Morgunblaðið - 04.08.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.08.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1982 21 Breskur hermaður finnst óvænt á lífi liondon, .‘I. ágúst. AP. BRESKUR hermaður, sem talið var að hefði látið lífið í Falklandseyjastríðinu, birtist félögum sínum, heill á húfi á sunnudag og mun að öllum líkindum snúa aftur til síns heima, eftir u.þ.b. viku. Er Philip Williams gekk inn í búðir félaga sinna á sunnudag, var í fyrstu álitið, að um draug væri að ræða, en í heimabæ hans sem og á Falklandseyjum ríkir nú mikil gleði vegna þessarar óvæntu endurkomu. Það var þann 14. júní sl. sem hann týndist, en hann var þá með í bardaganum um fjallið Tumbledoown, aðeins nokkrum klukkustundum áður en Argent- ínumenn gáfust upp. Veðrið var fremur slæmt og hann ráfaði burt frá félögum sínum til að leita sér skjóls, en villtist af leið. Hann hefur síðan haldið til í yfirgefnum húsum og veitt sér til matar og hans fyrsta spurning er honum hafði tekist að rekja sig eftir símalínum til sinna fyrrum félaga var: „Hvernig gengur stríðið?" Aðkoman var ófögur á slysstaðnum er eldur, sem kviknaði er bifreiðar skullu saman, hafði orðið 53 að bana. Slysið í Frakklandi: Frá fundi Reagans og Shamirs í Washington á mánudag Forsetinn og Shamir utanríkisráðherra ísraels skildu í styttingi eftir snörp orðaskipti á fundinum þar sem Reagan tjáði Shamir að ófriði í Miöausturlöndum yrði að Ijúka tafarlaust. Shamir hvikaði ekki frá þeirri stefnu ísraela að Palestínumenn skyldu fjarlægðir frá Beirút, ef ekki með samning- um þá með valdi. Orsök trúlega glanna- akstur á blautum vegi (’repy-en-V'alois, Frakklandi, 2. ágúst. Al\ JARÐNESKAR leifar 44 barna sem brunnu til bana í mesta umferðarslysi sem orðið hefur í Frakklandi, komu til heimabæjar þeirra á sunnudag. Ekki hefur enn komið fram nákvæm skýring á þessu hræði- lega slysi, sem varð á laugardag, en samkvæmt skýrslum sjónar- votta er talið að of hraður akstur eigi þar hlut að máli. Alls létu 53 lífið í slysinu. Francois Mitterand, forseti, og Pierre Mauroy, forsætisráðherra, ásamt fleiri ráðherrum frönsku stjórnarinnar, hafa tilkynnt að þeir muni verða viðstaddir útför barnanna í Crepy-en-Valois í dag og samúðarskeyti hafa borist að- standendum barnanna, sem flest voru úr þessum 11.000 manna bæ, hvaðanæva að úr heiminum. Slysið átti sér stað árla laugar- dagsmorguns, er þrjár rútur og sjö bifreiðir rákust saman, en veð- urskilyrði voru mjög slæm og veg- ir blautir eftir miklar rigningar. Þetta gerðist u.þ.b. 325 kílómetr- um suður af París, nálægt bænum Mercuil. Tvær rútanna fluttu börn frá bænum Crepy-en-Valois og fimm nálægum smábæjum, alls 107 að tölu, en þau voru á leið í sumar- búðir í Ölpunum. Allt brann sem brunnið gat í langferðabílunum tveimur skammt suður af París á laugardagsmorgun. Al’ sítnamynd. Flest líkanna voru óþekkjanleg af völdum elds sem kom upp í bíl- unum, er þeir skullu saman og erf- iðara reyndist einnig um allar björgunaraðgerðir vegna hans. Haft er eftir sjónarvottum að slysinu, að greinilegt hafi verið að bílstjórar rútubifreiðanna tveggja hafi ekki virt hraðatakmarkanir fyrir svo stórar bifreiðir, sem er 90 kílómetra hraði á klukkustund, og hafi svo virst sem þeir væru í einhvers konar „spyrnu" og haft er eftir reiðum foreldrum að borið hafi á því að bílstjórarnir væru óþolinmóðir vegna seinkunar sem orðið hafði á brottför barnanna frá bænum. í bænum Crepy-en-Valois hanga nú uppi tveir listar, annar yfir hina látnu og hinn yfir þá, sem komust lífs af úr þessu hörmulega slysi. Á gólfinu í leikfimihúsi bæj- arins hvíla svo 44 litlar kistur, en aðeins sex þeirra bera nöfn þar sem ekki tókst að bera kennsl á fleiri líkanna. Hinar kisturnar bera yfirskriftina „óþekkt barn“, en fórnarlömbin voru á aldrinum sex til fimmtán ára. Foreldrar og aðrir nánir að- standendur hafa staðið syrgjandi við kisturnar frá því á sunnudag, en í dag mun útför barnanna fara fram. Þau verða jarðsett í kirkju- garði bæjarins, en aðstandendur þeirra hafa óskað þess að þau verði jarðsett fjögur og fjögur saman og grafirnar verða því ell- efu talsins með einum sameigin- legum legsteini með nöfnum þeirra. Norðmenn lækka gengi um 3 prósent <>sló, 3. ágúst. Krá Jan Krik Lauré, frétUritara Mbl. ÚTREIKNINGI á gildi norsku krón- unnar gagnvart erlendum gjaldmið- lum hefur nú verið litillega breytt. í rauninni er hér um u.