Morgunblaðið - 04.08.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1982
35
Um ráðningu bæjar-
stjóra á Dalvík
— eftir Stefán
Valgeirsson, alþm.
Helgi Þorsteinsson bæjarfull-
trúi sjálfstæðismanna á Dalvík og
oddviti minnihlutans þar, ritaði
íjrein í Morgunblaðið 20. júlí þar
sem hann gerir að umræðuefni
ráðningu bæjarstjóra á Dalvík og
tildrög hennar.
í upphafi greinarinnar kemur
glöggt fram hjá Helga hver er
megin ástæðan fyrir þessum skrif-
um. Maðurinn er ekki kominn enn
í jafnvægi eftir skellinn sem hann
telur sig hafa fengið í bæjar-
stjórnarkosningunum. Þó ég sé
ekki einn um þá skoðun að hann
hafi fengið betri kosningu en efni
stóðu til.
Helgi segir: „Svo sem kunnugt
er af fréttum unnu framsóknar-
menn eftirminnilegan kosninga-
sigur á Dalvík í síðustu bæjar-
stjórnarkosningum, fengu 4 af 7
og þar með hreinan meirihluta."
Það ætti því ekki að fara framhjá
neinum að Helga er þessi sigur
eftirminnilegur og er rétt að skoða
grein hans í því ljósi ásamt því að
hann virðist hafa tekið að sér leik-
stjórn í þessu máli fyrir minni-
hlutann í bæjarstjórninni, eftir
því sem heyra mátti í ríkisútvarp-,
inu, kvöldið sem mál þetta var til
lykta leitt í bæjarstjórn Dalvíkur-
kaupstaðar. Hinsvegar mun leika
nokkur vafi á hver hefur samið
handritið. Hitt fer ekki á milli
mála að höfundinum er gjarnt á
að færa í stílinn ekki síður en
Helga Þorsteinssyni í umræddri
grein.
Síðar í greininni segir Helgi:
„Hinsvegar tóku bæjarbúar eftir
því að tveir af þingmönnum kjör-
dæmisins, þeir Stefán Valgeirsson
og Guðmundur Bjarnason, virtust
eiga nokkuð brýn erindi við bæjar-
stjórnarmeirihlutann næstu
daga.“
Og lokaorð Helga: „Það hvarfl-
aði svona rétt að mér, hvað væri
eiginlega að gera með bæjarstjórn
á Dalvík fyrst ákvarðanir væru
teknar út í bæ og síðan tilkynntar
fyrirfram í Degi á Akureyri, og lái
mér hver sem vill.“
En hvað er Helgi að upplýsa
með þessum skrifum? Hann virð-
ist ekki þurfa að ræða við stuðn-
ingsmenn sína eða fulltrúarráð
um málefni bæjarins eins og t.d.
ráðningu bæjarstjóra. Hann er
hneykslaður yfir því að framsókn-
armenn á Dalvík skuli ræða slík
mál innan sinna vébanda. Honum
nægir að hafa samráð við bæjar-
fulltrúa Alþýðubandalags og Al-
þýðuflokks um slík mál. Öðru vísi
mér áður brá. Skildu það ekki
þykja tíðindi á Dalvík að Helgi
Þorsteinsson skuli vera svo límdur
Atta sækja um
stöðu félagsmála-
stjóra Kópavogs
UMSÓKNARFRESTUR um stöðu
félagsmálastjóra Kópavogs rann út
mánudaginn 26. júlí sl. Átta um-
sóknir bárust og voru sjö þeirra
lagðar fyrir bæjarráðsfund daginn
eftir, en ein umsókn, dagsett áður
en fresturinn var úti, barst ekki fyrr
en eftir bæjarráðsfund 27. júli.
Eftirtaldir sóttu um stöðuna:
Arnór Pétursson, Stífluseli 2 R,
Bragi Guðbrandsson, Hagamel 41
R, Gunnar Magnús Sandholt,
Hólmgarði 50 R, Ingimar Jónsson,
Víghólastíg 22 Kóp., Karl Laxdal
Marinósson, Kaplaskjólsvegi 5 R,
Ólafur Sigurðsson, Dalvík, og Þór-
ey Guðmundsdóttir, Brekkubyggð
13 Mos. Einn umsækjandi óskaði
nafnleyndar.
