Morgunblaðið - 04.08.1982, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1982
16
Krá tónleikum hljómsveitarinnar Lpplyftingar i Húsafelli.
Prúðmannleg framkoma
4 þúsund manna í Húsafelli
IJM VKRZLUNARMANNAHKLGINA voru í Húsafelli um fjögur þúsund
manns saman komin. Kkki var um neins konar dagskrá aó ræða fyrir allan
þennan fjölda. Kn varðeldur var öll kvöldin og greiðasala á staðnum, jafn-
framt því, sem hljómsveitin l'pplyfting hélt tónleika á laugardeginum. Var
hjörgunarsveitin Ok á staðnum allan tímann og voru þeir með um 70 vaktir,
8 tíma hverja, auk lögreglu. Fjöldi húsa er á staónum sem hin ýmsu félaga-
samtök eru með fyrir utan allan þann fjölda sem kom og tjaldaði þarna.
Um hvítasunnuhelgina voru
fluttar fréttir frá Húsafelli þar
sem mikil ölvun og annar óaldarh-
áttur hefði verið. Vitaskuld hefði
mátt núna sem þá finna einhverja
útúrdrukkna unglinga, taka
myndir af þeim og segja að mikil
ölvun hefði verið í Húsafelli. En
það lýsti alla vegana ekki ástand-
inu eins og það kom undirrituðum
fyrir sjónir á laugardeginum. Þar
voru í blíðskaparveðri unglingar
léttklæddir, sem sátu úti í sólskin-
inu o(í 20 stiga hita, spjölluðu
saman og spáðu í næsta strák/
stelpu eins og gerist og gengur.
Sumir voru í fótknattleik og öðr-
um íþróttum. Aðrir höfðu komið
með ferðasegulbandstækið sitt og
stigu dans á grundunum við Kald-
ána, enn aðrir sötruðu sitt límon-
aði.
Eitthvað var um saumaskap
vegna glerbrota, sem menn höfðu
skorið sig á. Enda er það ekki
nema að vonum þar sem nú er í
tízku að vera sokkalaus í næfur-
þunnum skóm, svo það er lítið til
að verja hörundið gegn glerbrot-
um á jörðinni. Einn missti stein
ofan á höfuðið á sér sem hann var
að lyfta upp. Voru það einu meiri-
háttar meiðslin, sem komu fyrir.
Að sögn Sæmundar Sigmunds-
sonar sérleyfishafa, sem flutti á
milli 6—700 manns uppeftir, þá
var hegðun krakkanna til fyrir-
myndar og gott hefði verið að
komast af við þau. Veðrið hefði
vissulega verið gott og það hefur
mikið að segja. En t.a.m. þegar
hann ók á milli 4 —500 krökkum
ofan úr Húsafelli og niður í Loga-
land á laugardagskvöldinu og önn-
ur kvöld einnig, þá hefði það ekki
komið fyrir að ælt hefði verið í
hópferðabílana hjá sér. Einn bíl-
stjóri hefði verið með á milli
50—60 manns í bíl hjá sér og ekki
hlotizt nein vandræði af.
Borgarfjarðargleði var 3 kvöld í
röð. Fyrst í Brún í Bæjarsveit og
síðan á laugardagskvöld og sunnu-
dagskvöld í Logalandi í Reyk-
holtsdal. Á laugardagskvöldinu
voru á annað þúsund manns
staddir í og fyrir utan Logaland.
Þar sem fjöldinn er orðinn svona
mikill, þá þyrfti að hafa dansleik-
ina á tveimur stöðum á laugar-
dagskvöldinu. Heitt var í veðri og
því mikil) hiti inni á dansleiknum.
En hljómsveitin Uppiyfting lék
allan tímann stanzlaust og er það
vel að verki verið í öllum þessum
hita, sem var inni í samkomuhús-
inu.
Komum til að hitta töff gæja
Tekið var stutt viðtal við 5
stelpur í Húsafelli. Lýsir viðtal
þeirra sennilega betur tilgangi
svona ferðalaga og útilegu heldur
en hugsunarháttur margra manna
er um, hvað fram fari á svona
stöðum. Líkt og heyrðist í þættin-
um „Dagbókin" í hljóðvarpinu. En
þar var lesið upp fyrir skömmu úr
dagblöðum frá 1962, þar sem þá
voru blöð full hneykslunar í garð
þáverandi unelinGra. sem höfðn
dottið í það á Þingvöllum um
hvítasunnuhelgina. En þessir
sömu „unglingar" eru nú orðnir
nær fimmtugu og eiga margir
hverjir þessa krakka, sem nú voru
að skemmta sér um verzlunar-
mannahelgina. Sumir þessara
hálffimmtugu „unglinga" eru því
búnir að gleyma því, hvernig það
var að vera ungur að árum þá, og
hvernig eldri kynslóðin hneykslað-
ist á þessum fylleríislýð um hvíta-
sunnuhelgina fyrir 20 árum.
Til hvers komuð þið hingað?
— Bara að skemmta okkur.
Hvemig skemmtið þið ykkur?
— Við liggjum í sólbaði og
göngum hér um í góða veðrinu.
Nú, svo erum við komnar til að
hitta töff gæja.
Eru þeir margir hér?
— A.m.k. eru þeir fleiri en
heima.
Drekkið þið til að skemmta ykk-
ur?
— Ekki mikið. Við myndum
ekki skemmta okkur eins, ef við
gerðum það ekki. Annars drekkum
við ekki það mikið, að við verðum
okkur til skammar.
Hafið þið sofið vel hérna á
tjaldstæðunum í öllum þessum
fjolda?
