Morgunblaðið - 22.08.1982, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1982'
43
Frá blaðarnannafundi Samtaka raftækjaframletteiida vegna nýútkomins bæklings um íslenzkan rafidnað.
Islenzkur rafíðnað-
uppsláttarrit
HANDHÆGT uppsláttarrit hefur verið gefið út um íslenzkan rafiðnað. Eru
það samtök rafUekjaframleiðenda sem hafa gefið þennan bækling út með
stuðningi verkefnastjórnar iðnaðarráðuneytisins í rafiðnaði. í ritinu eru ýt-
arlegar upplýsingar um fyrirtæki í þessari grein, framleiðsluvörur þeirra,
ráðgjöf og þjónustu, og sérhæfðar vélar og tæki, sem þau ráða yfir.
Á blaðamannafundi, sem Sam- nings- og þjónustufyrirtækja við
tök raftækjaframleiðenda boðaði
til, sagði Ingvi Ingason, formaður
samtakanna, að tölvu- og tækni-
væðing væri í örum vexti í íslenzk-
um fyrirtækjum, bæði hvað varð-
aði framleiðslu og þjónustu. Væri
oft leitað langt yfir skammt varð-
andi tækja- og hugbúnað og fengið
erlendis frá, það sem framleitt er
hér heima fyrir og kostar minni
fyrirhöfn og gjaldeyri, auk þess,
sem þjónusta er miklu nær og
viðhald á tækjum.
Ingvi sagði að vanþekking á inn-
lendri framleiðslu væri ein af
ástæðum til þess, að leitað væri til
útlanda að óþörfu. En úr þessari
vanþekkingu er ætlunin að bæta
með útkomu uppsláttarritsins.
Verður þetta rit sent út í 5—600
eintökum til sveitarstjórna, inn-
kaupastofnana og einstaklinga,
sem hafa með innkaup og notkun
á þessum tækjum. Muni þá mörg-
um koma á óvart, hve miklu bæði
af tækjaframleiðslu og hönnun
hugbúnaðar íslendingar ráða
sjálfir yfir á þessum vettvangi.
Ætti ritið að geta verið verkkaupa
mikil aðstoð, þegar hann ákveður
kaup á vörum og þjónustu.
Samkvæmt bæklingnum um ís-
lenzkan rafiðnað eru það 25 fyrir-
tæki, sem framleiða raftæki og
rafeindatæki. Þessi fyrirtæki eru
nú aðilar að samtökum raftækja-
framleiðenda, sem stofnuð voru á
sl. ári. Þau vinna að sameiginleg-
um hagsmunamálum með því
t.a.m. að meta möguleika inn-
lendra fyrirtækja á að taka að sér
opinber verkefni, aðstoða þau við
að fá opinbera fyrirgreiðslu, stuð-
la að stofnun nauðsynlegra stuð-
rafiðnaðinn, stuðla að hagkvæmri
verkaskiptingu í greininni, beita
sér fyrir samstarfi um útflutning
og þátttöku í sýningum og ráð-
stefnum erlendis, vera tengiliður
við hliðstæð samtök erlend og
beita sér fyrir að rafbúnaður og
raftæki uppfylli skilyrði um gæði,
öryggi °K um þjónustuskyldu
vegna seldra tækja.
Að sögn Guðrúnar Hallgríms-
dóttur, formanns nefndar verk-
efnis í rafiðnaði, þá átti sú nefnd,
sem skipuð var af iðnaðarráðu-
neytinu vorið 1982, að hafa for-
göngu um þróunarátak í rafiðnaði.
M.a. var þessari nefnd falið að að-
stoða fyrirtæki í rafiðnaði við að
stofna samtök rafiðnaðarins og að
kynna getu rafiðnaðarins m.a.
með útgáfu kynningarbæklings í
samvinnu við samtök rafiðnaðar-
ins. Þetta væri nú hvort tveggja
orðið að veruleika.
