tæki og náð
nokkrum árangri,” sagði Ævar.
„Rússar hafa fyrir löngu tekið
nálastunguaðferðina upp og við-
urkennt hana sem lækningaað-
ferð — þeir hafa gert athyglis-
verðar tilraunir með rafeinda-
verkanir í stað nála og þróað í því-
skyni sérstakt tæki sem sendir
frá sér leisergeisla. Ég tel þó að
Marinó sé kominn lengra en
nokkur annar á þessu sviði. Tæki
hans byggir á því nýjasta í raf-
eindatækni og rannsóknarstarf-
semi Marinós sjálfs í áratug. Ég
lít eiginlega á Marinó sem
brautryðjanda í rafeindatækni á
þessu sviði, því hann hefur farið
aðrar leiðir í rannsóknum sínum
en aðrir og af öllum líkindum náð
meiri árangri.
Ég hef litla sem enga þekkingu
á kínverskum nálastungufræðum
og get því lítið sagt um lækn-
ingamátt tækisins — hinu er þó
ekki að neita, að ég hef heyrt sög-
ur um að lækningar hafi gengið
mjög vel með þessu tæki. Ég tel
hiklaust að þá hlið þurfi að rann-
saka nánar, því hér gæti verið um
merkilega nýjung að ræða.“
Geta lækningar með þessu tæki
ekki verið hættulegar?
„Ég tel óhætt að fullyrða að svo
sé ekki. Ég hef framkvæmt mæl-
ingar á þessu tæki — það gefur
frá sér svo veikan straum að
hann mælist vart og getur því
ekki undir neinum kringumstæð-
um verið skaðlegur. Venjuleg
rafhlaða getur gefið frá sér mun
sterkari straum."
Nú kemur það óneitanlega á
óvart að uppfynding af þessu tagi
skuli koma fram hér á íslandi.
Eðlilegra væri að hún kæmi fram
í Kína, Japan eða Rússlandi þar
sem heilar háskóladeildir starfa
að því að kanna nálastunguað-
ferðina.
„Þetta er alls ekki eins undar-
legt að það virðist í fljótu bragði.
Marinó hefur mjög mikla þekk-
ingu á rafeindafræði, en auk þess
hefur hann kynnt sér og rannsak-
að kínverku nálastunguaðferðina
í rúmlegan áratug. Það er trúlega
mjög fáir menn í heiminum sem
hafa þekkingu á báðum þessum
sviðanna — menn eru sérfræð-
ingar á öðru sviði en ekki báðum.
Það er reyndar ekki óalgengt
að uppfyndingar komi fram þeg-
ar tvö svið sem virðast gjörólík
sameinast með þessum hætti. Ég
hef fylgzt mjög náið með raf-
eindavæðingu mælitækja í
jarðfræði, en þar hefur þróunin
orðið mjög ör undanfarin ár.
Bandarískur jarðfræðingur hjá
U.S. Geological Survey (Jarð-
fræðistofnun Bandaríkjanna)
sem er ailfær í rafeindafræði hef-
ur einmitt verið að vinna að
merkum nýjungum á þessu sviði.
Jarðfræðingar hafa almennt ekki
þekkingu á rafeindafræði. Raf-
eindafræðingur sem hefur þekk-
ingu á jarðfræði getur hins vegar
séð hvar skórinn kreppir, hvaða
vandamál þarf að leysa, og sniðið
rafeindamælitækin eftir því,“
sagði Ævar. _ ^
k
Þannig lítur rafeindatækið „El ACU“ út. Á tækinu eru snertirofar og tvö rauð Ijós. Eftir að kveikt hefur verið á
því gefur það frá sér suð en sé því beint að nálastungupunkti breytist hljóðið og rautt Ijós kviknar á tækinu. Sé
ætlunin að „gefa í“ viðkomandi punkt er þrýst á aðra rofa og fer styrkleiki inngjafar eftir því hvaða rofi er
valinn. Við inngjöf blikka rauðu Ijósin á tækinu á víxl. Ljmmynd Gn«jin.
BENIDORM
BEINT
LEIGUFLUG
GÓÐIR
GISTISTAWR
BROTTFARARDAGAR:
23/6,14/7, 4/8, 25/8,15/9.
ATH.: OKKAR VERÐ
FERDASKRIFSTOFAN
NÓATÚNI 17. SÍMAR 29830 og 29930.
TOLVUSHOLINN
___—^—Skipholti 1, sími 25400——^——_______
SUMARSKÓLl
FYRIR BÖRN 9—14 ÁRA
í sumar veröur efnt til nokkurra tölvunámskeiöa fyrir börn. Hvert námskeiö stendur
yfir í tvær vikur meö möguleikum á framhaldsnámskeiöi í 2 vikur til viðbótar, þrisvar
í viku. Viö kennsluna eru notaöar vandaöar einkatölvur frá ATARI meö litaskermi,
4ra rása hljóöi og háþróuðum teiknimöguleikum.
Kennt veröur eftirfarandi m.a.:
• Hvernig tölvur vinna
• Til hvers þær eru notaöar
• Hvernig á aö fá þær til aö gera þaö sem notandinn vill.
Á kvöldin kl. 20.00—22.30 er kennslusalurinn notaöur til æfinga og leikja fyrir
nemendur.
Framsýnir foreldrar láta börn sín læra á tölvu. Tölvunámskeiö eru bæöi skemmtileg
og þroskandi og opna börnunum nýja möguleika í lífinu.
Innritun í síma 25400