Morgunblaðið - 06.06.1982, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982
39
KRISTJÁN J. JÓNSSON ÍSAFIRÐI SEGIR FRÁ
Sögur af sjómönnum
Helmingurinn
af síldinni er
gamall smokkur
Ég er alinn upp með góðu fólki
í Hnífsdal sem háði harða lífs-
baráttu og undi glatt við sitt.
Það kemur mér ekki á óvart þó
ungt fólk haldi að við séum að
segja lygasögur er við rifjum
upp okkar æsku. Mitt umhverfi
voru verbúðir, beitningaskúrar,
fiskplön og fl. því tilheyrandi. I
hverri verbúð var kvenmaður
sem eldaði mat og sá um þrif.
Kölluð fanggæsla. Það kom
fljótt í ljós að ég var ekki mikið
upp á kvenhöndina. Þegar ég var
ca. 8—9 ára kom ég inn í eina
verbúðina, fanggæslan kyssti
mig rembingskossi, þangað kom
ég ekki meir þá vertíðina. Einn
vinur minn sem ég beitti oft línu
Einn var með mér eftir að ég
varð formaður, sem var á undan
sinni samtíð. Honum leist oft
illa á veður þegar róið var, oft
brugðust hans veðurspár. Strák-
arnir spyrja hann eitt sinn
hvernig honum litist á veðrið?
Þá svarar karl: Ég held að það sé
nú best að spá því bara jafn
óðum.
Tveir menn voru á handfæra-
veiðum, annar gerðist óþolin-
móður og hræddur vegna veður-
útlits, hann lét það í ljós með
ýmsu móti, vildi fara í land, en
engin áhrif hafði það á félaga
hans. Loks segir hann: „Þar leið
yfir mig,“ og lét sig falla í bát-
inn.
Walasse Ting er kominn hingað til lands vegna sýningarinnar, sem
Ingvar Gislason menntamálaráðherra opnaði í gær, en hér er málarinn
ásamt Selmu Jónsdóttur, forstjóra Listasafns íslands, við eina af mynd-
um sinum.
Litadýrð 1
Listasafni
LITRÍK blóm, grænir kettir og
fagrar konur með skásett augu eru
það fyrsta sem blasir við þegar
komið er í Listasafn íslands þessa
dagana, og ekki þarf glöggt auga
til að sjá að litirnir eru upprunnir i
fjarlægum heimshluta. Hér er á
ferð Kínverjinn Walasse Ting, sem
fæddur er i Shanghai fyrir 52 ár-
um, en listamaðurinn hleypti heim-
draganum tvítugur að aldri og fór
til Parísar til myndlistarnáms. í
fyrstu voru myndir hans abstrakt
en flótlega fór hann að mála „fíg-
úratívt" og hefur gert það síðan.
Ting er nú búsettur í New York.
I sýningarskrá segir Selma
Jónsdóttir forstjóri Listasafns-
ins: „Hin litskrúðugu og íburð-
armiklu verk New York- málar-
ans Walasse Ting eru meðal
þeirra fígúratívu nútímaverka
sem vekja einna mesta aðdáun.
Verk Tings eru einstætt sam-
bland af skærum sjálflýsandi lit-
um og 19. aldar munúð."
Verkin á sýningunni eru unnin
í akrýl og vatnslit á kínverskan
pappír. Meðan á Listahátíð í
Reykjavík stendur er sýningin
opin kl. 13.30—22, en frá 21. júní
til 4. júlí verður hún opin kl.
13.30—16, nema um helgar, en
þá er opið til kl. 22.
Kristján J. Jónsson
fyrir kallaði mig Hardahnífil er
vel lá á honum. Eitt sitt fór ég
með honum á sjó, þá fékk hann
upp línu sem hann hélt sig vera
búinn að tapa alveg, honum varð
svo mikið um að hann rauk á
mig og kyssti og sagði: Mikill
lánsmaður ert þú Kristján. Eftir
þessi faðmlög var ég smávegis
rispaður á kinn, það gréri fljótt.
Karlinn réri oft einn á báti. Eft-
ir eina sjóferðina lýsti hann
veðri þannig fyrir mér er hann
kom í land: Djöfulli sá togarinn
hefði loðað á sjónum. Annar
ágætur karl talaði svolítið öðru-
vísi en við hin, eitt sinn voru þeir
að beita línu með síld og gömlum
smokk (kolkrabba). Þá segir
karl: Það fiskast varla mikið á
þetta, því helmingurinn af síld-
inni er gamall smokkur. Ein-
hverju sinni voru þeir að flytja
fisk í land á báti, þá stóð þannig
á að lágsjávað var (fjara). Þá
segir karl: Elsku drengir, farið
nú heim og borðið fjöruna. Eitt
sitt var hann að vekja mann, þá
sagði hann:. Ég ætlaði ekki að
vekja þig Bjarni minn, bara að
biðja þig að bera með mér bal-
ana. Þá var það eitt sinn að
strákarnir voru að spyrja gaml-
an árabátaformann hvernig hon-
um litist á veðrið. Bregður karl
hendi yfir enni sér og segir:
Annaðhvort gerir hann norðan
eða ekki norðan. Einn var smá-
vegis þrætinn. Hann hélt því
fram að sólin gæti alveg eins
komið upp í norðvestri. Eftirfar-
andi vísa segir sitt um það:
Köður míns tún var himinn á brún,
og hlíAar á alla vegi.
Sannlt ikur er þaft segi éj» þér.
1'aA lýsir ad norðvestri að degi.
Kn trúna gefið get ég eigi.
Hátalaramir eru í senn nýtízkulegir útlits, ekki
plássfrekir, en kraftmiklir (50w, “bass reflex").
VERÐ AÐEINS
KR 13.600.-
Eða útb. 4000,—og afg. á 6-8 mán.
Glæsilegt tæki,
ekki satt'!
• Reynslutími
• Ábyrgð
• Viðgerðarþjónusta í sérflokki (helgarþjónusta)
• Póstkröfuþjónusta.
HUOMBÆR
■ HIJOMMR 'tSaSSSSí SHARP
Ifll ' '
SHARP VIKAN
7.6—12.6.
HUOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI 103
SIMI 25999 — 17244
Útvarpið er auðvitað útbúið nauðsynlegustu
útvarpsbylgjum —Fm (mono — sterio) — Lw — Mw.
Bylting
í gerð sam-
byggðra tækja.
Þetta tæki inniheldur m.a. örtölvustýrðan plötu-
spilara, sem spilar plötuna fyrir þig beggja megin,
án þess að þú svo mikið sem hreyfir litla fingur.
Hljómplatan er ávallt í lóðréttri stöðu, þannig að
óhreinindi, nú eða litlir forvitnir fingur komast ekki
í snertingu við plötu eða viðkvæma nál.
— Kostirnir eru augljósir.
Kasettutækið er vitaskuld gert fyrir allar tegundir
af kasettum, með tölvustýrðum snertirofum, Dolby
kerfi, lagaleitara og LED upptökumælum.
Magnarinn er nægilega kraftmikill fyrir flestar
(2X25 w. sínus), og viðkvæmustu stillingar hans
eru skýldar á bak við málmlok.