Morgunblaðið - 04.08.1982, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1982
23
Manchester United kom til landsins í gær
Valinn maður í hverju rúmi
• Leikmenn Manchester United
komu til landsins seinni partinn í
K»r, en þeir leika sem kunnugt er
við Val í kvöld kl. 20.00 á Laugar-
dalsvellinum, og við KA á Akureyr-
arvelli á sama tíma annað kvöld.
Leikmennirnir voru greinilega
mjög hressir og kátir við komuna
til Keflavíkur og léku á als oddi er
undirritaður spjallaði við þá. Með
þeim í vélinni frá London var eng-
inn annar en George Best, írski
knattspyrnusnillingurinn/ vand-
ræðagemlingurinn heimskunni, en
hann gerði einmitt garðinn frægan
hjá Man. Utd. hér á árum áður, og
var m.a. í liði þeirra sem tryggði
sér sigur í Evrópukeppni meistara-
liða 1968.
Er liðið kom á Hótel Loftleiðir
með rútunni frá Keflavík beið
þar mikill skari ungmenna sem
vildi frá eiginhandaráritanir
kappanna. Voru leikmenn mjög
almennilegir í alla staði og gáfu
sér góðan tíma til verksins og
spjölluðu við þessa ungu að-
dáendur sína.
Eins og áður sagði hefst leik-
urinn í kvöld kl. 20.00. Langflest-
ir af bestu leikmönnum United
eru með í förinni, en þó vantar
Steve Coppell, sem er nýbúinn að
gangast undir uppskurð. Þá eru
þeir John Gidman og Remi Mos-
es báðir illa fjarri góðu gamni,
en þeir eiga einnig báðir við
meiðsli að stríða. Að sögn Ron
Atkinson, framkvæmdastjóra
liðsins, er búist við að Coppell
verði tilbúinn í slaginn er 1.
deildin hefst á ný seinna í þess-
um mánuði. Sagði Atkinson að
þrátt fyrir að þessa leikmenn
vantaði, þyrftu menn ekki að ör-
vænta, þar sem hann hefði nóg
af frábærum leikmönnum með í
förinni.
Ohætt er að taka undir þau
orð Atkinsons, þar sem í liðinu
eru margir af snjöllustu leik-
mönnum á Englandi um þessar
mundir eins og Ray Wilkins,
Frank Stapleton, Bryan Robson
og Arnold Muhren, svo einhverj-
ir séu nefndir.
— SH.
Núverandi fyrirliði Manrhester
Utd., Ray Wilkins, t.v. og fyrrver-
andi fyrirliði liðsins, Martin Buch-
an, t.h. Ljósm. Kmilía.
|K
Ron Atkinson, hinn litríki framkvæmdastjóri Manchester Utd.
Ron Atkinson:
Tökum alla okkar
leiki alvarlega
„Við erum með gott lið, og mér
líst mjög vel á veturinn. Við stóðum
okkur vel í fyrra, lentum þá í þriðja
sæti í deildinni, og nú höfum við
fengið Arnold Muhren til okkar,
þannig að búast má við liðinu enn
sterkara en í fyrra,“ sagði Ron Atk-
inson, framkvæmdastjóri Man-
chester llnited, er blaðamaður
spjallaði við hann á Keflavíkurflug-
velli í gærdag.
— Við byrjuðum að æfa á ný
fyrir viku síðan, og leikmenn eru
að komast í ágætt form.
Atkinson sagði að liðið hefði
leikið sinn fyrsta æfingarleik á
mánudagskvöldið gegn Aldershot
og sagði hann að Wilkins og Rob-
son hefðu báðir leikið með þrátt
fyrir að þeir hefðu ekkert tekið
þátt í æfingum liðsins eftir
HM-keppnina.
Eru þeir ekki þreyttir, Spánar-
fararnir?
— Þreyttir? Nei, ég held nú síð-
ur. Ég tók Robson að vísu út af í
leiknum á mánudaginn, en hann
vildi helst fá að vera inn á. Þeir
eru sko ekki þreyttir, langt frá því.
Hvernig er undirbúningi ykkar
fyrir keppnistímabilið háttað?
— Eins og ég sagði byrjuðum
við að æfa fyrir viku, og höfum
leikið einn leik. Síðan spilum við
tvisvar hér, þrisvar í Irlandi í
næstu viku, og síðan tökum við
þátt í nokkurra liða keppni á
Spáni í vikunni þar á eftir.
Aðspurður sagði Atkinson sína
menn taka alla leiki alvarlega, og
ekkert yrði gefið eftir í leikjunum
hér á landi. Hann sagði að gaman
væri að Best léki gegn United, það
gerði leikina enn skemmtilegri.
