Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982
Hræringur
Næturflug með
fljúgandi furðuhlut
Næturflug VASP flugvélar frá
Fortaleza í Brazilíu tii Sáo Paulo
hinn 8. febrúar sl. hófst með venju-
legum hætti. Farþegarnir komu sér
notarlega fyrir í sætum sínum og
bjuggust til svefns eftir að ljósin í
farþegarýminu höfðu verið deyfð.
En værð þeirra var skyndilega rof-
in er æst rödd flugmannsins, Ger-
son Maciel De Britto hljómaði í
kallkerfinu: „Ég sé fljúgandi furðu-
hlut fjörutíu eða fimmtíu mílur til
vinstri við okkur," tilkynnti hann.
Gerson Maciel De Britto við stjórn-
völ flugvélar sinnar.
„Kg bið ykkur öll að verða vitni að
þessu.“
Farþegarnir urðu þess nú varir
að flugvélin var böðuð Ijósi; þeir
litu út um gluggana og næsta
klukkutímann og 22 mínúturnar
sáu þeir rauöa, rauðgula, hvíta og
bláa Ijósglampa á næturhimninum.
De Britto flugmaður fullyrðir að
hann hafi séð eitthvað sem líktist
„geysistórum hveljulaga disk með
fjórum skærum Ijósum og þaut
hann um loftið með miklum hraða".
De Britto reyndi að komast í sam-
band með þvi að kalla diskinn upp á
portúgölsku og ensku. Þegar það
bar engan árangur, segist hann
hafa einbeitt sér allt hvað af tók í
því skyni að koma á hugsanaflutn-
ingi milli sín og veranna í disknum.
Rétt áður en hann millilenti í Ríó
de Janero, tilkynnti De Britto til
flugturnsins að ljósið væri aðeins
átta mílur frá flugvélinni og nálg-
aðist stöðugt. Á ratar sést hins veg-
ar ekkert til disksins og þegar
flugturninn í Ríó spurði þrjá aðra
flugmenn, sem voru á svipuðum
slóðum, hvort þeir sæju nokkuð til
furðuhlutarins, svöruðu þeir allir
neitandi. Skömmu síðar hóf flokkur
brazilískra orrustuflugvéla leit að
furðuhlutnum, en alveg án árang-
urs.
Farþegarnir, um 100 manns,
töldu sig allir hafa séð hinn bjarta
furðuhlut, og daginn eftir voru allir
helztu fjölmiðlar í Brazilíu með
fréttir af atburðinum. Næstu daga
höfðu fréttamenn viðtöl við störnu-
fræðinga og sérfræðinga í fljúgandi
furðuhlutum — kom þá m.a. fram
að hinn 8. febrúar hafði Venus ein-
mitt risið á austurhimninum kl.
3.10 eftir miðnætti.
En getur hugsast að Venus hafi
gefið frá sér svo bjart og litríkt
ljós? Dr. J. Allen Hynek, stjórnandi
„Rannsóknarmiðstöðvar fljúgandi
furðuhluta" í Illinois í Bandaríkj-
unum telur það vel hugsanlegt.
„Venus hefur þykkan lofthjúp sem
virkar eins og kristall gagnvart sól-
arljósinu," segir hann. „Þegar plán-
etan rís lágt á himni getur hún því
blikkað í ýmsum litum, og þegar
hún er hátt á himni getur hún gefið
frá sér töluverðan ljóma."
En De Britto flugmaður fullyrðir
að hann hafi séð Venus auk hins
einkennilega ljósfyrirbæris. Þar að
auki telur hann víst að hlutnum
hafi verið stjórnað af vitsmunaver-
um, því hann hefði ávallt haldið
stöðu sinni óbreyttri gagnvart
flugvélinni, jafnvel þá De Britto
breytti stefnunni um 51 gráðu. „Ef
þessi flugmaður segir sannleikann,
þá hefur þetta ekki verið Venus. Og
ef það var ekki Venus, þá hefur
þetta verið fljúgandi furðuhlutur,"
segir Dr. Hynek.
Hlekkir
Gulagsins
„Á þeim fjölmörgu árum
sem ég dvaldi í þrælkunarbúð-
um meðal pólitískra fanga í
Sovétríkjunum, fann ég oft
einkennilega neikvætt viðhorf
hjá þeim gagnvart væntanlegri
brottför þeirra úr fangabúðun-
um. Maður skyldi ætla að dag-
ur frelsisins, eftir löng ár þján-
ingar og einangrunar, vekti til-
hlökkun og von — en þannig
var því ekki varið," skrifar sov-
ézkur geðlæknir, Semyon
Gluzmann, sem eyddi allmörg-
um árum í þrælkunarbúðum í
Rússlandi vegna pólitískra
skoðana sinna, i bandarísku
tímariti um geðlækningar,
„American journal of
Psychiatry".
