Morgunblaðið - 22.08.1982, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1982
21
Það er í eðli vísunnar, að ekkert mannlegt sé henni
óviðkomandi. Stundum er hún tær skáldskapur:
Forlög koma ofan að,
örlög kringum sveima,
álögin úr ýmsum stað
en ólög fæðast heima.
Vísur af þessu tagi verða áleitnar við þær kringum-
stæður, sem nú eru í þjóðfélaginu. Ýmislegt liggur í
loftinu og flest þess konar, að það gefur vísbendingu
um, að barningurinn sé rétt að byrja. Hreiðar Eyjólfs-
son Geirdal kvað:
Ekkert gengur. Úfinn sær
utan fleyið lemur.
Öldur falla ein og tvær,
— og sú þriðja kemur.
Græðir blendinn glímir við
gnoð í lendingunni.
Drottins hendi leggur lið
loks að endingunni.
Vel gæti þetta verið ort um ríkisstjórnarfleyið. —
Annars hafa mér borist góð bréf, þar á meðal eitt frá
„vísnabrestsnefndarmanni":
„Herra Loðnubrestsnefndarmaður (frb. samkv. fjöl-
miðlum: Loðnubressnefnd), Halldór Blöndal.
Af þeim þúsund nefndum sem ríkisstjórnir vorar
skipa árlega þykir oss sú vera merkust er Loðnubress-
nefnd heitir með stórum staf.
Einkum þykir oss nafnið svipfrítt og vekur það fjör-
ugan huga til margskonar hugleiðinga um lífið og hið
einkennilega sjávardýr er loðna nefnist og Petter Dass
hafði andstyggð á hér fyrrum einsog fram kemur í
Trómeti hans, þetta var raunar siðferðilegt vantraust á
kykvendi þessu. En um leið og vér hugleiðum loðnubrest
og hin margvíslegu rök tilverunnar er fylgja, dettur oss
í hug visnabrestur í ágætum þáttum þínum og leggjum
til að Tóroddar skipi vísnabrestsnefnd (með litlum staf
þó). Mætti vera skipuð utanþingsmönnum. Vér sendum
þér nú nokkrar hugleiðingar sem þakklætiskveðju fyrir
áhuga á vísnagerð og loðnuvernd og má Steingrímur
eiga afganginn eins og börnin okkar segja:
llamingjan er oss sem gönguhestur,
grátið er margt það sem fyrr var á döfinni.
Lífið er allsherjar loðnubrestur
og lagast víst trauðlega fyrr en í gröfinni.
Einn velur flugvél eða skip,
annar dinglast á hesti.
Þriðji labbar (með sútarsvip)
svekktur af loðnubresti.
Skipst var á skömmum og pústrum,
skemmdarverk tiðkuð og dreymt um hefnd.
Þar til féllust í faðma
Framsókn og íhald í Loðnubressnefnd.
Fjárþrot útgerðarbænda bíður,
bátar dregnir í naust.
Nú treystir blásnauður landsins lýður
á Loðnubressnefnd í haust.
Blöndal varð lengi brautin hál,
bauðst engi griðastaður.
Loksins varð hann af lifi og sál
Loðnubressnefndarmaður.
Stefáni, fóstra Framsóknar,
finnst enn að muni verstur
í lífsgæðastriði landsbyggðar:
Lambakjötsmarkaðsbrestur.
Áníðslan getur gengið langt,
gefumst vér upp í hrönnum.
Lífið má vera leitt og strangt
Loðnubressnefndarmönnum.
Útgerðar-bænda böl er margt,
bjargarleið hvurgi sén.
Loðnubresturinn leikur hart
landsstjórn er þykir klén.
Loðnubressnefnd af náð
nót fylli grunnt í sjó.
Lífið er loðnu háð.
Lífið er gúanó.
Loðna mun leidd á mið.
Loforðin verða efnd.
Loks réttir landsjóð við
Loðnubressvarnarnef nd.
Visnabrestsnefndarmaður
Flugstöðvarbyggingin, sem aldrei rís, hefur mjög ver-
ið á dagskrá undanfarið og stórt tekið upp í sig. Olafur
Jóhannesson, utanríkisráðherra, hefur eðlilega verið
mikið í sviðsljósinu, enda er hann á undanhaldi í mál-
inu. Hann þykist þó hafa rökin sín megin og hefur m.a.
komist svo að orði, að kommúnistar beri fyrir sig „agn-
arlítið fíkjublað" sem þó engan vegi skýli þeirra nekt.
Guðrún Helgadóttir hefur helst orðið til andsvara. Um
þau kvað Móri:
Er hún mætti Óla Jóh.
— í lét karlinn skína
fíkjublað í flýti dró
fyrir blygðun sína.
Bréf og vísur eru þegnar.
Ekki verður meira kveðið að sinni.
Halldór Blöndal
Orlof aldraðra
23. september Grikkland. Örfá
sæti laus.
2. september Portoroz. Biölistl.
3. vikna feröir, dvöl á hóteli
meö hálfu fæöi. Fararstjóri:
Ásthildur Pétursdóttir.
Portoroz
2. september örfá sæti laus
Grikkland
2. september örfá sæti laus
23. september örfá sæti laus
Toronto
26. ágúst örfá sæti laus
2. sept. 11 dagar örfá sæti
laus
Rimini
30. ágúst örfá sæti laus
9. sept. Örfá sæti laus f 11
daga.
Sumarhús í Danmörku
27. ágúst Karrebæksminde
og Karlslunde örfá sæti laus í
2 vikur.
Kaupmannahöfn flug og bíll
13. ágúst 4 sæti laus
20. ágúst örfá sæti laus
27. ágúst örfá sæti laus
Amsterdam
Flug og bfll, verö frá 4.000.-
Flug og hótel í 4 daga. Verö frá
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899