Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982
27
Einar Jónsson, sagnfræóinemi, með
hluta af þeim beinum, sem hafa
fundist í sumar. Um leið og hann
sýnir okkur þau, segir hann: „Það
hefur augsýnilega alltaf verið stór-
býli á Stóru-Borg. Hér hefur og verið
margt vinnufólk og það hefur áreið-
anlega verið illa launað eins og
vinnufólk hefur alltaf verið á Is-
landi.“
Már Másson að sópa burt mold.
Fyrir framan hann sést ræsi sem
notað hefur verið til að taka við
regnvatni.
„Þessar rannsóknir varpa
nýju ljósi á líf fslendinga“
— sagði Þórður Tómasson safnvörður í Skógum
„RANNSÓKNIR á Stóru-Borg
gefa nýja sýn yfir lifnaðarhætti,
verslun og viðskipti íslendinga við
aðrar þjóðir á miðöldum," sagði
Þórður Tómasson safnvörður f
Skógum, þegar við heimsóttum
hann eftir að við höfðum lokið er-
indi okkar á Stóru-Borg.
„Úr moldu hafa risið margir
hlutir, sem aldrei áður hafa
fundist við uppgröft hér á landi.
Þessi uppgröftur er því mjög at-
hyglisverður til samanburðar
við þær fornleifarannsóknir,
sem gerðar hafa verið á hinum
Norðurlöndunum."
Ennfremur sagði Þórður:
„Hlutir sem komnir eru úr jörðu
á Stóru-Borg eru mjög vel varð-
veittir. Sérstaklega allir lífrænir
hlutir svo sem munir úr leðri,
prjónles, vefnaður og tré. Þetta
Þórður Tómasson með einn þeirra
hluta sem fundist hafa að Stóru-
Borg.
kemur uppúr jörðinni eins og
það fór ofan í hana.
Til skamms tíma hafa menn
staðið í þeirri meiningu að ís-
lendingar hafi átt lélegastan
skófatnað í heimi, en rannsóknir
á Stóru-Borg staðfesta að allur
almenningur á miðöldum hefur
gengið í skóm úr sútuðu leðri, að
meira eða minna leyti. í fundum
frá Stóru-Borg eru leifar af
30—40 skóm úr leðri, af konum
og körlum á öllum aldri, þar
hafa meira að segja fundist skór
af 3ja ára barni. Þar hefur og
fundist prjónaður vettlingur
sem færir upphaf prjónaskapar
aftur um 100 ár miðað við það
sem áður var vitað. Þessar rann-
sóknir geta því gjörbreytt þeirri
ímynd sem við höfum af fortíð-
inni.“
Músikleikfimin
hefst fimmtudaginn 17. september.
Styrkjandi og liökandi æfingar fyrir
konur á öllum aldri. Byrjenda- og
framhaldstímar. Tímar í húsi Jóns
Þorsteinssonar, Lindargötu 7. Kennari
Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma
13022 daglega eftir kl. 3.
PRENTARAR—
ÚTGEFENDUR
Til sölu prentiönaðartyrirtæki í nágrenni Reykjavíkur. Fyrirtækiö er
í fullum rekstri. Gott húsnæöi. Miklir möguleikar.
Nánari uppl. aðeins veittar á skrifstofu.
Fasteignaþjónustan
Autturttrmli 17, *. 26600.
Ragnar Tómasson hdl.
1967-1962
15 ÁR
Það þarf varla aö taka fram, að
Nepal-ferð Útsýnar er ein stór-
kostlegasta ævintýraför, sem viö-
skiptavinir okkar eiga völ á í ár.
Þar, sem takmarkaður
fjöldi kemst með í
þessa óvenjulegu fjalla-
og bátsferð um Hima-
laya-héruðin viljum við
vinsamlega benda
þeim, sem áhuga hafa á
að slást í hópinn að
hafa samband viö Guð-
rúnu Gyðu hjá Útsýn,
sem veitir allar nánari
upplýsingar.
Ævintýraferðinni til Nepal verður hagað á eftirfarandi hátt:
FYRSTA VIKA:
MENNING 0G TRÚARBRÖGÐ
Flogiö um London til Delhi, þar sem dvaliö er í 3 daga; síöan
áfram til Kathmandu, höfuöborgar Nepal. Þarna gefst kostur á
aö skoöa menningarverömæti, s.s. hiö fræga musteri Taj Ma-
hal í Agra, hina fornu höfuöborg Fatehpur Sikri, svo og hin
stórkostlegu hof Buddhatrúarmanna og Hindúa i Katmandu.
ÖNNUR VIKA:
FLJÓTA- 0G FRUMSKÓGARFERÐ
Siglt niöur fossa og flúðir á gúmbátum meðfram stórbrotnu
landslagi. Ákvöröunarstaður er Toyal Citwan þjóögaröurinn,
friöaö svæöi í miöjum frumskógi. Þar er gist í hinum frægu
gistiskálum Tiger Tops. Þar gefst góöur tími til þess aö skoöa
hiö fjölbreytta dýra- og jurtalíf frumskógarins, fótgangandi sem
og á filabaki.
ÞRIÐJA VIKA:
GANGA UM HLÍÐAR HIMALAYA
Undir öruggri leiösögn Sherpa er gengiö um stíga og troöninga
— þjóövegi innfæddra — þar sem einu farartækin eru uxar og
asnar. I þessu ægifagra umhverfi gefst einstakt tækifæri til
þess að kynnast lífi og menningu þessara harögeru þjóöflokka.
Ferðaskrifstofan
ÚTSÝN
Reykjavík:
Austurstræti 1,
sími 26611.
Akureyri:
Kaupvangsstræti 4,
sími 22911.