Morgunblaðið - 04.08.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1982
41
félK í
fréttum
+ Eins og áður hefur verið sagt
frá hér, þá er mikil togstreita á
milli þess fólks, sem var nákomið
Romy Schneider á hinum ýmsu
tímabilum ævi hennar, um hver
skuli fá yfirráðaréttinn yfir hinni
fimm ára gömlu Söru Biasini,
dóttur Romy og Daniel Biasini. Æ
fleiri vilja nú ala Söru upp. Fyrr-
verandi kærasti Romy Schneider,
hinn 46 ára gamli Alain Delon, vill
ala Söru upp vegna þess, að hann
kennir sér að einhverju leyti um
dauða móður hennar. Þá vill hinn
38 ára gamli Laurent Pétain, sein-
asti sambýlismaður Romy
Schneider, fá að ala Söru upp.
Hann segir að hann og Romy hafi
ætlað að giftast og hann hafi allt-
af ætlað að ganga Söru í föður-
stað. „Sara elskar mig eins og ég
væri faðir hennar," segir Laurent
Pétain.
Síðan að móðir hennar lést hef-
ur Sara dvalið hjá föðurömmu
sinni, Monique Biasini, og það er
ekki ennþá búið að segja henni að
mamma hennar sé dáin. Sara
Romy dýrkaði Davíð son sinn og þegar að hann dó 14 ára gamall missti hún
allt lífsþrek.
Allir
hafa
vilja
Söru
heldur bara að mamma hennar
hafi farið burtu í langt ferðalag.
Daniel Biasini, faðir Söru, segist
ætla að taka hana til sín og ala
hana upp. „Ég ætla að sjá um að
barnið fái að vera í friði. Ég-
skulda Romy það,“ segir Daniel
Biasini.
Magda Schneider, móðuramma
Söru, hefur miklar áhyggjur af
þessu öllu saman sem von er, og er
helst á þeirri skoðun, að miðað við
aðstæður væri best fyrir Söru að
vera bara hjá henni sjálfri eða hjá
bróður Romy, Dr. Wolf Albach.
„Söru mundi örugglega líða best
hjá mér,“ segir Magda Schneider.
„En ég er orðin gömul og veik-
burða, en Wolf og fjölskylda hans
gætu vel haft hana.“
Allir aðilarnir í málinu eru vel
meinandi en alveg virðist hafa
gleymst að spyrja Söru hvað hún
vilji sem er alveg í stíl við það, að
ekki skuli ennþá vera búið að
segja henni að móðir hennar sé
dáin.
Móónramma Söru, Magda
Schneider, hefur áhyggjur af
k»f»ni
COSPER
Þetta er furðulegt. Því meiri sem logarnir verða því
betur líður honum.
Laurent Pétain sambýlismaður
Romy Schneider.
Monique Biasini, róðuramma Söru,
hefur ekki ennþá sagt henni að
Romy sé dáin.
Alain Deion vill endilega hjálpa
Söru.
Faðir Söru, Daniel Biasini.
Steinstyttur
Hollensku steinstytturnar frá Groen og
Parastone sem áöur fengust í Kirkju-
felli, Klapparstíg 27 eru nú seldar í
Kúnst, Laugavegi 40. Ný sending.
j^ýnít
KIRKJUFELL
ÚTSALA
Sumarefni
á útsölu
Afsláttur frá