Að sögn Kristjáns Guðmunds-
sonar bæjarstjóra verður væntan-
lega tekin afstaða til umsókna
fyrir miðjan ágúst.
upp við bæjarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins, eins og skrif hans
bera vitni um.
Hjá okkur framsóknarmönnum
eru það ekki bæjarfulltrúarnir
einir, sem taka ákvörðun um slík
mál, þó þeir hafi að sjálfsögðu allt
frumkvæði þar um, og geri tillögu
til fulltrúaráðs staðarins, sem tek-
ur lokaákvörðun á fundi sínum. Af
því leiðir að búið er að taka
ákvörðun fyrirfram í öllum tilvik-
um, hver kosinn verður í slíka
stöðu. Það er því opin leið fyrir
flokksblað, að hafa spurnir af þvi
hver verði ráðinn í slíka stöðu.
Hinsvegar er það álitamál, hven-
ær á að birta slíka frétt. En blaða-
menn leggja verulega upp úr því
að vera fyrstir með fréttina.
Hvað viðkemur hlut okkar Guð-
mundar Bjarnasonar í þessu máli
og tíðar ferðir okkar til Dalvíkur á
þessum tíma, þá er því að svara að
mér er vel kunnugt að Guðmundur
kom aldrei til Dalvíkur á umrædd-
um tíma, og ég aðeins einu sinni.
Hvað Guðmund varðar þá hafði
hann engin afskipti af þessu máli
á nokkurn hátt.
Hinsvegar fylgdist ég úr fjar-
lægð með umræðum um ráðningu
á bæjarstjóra á Dalvík á sama
hátt og ég fylgist með málum í
þessu kjördæmi, hitt er annað mál
að ég reyndi ekki að hafa nein
áhrif á það hver yrði fyrir valinu,
það er fulltrúaráðið sem slíka
ákvörðun tekur.
Með þessum línum sendi ég
mínar bestu kveðjur til Dalvík-
inga allra og þó sérstaklega til
bæjarstjóra og bæjarstjórnar
Dalvíkurkaupstaðar, og óska þeim
velfarnaðar í öllum störfum sín-
Mjúkar plötur undir þreytta fætur
Teg. „Hamburg"
Teg. „Rotterdam"
W/á
Þolir olíu og sjó, rafeinangrandi,
grípur vel fót og gólf. dregur úr
titringi, svört, 11,5 mm þykk, stærðir
allt aö 1x10 metrar.
Notast í vélarrúmum og verksmiöjum
þar sem fólk stendur tímum saman
viö verk sitt.
Þolir sæmilega olíu og sjó, grípur vel
fót og gólf, dregur úr titringi, svört, 23
mm á þykkt, stæröir 40x60 cm,
40x120 cm, 60x80 cm og 80x120 cm.
Notast yfir vélarrúmum og í brú og á
brúarvængjum.
ö[LaDl]gi[Lí]g][Lfl[rQj(§)[rD©©®[n] ^
Vesturgötu 16, Reykjavík, símar 13280/14680.
Nýji pontunarlistinn
Beint til þin fra London. Aöeins 75.- kr
Spennandi tiska,
spennandi haust!
Pantid nýja stóra
Freemans pöntunar
listann.
Nýja hausttískan - meir en
600 síður með myhdum, hug-
myndum og lágu verði frá
miðstöð tískunnar, London.
Örugg kaup með Freemans
ábyrgð.
Pöntunarlistinn er fullur af
vörum sem þér líkar.
Setjið pöntunarmiðann í póst
í dag og sjáið sjálf.
Sendist til:
rítefliÓA/ s
á Sendið mér strax nýja
* Freemans pöntunarlistann
^ með hausttískunni
Aðeins 75.- kr.
^ Nafn:_
^ Heimili:
4 *
c/o BALCO hf
Reykjavíkurvegi 66
220 Hafnarfirði
sími 91-53900