„Ég tel að skýringin á þessu
sé sú að í fangabúðum Sovét-
ríkjanna hafi myndast eins-
konar pólitiskir menningaraf-
kimar. Pólitískur fangi vill
ekki samsamast hinu stóra
samfélagi utan fangabúðanna,
en samræmist hins vegar
menningarafkimanum innan
þeirra — þar getur hann lifað
með viðhorfum sínum án sam-
viskubits. Umskiptin frá lífinu
innan fangabúðanna til hins
„frjálsa" lífs í Sovétríkjunum
veldur þannig skertri tilfinn-
ingu fyrir innra frelsi.
Brottför frá Sovétrikjunum
væri eina leiðin sem duga
myndi til að losa þessa póli-
tísku fanga við ótta þeirra við
að verða samdauna hinu sjúka
samfélagi utan fangelsismúr-
anna. En fyrir pólitíska fanga í
Sovétríkjunum er þessi leið því
miður gersamlega ófær ...“
Vélmennið og teningurinn
Hópur verkfræðinema við há-
skólann í Illinois í Bandaríkjun-
um hefur hannað vélmenni sem
getur auðveldlega raðað töfra-
teningnum, sem kostað hefur
margan manninn svo mikil heila-
brot. „Heili" vélmennisins leysir
þrautina á einum tíunda úr sek-
úndu, en þar sem vélmennið
sjálft er dálítið seint í snúning-
um er það fimm til sex mínútur
að framkvæma röðunina.
Röðunin fer þannig fram:
Nemandi gerir tölvunni grein
fyrir hvaða litir eru á hliðum
teningsins sem látinn hefur verið
í hendur vélmennisins. Tölvan
finnur lausn gátunnar og gefur
vélmenninu síðan skipanir um
einstakar hreyfingar. Tvær
stengur undir teningnum velta
honum þar til sú hlið sem tölvan
tiltekur snýr upp. Þá ýta þeir
armar teningnum undir „hönd“
vélmennisins, sem grípur um
efsta lag hans, snýr því að fyrir-
mælum tölvunnar og lyftir hon-
um síðan til að hægt sé að velta
honum við á ný. Það tekur vél-
mennið töluvert lengri tíma að |
raða teningnum en færustu
menn á þessu sviði. Stafar það af
því hversu margar hreyfingar
vélmennið þarf að framkvæma
— 90 að meðaltali, áður en ten-
ingnum hefur verið raðað að
fullu.
Smíði vélmennis þessa kostaði
400 dollara og tók það verkfræði-
nemana fimm mánuði að koma
því saman. Aðeins fáir hönnuð-
anna kunnu skil á því hvernig
skal raða töfrateningnum, en
persónuleg reynsla þeirra sem
eitthvað kunnu á teninginn,
ásamt leiðbeiningum úr bók um
hann, var færð inn á tölvu vél-
mennisins og reyndist þetta sam-
safnaða vit nægilegt þegar til
kom. Þeir hönnuðanna sem ekk-
ert kunnu á teninginn höfðu eng-
an áhuga á að læra á hann. Eða
eins og einn þeirra lét hafa eftir
sér: „Er það nokkuð annað en
hrein tímaeyðsla þegar maður
hefur vélmennið við hendina?."
Fyrirtæki til sölu
Lítiö heildsölufyrirtæki til sölu. Gott tækifæri til þess
aö hefja eigin atvinnurekstur. Viöskiptasambönd inn-
aniands og utan þegar fyrir hendi.
Þeir sem hafa áhuga hafi samband viö Jón Hjörleifs-
son í síma 28466, fyrir 26. þessa mánaöar.
Sinfóníuhljómsveit
íslands
Sala og endurnýjun áskriftarskírteina
fyrra misseris þessa starfsárs hefst
þriðjudaginn 18. þessa mánaöar á
skrifstofu hljómsveitarinnar, Hverf-
isgötu 50, 4. hæö, sími 22310 (athug-
iö nýtt heimilisfang).
Áskrifendur hafa forkaupsrétt á skírt-
einum sínum til og meö 24. þessa mán-
aðar.
Sinfóníuhljómsveit íslands.
f
íhino
©
Einstakt tækifæri
Eigum til afgreiöslu nú þegar tvo Hino-vörubíla á veröi
síöan fyrir gengisfellingu:
1. Hino KL 645. Heildarþyngd 9,5 tonn, vél 6 cyl., 165 hö.
7 dekk 825x16 fylgja. Verö kr. 276.800.
2. Hino KM 600. Heildarþyngd 8,4 tonn. Vél 6 cyl., 100 hö.
7 dekk 750x16 fylgja. Verö kr. 255.200.
Góöir greiðsluskilmálar.
BÍLABORG HF
Véladeild
Smiðshöföa 23, sími 812 99