Morgunblaðið - 22.08.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1982
3
Síðasti Islandssjómaðurinn
franski kominn í heimsókn
í GÆK var væntanlegur með
KlugleiAariugvélinni frá Farís „síðasti
íslandssjómaðurinn" frá Bretagne,
Yves le Koux, sem hátt á níræðisaldri
kemur til að heimsækja landið, þar
sem hann fiskaði sem ungur maður á
skútu og var bjargað skipreika austur
á Skeiðarársandi. En Island skipar
stórt rúm í bókinni sem hann skrifaði
og kom út i íslenzkri þýðingu fyrir
síðustu jól. En þar segir hann frá ævi
sinni og lífi frönsku sjómannanna við
ísland. Með honum er frændi hans
kjarnorkueðlisfræðingurinn Louis
Jauneau og Jean Le Meur, bæjarfull-
trúi í Faimpol og mestur áhugamaður
um að endurvekja tengslin milli þess-
arar bretónsku borgar fslandssjó-
manna og íslands. En hann var fram-
kvæmdastjóri mikillar kynningarviku
þar í vor, sem nefndist „Paimpol, haf-
ið og ísland“.
íslandssjómaðurinn Tonto Yves
kemur hingað í boði útgefandans að
bókinni hans, Baldurs Stefánssonar
í Steinholti hf. Hafði hann boðið
honum að koma þegar bókin kom út
í vetur, en ekki gat orðið af því fyrr
en nú. Bókin nefnist „Yves frændi,
Islandssjómaður" og þýddi Jón
Óskar hana úr frönsku, en forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir,
skrifaði formála. Var gamli maður-
inn óánægður með það, þegar bókin
kom út í Frakklandi, að ekki komst
þar allt með, sem hann vildi segja,
og hefur hann nú sjálfur látið
prenta myndskreytt kver, sem hann
nefnir Souvenir D’Islande, minn-
ingar frá íslandi, til að gefa vinum
og áhugafólki. Ætla þeir félagar að
dvelja hér í eina viku.
Gata í bænum Paimpol, þaðan aem flestir bretónsku sjómennirnir komu,
hefur verið skírð í höfuðið á síðasta íslandssjómanninum Yves le Roux, en
hann er nú að rifja upp gamlar endurminningar frá skútuárunum á íslandi.
Höfundarnafn
féll niður
ÞAU mistök urðu við birtingu
umsagnar um bók Milton
Friedman á bls. 16 og 17 í Mbl.
í gær, að nafn höfundar féll
niður, en hann er Ólafur
Björnsson prófessor. Mbl.
biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
JNNLEN1T
ÓU
mazau
í
ctuiliý
kl
Nú er hver síöastur aö tryqgja sér sæti
sólarlandaferö á þessu sumri. Nokkur
sæti laus í næstu brottfarir
um
Costa del Sol
26. ág. og 2. sept. 2 eða 3 vikur, 9. og 16. sept. Uppselt.
8. september 3 vikur.
Austurstræti 17,
sími 20100 og 26611
Kaupvangsstræti 4
sími 22911 o
Costa del Sol er tvímælalaust sá sumarleyfisstað-
ur, sem býður mesta fjölbreytni, því þar finna allir
eitthvað við sitt hæfi. Þar eru bestu golf-vellir
Evrópu s.s. Torrequebrada, frábær heilsuræktar-
aðstaða t.d. Hotel Incosol í Marbella, sjóskíöaskóli,
tennisvellir, góðar sundlaugar, gististaöir í sérflokki
og síðast en ekki síst sólskin og glaölegt viðmót
Andalúsíubúa.
Kynnisferðir til Marokkó, Granada, Sevilla, Nerja,
Malaga og margra fleiri staöa fyrir þá, sem kynnast
vilja landi og þjóö.
Lignano
„Gullna ströndin"
er staðurinn sem slegið hefur í gegn á þessu ári, og vakið
aðdáun farþega sökum náttúrufegurðar og mannlífs, sem
ennþá er að mestu ósnert af erlendum áhrifum.
Kynnisferðir til Syracusa, Taormina, Catania, Palermo og
Rómar eru meöal þeirra vinsælustu — en úrvalið er
óendanlegt.
Ströndin í Lignano er að margra dómi sú besta, sem völ er
á, búin öllum þægindum, breið og hvít. ítalskur tískufatnaö-
ur er heimskunnur og úrval verslana í Lignano og Udine er
fjölbreytt og mikið. ítölsk matargeröarlist á sér verðuga
fulltrúa í Lignano og nágrenni.
Kynnisferðir til Feneyja, Austurríkis og Júgóslavíu, Flórenz,
Rómar og fleiri fagurra og fornfrægra staöa.
Portoroz
Vinsælustu baöstrendurnar og gististaðirnir í Palma Nova
og Magaluf. Iðandi mannlíf og lífsgleði eru einkenni þessa
vinsæla sumarleyfisstaðar norður-álfubúa.
Fjölbreytt úrval kynnisferöa.
Sikiley
Heillandi, fagur staöur til hvíldar og hressingar, þar sem þó
er mikið úrval skemmtistaða og góðra matsölustaða. Frá-
bær gisting í stórum, rúmgóðum herbergjum á bestu hót-
elunum Grand Hotel Metropol, Hotel Roza, Hotel Slovenija.
Kynnisferðir til Austurríkis, verslunarferð til ítalíu, Slóv-
_ eníu-ferð og margt fleira.
Mallorca
27. ágúst 2 eöa 3 vikur, 3. sept. 2 vikur.
27. ágúst 2 eða 3 vikur, 3. sept. 2 vikur.