— Hvað heldur þú að við þurf-
um að sofa hér? Við gætum alveg
eins verið heima hjá okkur og sof-
ið þar. Við þurfum ekkert að sofa
um verzlunarmannahelgina. Betra
að nota tímann til einhvers ann-
ars.
—Haldiði að þið hafið erindi
sem erfiði hér?
— Alveg örugglega. Við höfum
hitt marga og tökum þessu rólega.
Það borgar sig ekki að flana að
neinu í þessum efnum. Þeir eru
svo margir hérna.
-p.p.
Fundu mann nær
dauða en lífi á
Arnarvatnsheiði
SPORHUNDUR Hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði fann á mánudagsmorgun
um kl. hálf níu týndan mann, nær dauða en lífi á Arnarvatnsheiði. Hafði
hann verið týndur síðan á sunnudagskvöldið um ellefuleytið.
Þannig var, að umræddur mað-
ur var í heimsókn hjá kunningja-
fólki sínu í Flókadal í Borgarfirði
um verslunarmannahelgina.
Þurfti veiðieftirlitsmaður að fara
inn á Arnarvatnsheiði að Kjarrá,
þar sem tjald hafði sést við ána,
og fyrir utan það lágu stangir. Var
maðurinn beðinn að bíða í bílnum
þar til aftur væri komið frá athug-
uninni við Kjarrá. En þegar komið
var aftur frá Kjarrá, var hann
farinn burt úr bílnum. Þessi mað-
ur er vangefinn og því erfitt að
segja til um það, hvert hann hefði
farið. Jafnframt, sem verra var,
skall á niðaþoka í þann mund,
þegar komið var að bílnum, svo
útilokað var að leita að honum
með miklum mannskap. Þrátt
fyrir að þeir, sem uppi voru á
heiði, reyndu að kalla og leita
næst bílnum var það árangurs-
laust.
Var síðan haldið til byggða og
haft samband við Hjálparsveit
skáta í Hafnarfirði um kl. 2 að-
faranótt mánudags til þess að fá
sporhund, vegna þess að ekkert
viðlit var að leita í þessari miklu
þoku og björgunarsveitarmenn úr
björgunarsveitinni Oki í Borgar-
firði voru uppteknir sumir hverjir
á vakt í Húsafelli. Brugðust þeir
Hafnfirðingar skjótt við og voru
komnir í Reykholt kl. 5 og upp á
Arnarvatnsheiði um sjöleytið á
mánudagsmorgun, tilbúnir til leit-
ar.
Voru þeir með annan sporhund
sinn, sem hóf strax að rekja spor
hins týnda manns. Fór hann fyrst
upp með Lambá og síðan aftur að
sama stað eftir um klukkutíma.
Þá var ákveðið að senda einn bíl-
inn, sem var uppi á heiði niður í
byggð til þess að kalla út björgun-
arsveitir skáta, sem voru á Úlf-
ljótsvatni, til leitar og þyrlu Land-
helgisgæslunnar, sem var við leit
á Þingvöllum.
Um hálfum tíma síðar kölluðu
leitarmenn með sporhundinn í
talstöð, að maðurinn væri fund-
inn. En þá var sá, sem átti að kalla
út björgunarsveitir farinn fyrir
hálftíma. Ekki náðist í hann í
FR-stöð, þar sem engin slík var í
bílunum, sem voru á leitarstaðn-
um. Var því annar sendur af stað í
hasti til þess að afturkalla útkall-
ið. Svo „heppilega" vildi til, að það
sprakk á bílnum, sem kalla átti út
björgunarsveitir og þyrlu, svo það
var unnt að stoppa frekara útkall.
En hann hafði náð til Keflavíkur á
sinni FR-stöð og beðið menn þar
að kalla út lið. En það tókst að
afturkalla það.
Af manninum var það að frétta,
að hann var orðinn stífur af kulda,
þegar hann fannst. Var reynt að
ganga undir honum til að byrja
með. En þar sem hann var svo
kaldur orðinn og máttfarinn eftir
að hafa verið á ráfi í um tíu tíma,
lent úti í Kjarrá og blotnað voru
börur sóttar í björgunarsveitarbíl
Hafnfirðinganna og hann borinn
síðasta spölinn. Því næst vafinn
LeiUrmenn undirbúa sig til leitar á tungunni milli Lambár og Kjarrár inni á
Arnarvatnsheiði.
Handbók um Ijósmyndatækni,
búnað, aðferðir og val
LOKSmS!
Stór og ítarleg
UÓSMYNDABÓK
myndefnis.Yfir 1250 myndir
John Hedgecoe
r 41 i
I
a islensku
með yfir
1250 myndum
Arngrímur, Lárus og
Örnólfur Thorlacius
þýddu
SETBERG
Umsagnir um bókina:
vönduö og fróöleg, full einfaldra
útskýringa á flóknum hlutum.
Cuðmundur Ingólfsson
Ijósmyndari (ímynd)
Frá hendi höfundar og þýðenda
er Ljósmyndabókin sérlega vel
unnin. Hún er auöveld í lestri því
aö frábærar teikningar og
myndir gera efniö auöskiliö. Út-
koma bókarinnar er mikill greiði
þeim sem áhuga hafa á Ijós-
myndun.
Hjálmar R. Báröarson
Ég er mjög hrifinn af þessari bók.
Hún er skýr og aðgengileg jafnt
fyrir byrjendur sem lengra
komna í Ijósmyndun. Þetta er
smekkleg og eiguieg bók, — en
umfram allt nytsamleg.
Traustl Thorberg
(Fótóhúslnu