Um þessar mundir beindist
starfsemi þessarar verkefnis-
nefndar að finna málefnum rafið;
naðarins farveg til næstu ára. í
undirbúningi væru 2 þróunarverk-
efni í rafiðnaði, sem fyrirtækin í
greininni standa að. Annað þróun-
arverkefni rafiðnaðarins miðar að
því að koma upp alhliða þjónustu
fyrir fyrirtækin í greininni. Hitt
verkefnið er sameiginlegt
markaðsátak raf- og málmiðnað-
arfyrirtækja til þess að auka
þátttöku þeirra í verkfram-
kvæmdum tengdum byggingu
virkjana og orkuiðjuvera hérlend-
is.
Sagði Guðrún, að undirbúningi
þessara verkefna yrði lokið í okt.
/nóv. á þessu ári. Jafnhliða þess-
ari undirbúningsvinnu er unnið að
því að efla tengsl rafiðnaðarins
við Iðntæknistofnun íslands. Væri
stefnt að því að rafiðnaðardeild
tæki til starfa við stofnunina á ár-
inu 1983. Væru þessar aðgerðir í
þróun rafiðnaðar og skipulags-
málum mikilvægar. Mörkuðu þær
þáttaskil. Með þessu ætti að tak-
ast að efla innlenda framleiðslu
rafbúnaðar í samræmi við þá auk-
nu notkun, sem fyrirsjáanleg væri
í náinni framtíð á þessum vett-
vangi.
SDÍ þakkar
Formaður Sambands dýraverndunarfélaga, SDÍ, frú Jórunn Sörensen, hafði
samband við Morgunblaðið í gærmorgun vegna fréttanna af björgun grindhval-
anna við Rif.
Sagðist hún vilja biðja blaðið að koma á framfæri við þá ágætu menn sem
stóðu að þessu einstaka björgunarafreki, innilegu þakklæti frá Sambandi dýra-
verndunarfélaga.
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
BENSÍNSTÖÐVAR SKELJUNGS
Dagbók Marilyn
Monroe fundin?
Bón
Hreinsar, bónar og ver, allt í einni umferð
Blue Poly - Bótl (vlð seldum 15 þúsund dóslr af gljáhjupl I fyrra)
Blue Poly - Bflþvottaefnl.
Blue Poly - Fjölvari (á vlnyl, tré, plast, leður, gúmmf o.m.fl.)
Blue Poly - Grunnur (slfpimassabón)
Blue Poly - Krómvari.
Bflþvottaefnl
Fjólvari
Grunnur
Krómvarl
Los Angelcs, 19. ájfúst. AP.
LKIKARI nokkur sem kveðst í
eina tíð hafa starfað með Maril-
yn Monroe, sagði í dag að dag-
bók hennar væri í sínum hönd-
um. Vinir leikkonunnar, sem
halda því fram að hún hafi á sín-
um tíma verið myrt, hafa leitað
dyrum og dyngjum að dagbók
þessari undanfarin 20 ir.
Leikarinn sagði í viðtali við
AP-fréttastofuna að bókin
væri í sínum höndum, en neit-
aði að gefa upp hvernig hún
hefði þangað komist fyrr en
hann hefði haft tal af lögfræð-
ingi sínum.
Einkaspæjari, sem átti lengi
vingott við Marilyn Monroe,
heldur því fram að hún hafi
verið myrt vegna þess að hún
var í þann mund að upplýsa
leyndardóma dagbókarinnar,
sem sagt er að hafi verið ríkis-
leyndarmál er hún komst að
meðan á sambandi hennar og
John F. Kennedy, fyrrum
Bandaríkjaforseta, stóð.
Því hefur einnig verið haldið
fram að í dagbókinni sé að
finna upplýsingar um það
hvernig bandaríska leyniþjón-
ustan hugðist standa að tilræði
við kúbanska leiðtogann Fidel
Castro.