þ.b. 3% gengis- fellingu að r»ða. Stöðug h»kkun Randaríkjadollara hefur gert það að verkum, að norskur iðnaður hefur átt í erfiðleikum með að halda úti eðli legri samkeppni á erlcndri grund. Við útreikning á gengi norsku krónunnar hefur lengstum verið stuðst við gengi Bandaríkjadollara að fjórðungi. Við breytinguna er hins vegar einungis tekið 11% mið af stöðu dollara, en meira mið tekið af stöðu v-þýska marksins og franska frankans. Hækkun dollarans hefur skapað ýmisleg vandamál fyrir norskan iðnað. Mörg fyrirtæki eru með samninga á erlendri grund, sem miðast við gengi dollara. Hefur orð- ið æ dýrara að kaupa hráefni og um leið erfiðara að stunda samkeppni þar sem norska krónan hækkaði Aukin sókn í Barentshaf ()sló, 3. ágúsi. Frá Jan Krik l>auré, fréttaritara Mbl. LOÐNUVEIÐIBANNIÐ við Jan May- en hefur það í för með sér, að sumar- vertíð loðnuveiðiskipanna hefst tveim- ur vikum síðar en áætlað var. Þetta þýðir ennfremur, að verkamenn við fjölda fiskiðjuvera víðsvegar um Nor- eg, fá tveggja vikna lengra frí en boð- ið hafði verið. Loðnuveiðibannið kemur til með að kosta norska þjóðarbúið um 60 milljónir króna, en tapið verður að hluta til vegið upp með aukinni loðnuveiði í Barentshafi. Loðnu- kvótinn í ár er 5,9 milljónir hektó- lítra, eða um 1,5 milljónum hektó- lítra meiri en í fyrra. samhliða dollaranum. Gengislækkunar hefur verið krafist í nokkrar vikur í Noregi og af henni varð loks um helgina. Hækkun dollarans hefur þó ekki eingöngu slæmar afleiðingar. Á að- eins nokkrum vikum hefur hún fært Noregi þrjá milljarða króna í tekjur vegna olíuframleiðslunnar í Norð- ursjó. Allar olíuafurðir eru verð- lagðar í dollurum. Andrew prins: Verður af skírninni London, 3. ágúst. Al\ ANDREW prins mun verða af skírn bróðursonar síns í þessari viku, vegna þess að hann hefur ekki enn snúið heim frá skyldu- störfum sínum við Falklandseyj- ar, samkvæmt heimildum frá Buckingham-höll í dag. Daily Express heldur því fram í dag, að Andrew sem er næstelsti sonur Elísabetar II, hafi beðið um Ieyfi til að geta tekið þátt í athöfninni, en hon- um hafi verið synjað af yfir- manni sínum, en talsmaður drottningar í Buckingham-höll segir, að ekki sé sannleikskorn í þeirri frétt. „Prinsinn bað ekki um neitt sérstakt leyfi. Hann hafði aldrei í hyggju að snúa heim á undan öðrum úr áhöfn „Invinc- ible“. Þetta er algjör uppspuni," sagði talsmaðurinn við frétta- stofu AP. „Invincible“ er enn á Suður- Atlantshafi og ekki er vitað hvenær það muni snúa heim- leiðis, en systurskip þess og það sem mun taka við af því, „111- ustrious" lagði af stað til Falk- landseyja á mánudagsmorgun. „Stefnumarkandi“ fund- ur Nkomos og Mugabes Kullawayo, Zimbabwe, 3. ágúst. AP. JOSHUA Nkomo sagði í dag, að tveggja stunda viðræður, sem hann átti við Robert Mugabe, forsætisráðherra Zimbabwe, v*ru skref í þá átt að slaka á þeirri pólitísku spennu, sem ríkt hefur i landinu að undanfömu. Fundur þeirra hefði verið „stefnumarkandi“, sagði Nkomo. Leiðtogarnir tveir, sem eitt sinn voru andstæðingar á meðal skæruliða, hittust á mánudag, á sama tíma og um 2000 lögreglu- og hermenn héldu áfram leit sinni að sex ferðamönnum, sem rænt var af skæruliðum, stuðningsmönnum Nkomos. Ekkert nýtt hefur komið fram í leitinni að ferðamönnunum, sem nú hefur staðið yfir í 12 daga. Ræningjarnir höfðu hótað að myrða ferðamennina ef ekki yrði gengið að kröfum þeirra og tveim- ur háttsettum embættismönnum, sem styðja Nkomo, yrði sleppt úr fangelsi. Að sögn vestrænna diplómata hefur fjölskyldumeðlimur borið kennsl á þrjú lík, sem fundust í austurhluta landsins, og staðfest, að þar væru breskir ferðamenn, sem saknað hefur verið frá 14. júlí. Fundust líkin á svæði þar sem stuðningsmenn Mugabes eru í miklum meirihluta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.