Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982 5 Verkfallið — bresk leikin sjónvarpsmynd um atburðina í Póllandi í ágúst 1980 Á mánudagskvöld kl. 21.35 er á dagskrá sjónvarps leikin bresk sjónvarpsmynd, Verkfallið (Strike). Leikstjóri er Leslie Woodhead, en aðalhlutverkið leik- ur lan Holm. í myndinni segir frá atburð- unum í Póllandi í ágúst 1980, þegar verkfall í skipasmíða- stöðvum í Gdansk varð kveikjan að stofnun óháðu verkalýðssam- takanna Einingar (Solidarnosc) og Lech Walesa varð þjóðhetja á einni nóttu. Sjónvarp kl. 20.55: Jóhann Kristófer — 6. hluti Á dagskrá sjónvarps kl. 20.55 er sjötti hluti mynda- flokksins um Jóhann Kristóf- er. Þýðandi er Sigfús Daðas- on. Tónverk Jóhanns Kristó- fers fá góða dóma í Róm og verður það honum mikil hvatning. En hann á ekki upp á pallborðið hjá París-1 arblöðunum þar til hann hittir aftur Graziu sendi- herrafrú, sem beitir áhrif- um sínum til að greiða götu hans. Helgarferöir-vikuferöir AMSTERDAM eina sanna „Evrópohjarfaó Amsterdam er óumdeilanlega ( sviðsljósinu um þessar mundir - jafnt hér- lendis sem erlendis. Þessi fallega stórborg hefur í æ rlkara mæli tekið við hlutverki hins eina sanna „hjarta Evrópu" og í borginni finnur þú tækifæri til nær allra þeirra hluta sem hugurinn girnist. Næturlífið er fjölskrúðugt og eldfjörugt, verslanirnar í sérflokki, veitingastað- irnir hver öðrum skemmtilegri og listheimurinn óviðjafnanlegur. Slðast en ekki síst mætir þér hvarvetna glaðvært og hlýlegt viðmót sem Hollendingar hafa löngum verið annálaðir fyrir. Hvað er gert í Amsterdam? Einstaklingsferðir Brottför alla föstudaga í 5 daga ferðir. Brottför alla þriðjudaga eða föstu- daga í vikuferðir. InnifaliA f verði: Flug, gisting með morgunverði. Hópferðir aðildarfélaga 5 daga ferðir (hægt að framlengja) Október: 1, 22, 29 Nóvember: 12, 26. Desember: 10. Verslun Glæsilegar verslanir af öllum tegundum. Verðlagið er engu líkt. Veitingahús Veitingahúsin eru frá öllum heims- hornum enda gjarnan sagt að í Amsterdam sé hægt að „borða á öllum tungumálum". Líflegir barir og notaleg kaffihús að auki. Næturlífið Diskótek, næturklúbbar og skemmtistaðir skipta hundruðum. Myndlistin 50 listasöfn, t.d. Rembrandt- og Van Gogh söfnin, Rijksmuseum, Stede- lijks Museum, vaxmyndasafnið Madame Tussaud's, hús önnu Frank o.fl. Tónlistin Klassík, popp, jazz, kirkjuorgel og margt fleira. Snjöllustu listamenn heims troða upp í hverri viku. Gleymum heldur ekki ballettinum og 50 kvikmyndahúsum með allar nýjustu myndirnar með ensku tali. Knattspyrnan Deildarkeppnin, Evrópuleikir, lands- leikir. Verð frá kr. 4.950 Gisting á lúxushótelunum Marriott og Hilton eða á hinu stórskemmtilega og vingjarnlega Parkhotel. Allt einstaklega vel staðsett hótel. Verð er sama og f einstaklings- ferðunum en auk flugs og gistingar með morgunverði er eftirfarandi innifalið: Ferðir til og frá flugvelli erlendis, (slensk fararstjórn og skemmtisigling um síki Amsterdam. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 OJ CM It Verð miðast við flug og gengi 1.9.1982

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.