Ekki vildi hann gefa upp byrjun-
arlið sitt. Liðið átti að æfa í morg-
un og eftir þá æfingu átti að til-
kynna liðið.
— SH.
George Best:
„Lít ekki við neinum at-
vinnusamningum lengur"
George Best, einn besti knatt-
spyrnumaóur sem uppi hefur verið,
kom með leikmönnum Man. Utd. til
landsins í gær og leikur sem kunn-
ugt er gegn þeim með Val í kvöld og
KA á morgun. Blaðamaður ræddi við
Best í Keflavík, og aðspurður hvort
hann hygðist leika á ný í Knglandi
svaraði hann því neitandi.
— Ég lít ekki við neinum samn-
ingum lengur. Ég rek æfingaskóla
fyrir krakka, og ætla að einbeita
mér að honum. Ég hef verið í
Bryan Robson deilir út eiginhandar-
áritunum og Kevin Moran, írski
miðvörðurinn sterki, fylgist með.
George Best kampakátur á Keflavík-
urflugvelli í gær.
Bryan Robson var einn albesti
leikmaður enska landsliðsins i
HM-keppninni á Spáni, og eins og
menn muna, er hann dýrasti leik-
maður sem seldur hefur verið milli
enskra félagsliða. United keypti
hann frá WBA i fyrra fyrir um 1.750
þúsund pund. Undirritaður ræddi
við kappann i gær.
Um HM-keppnina á Spáni sagði
hann að vissulega hefðu Brasilíu-
Englandi nú í þrjá mánuði, og hef
æft sjálfur. Ég leik ekki framar
nema í sýningarleikjum og leikj-
um eins og þessum hér.
Hvað finnst þér um Norman
Whiteside, honum hefur verið líkt
við þig, þegar þú varst að byrja?
— Eg vona að honum vegni vel í
framtíðinni, en mér finnst ekki
sanngjarnt að vera að bera okkur
saraan. Hann er mjög góður leik-
maður, en hann er allt öðruvísi en
ég og leikur aðra stöðu.
Til stóð í fyrra að Best kæmi
hingað til lands og léki með Val
gegn Cosmos, en það brást á síð-
ustu stundu. Best sagðist harma
það mjög að hafa ekki komist þá,
og bæði íslensku þjóðina afsökun-
ar. Hann sagðist hins vegar mjög
glaður að hafa getað komist nú.
- SH.
menn verið með mjög gott lið, en
þegar upp var staðið hefðu ítalir
fyllilega átt skilið að sigra. „Ég er
nokkuð ánægður með frammi-
stöðu mína í keppninni, og þokka-
lega ánægður með árangur enska
liðsins í keppninni. Annars hefð-
um við átt skilið að komast áfram
í undanúrslitin, hefðum bæði átt
að vinna Spán og Þýskaland."
Aðspurður um framhaldið hjá
United sagði Robson, að hann sæi
enga ástæðu fyrir því að þeir gætu
ekki unnið deildina. — Leikmenn
þekkjast betur nú en í fyrra, það
tók dálítinn tíma fyrir okkur nýju
leikmennina að kynnast hinum í
fyrra, og þá höfum við fengið
Muhren til okkar. Hann er mjög
góður leikmaður. Ég held því að
búast megi við okkur enn sterkari
en í fyrra. Ég held því að við gæt-
um farið að vinna til verðlauna
bæði heima og jafnvel í Evrópu-
keppninni líka, sagði þessi geð-
þekki leikmaður.
—SH.
Knaltspypna 1
Norman Whiteside:
„Stórkostleg tilfinning“
— Það var stórkostleg tilfinning
að verða yngsti leikmaður sem
nokkurn tima hefur leikið í úrslita-
keppni HM. Kg er virkilega stoltur.
Mér fannst ég standa mig nokkuö
vel í keppninni, og árangur irska
liðsins var mjög góður, betri en
nokkurn hafði órað fyrir, sagði
Norman Whiteside, hinn 17 ára stór-
cfnilegi leikmaður, er hann kom
með félögum sínum í Man. Utd. til
landsins í gær.
Heldurðu að þú komist í liðið hjá
United í vetur?
— Kg vona það að sjálfsögðu, en
maður veit það náttúrulcga aldrei.
Ég veit ciginlega ekki fyrir hvern ég
ætti að koma inn.
Whiteside sagðist ekki lika það að
sér væri líkt við George Best, og
sagði að það væri sér alls ekki tií
góðs, setti sig frckar í pressu. — Það
kemur aldrei annar Georgc Best,
sagði Whiteside, sem er mjög hlé-
drægur og rólegur piltur.
— SH.
Bryan Robson:
Erum sterkari en í fyrra
Knaftspyrna