Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982 39 Áhöfn R/ V Shakwe árið 1980. Joseph, sem nefndur er í viðtalinu, er lengst til vinstri. Að fengnum góðum afla á Malindi-banka. Mest sardínur og rækja. Trollið komið í sjóinn í fyrsta róðri, 3—4 mílur út af Malindi. Bátar innfæddra á Viktoríuvatni. Þeir stunda eingöngu netaveiði og nota mjög stórriðin net, 12—14 tommu. nú einmitt hugmyndin með þessu." Fiskurinn ellidauður í vötnunum „Hin litla fiskveiði við austur- strönd Kenya stafar ekki hvað síst af því, hve landgrunnið er lítið. Það snardýpkar strax fyrir utan kóralrifin. Síðan bætast við mjög sterkir straumar, sem fara upp í allt að 5% mílu þegar mest er, en hálft árið blæs sterkur monsún- vindur frá suðaustri. Það, sem var erfiðast við þetta allt, var að útvega varahluti í bát- inn. Það er óskaplega seinlegt að koma hlutum í gegnum kerfið. Við heyrðum fyrst undir ráðuneyti sem fjallar um málaflokkinn ferðamál og villt dýr (Tourism and Wildlife), en síðar um skeið undir umhverfisrannsóknaráðu- neytið, en loks vorum við aftur sett undir ferðamálaráðuneytið. Rikisstjórn Kenya átti bátinn og sá um að reka hann, að öðru leyti en því að Þróunarsamvinnu- stofnunin borgaði mín laun og veiðarfærakostnað auk smáupp- hæða til að standa straum af minniháttar viðgerðum. Á meðan ég dvaldi í Mombasa fór ég tvívegis upp að Viktoríu- vatni til að leiðbeina þar. Það var á ýmsan hátt skemmtilegra en við ströndina, því í vatninu er veru- lega mikill fiskur og mikið hægt að gera. Ég mun mæla með því við ráðherra hér heima, að aðstoð okkar verði beint þangað upp eftir í auknum mæli ef um áframhald- andi aðstoð verður að ræða. Það er hræðilegt til þess að vita að á sama tíma og geysilegur skortur er á eggjahvíturíkri fæðu í þessum heimshluta verður fiskur ellidauð- ur í stórum stíl, bæði í Viktoríu- vatni og Turkana-vatni. Þetta er fyrst og fremst vegna lélegs út- búnaðar fiskimannanna. Þeir eru að veiðum á litlum seglbátum, með léleg net. Engar togveiðar eru stundaðar. Annað vandamál er svo við sjávarsíðuna, en það er að stund- um er logn kannski allan daginn, svo seglbátarnir sem þar hafa ver- ið að veiðum, komast ekki að landi með aflann í tæka tíð og verða að fleygja honum, enda hitinn oft um 40 gráður og sólin beint í hvirfil- i inn.“ Aflinn tífaldaðist „Á Viktoriuvatni gerðum við til- raunir með togveiðar, bæði á ein- um bát og tveimur, og gáfu þær góða raun. Þeir voru eitthvað byrjaðir sjálfir að prófa þetta þeg- ar ég kom þangað, en það gekk ómögulega, trollið var allt í vit- leysu og rangt tengt í hlerana og án „grandara". í vatninu lifir stór ránfiskur, sem heitir Mbuta á máli þarlendra en er kallaður Nile Perch á ensku. Þennan fisk er auðvelt að veiða í troll' og það er reyndar orðið að- kallandi að margra áliti, því hann er að éta upp aðra fiskistofna í vatninu. Þessi fiskur lifir í allt að því 25 ár og getur orðið 200 kíló á þyngd. Meðallengd er 80—90 sentimetrar. Nú er árlega veidd um 31 þús. tonn af ýmsum fiski í Viktoríuvatni og telst það tæplega 60% af heildarafla landsmanna. Þessar veiðar mætti auka stór- lega. Eftir fyrstu breytingarnar, sem ég gerði á trollunum sem þeir voru að prófa þar, fjórfaldaðist aflinn og eftir frekari endurbætur tífaldaðist hann. Tilraunirnar með tveggja báta troll skiluðu góðum árangri, en við urðum að hætta þegar við urðum uppi- skroppa með olíu. Á þessum slóð- um vantar núna bráðlega skip- stjóra á nýjan bát, sem sendur verður þangað af stjórninni." „Hef kunnað betur við Kenya en ísiand“ En hvernig er að búa á svo fjar- lægum stað. Ég spurði Helenu Líndal, dóttur Baldvins, um það. Hún er nú að hefja nám í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. „Já, bæði ég og bróðir minn, Gísli Rúnar, erum að byrja núna í MH og okkur líst mjög vel á þetta. Þetta er svolítið erfitt með ís- lenskuna, við erum búin að vera í skólum úti í sex ár, en þar hefur kennslan farið fram á ensku, bæði í Yemen og í Kenya. En þótt við séum töluvert á eftir í íslensku, erum við á hinn bóginn búin neð nám í ensku og eðlisfræði og hálfnuð með þýskuna, svo þetta ætti að ganga ágætlega. Mig hefur aldrei langað heim, þegar við höfum verið úti, og reyndar alltaf kunnað betur við Kenya en Island, en þess er nú kannski rétt að geta í því sam- bandi, að síðustu fjögur árin höf- um við aðeins verð einn mánuð hér á landi. Mér finnst að það gæti nokkurr- ar þröngsýni hjá vinkonum mín- um, þegar ég segi þeim frá Kenya. Þeim líst ekkert á þetta fjarlæga land með ljónum og hvers kyns villidýrum. Það er allt í lagi að hafa ekki áhuga á að búa erlendis, en það er varasamt að vera að tala mikið um eitthvað sem maður þekkir ekki. Það er helst slíkt tal sem fer dálítið í taugarnar á mér. Það hefur auðvitað haft mikil áhrif á mig að búa á þessum stöð- um. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á dýrum og við jafnan átt mikið af þeim og ég gæti hugsað mér að læra dýralækningar, en það er þó ekkert ákveðið. Ég hef gaman af að ferðast og áhuga á að kynnast sem flestu og ekki endi- lega búa alltaf á sama stað. En ég skrifast alltaf á við bestu vinkon- ur mínar hér heima." Rimlar fyrir gluggunum „Við erum öll búin að upplifa margt,“ bætir Baldvin við,“ og bú- in að lenda í ýmsu. Það er mikið um glæpi í Kenya og þannig var jafnvirði 30 þús. króna stolið frá okkur um daginn og skömmu síðar var stolið fötum úr bílnum okkar. Við vorum alltaf með tvo varð- hunda, Úlf og Kát, og rimla fyrir gluggunum á húsinu. Það var líka alveg rafmagnað andrúmsloft, þegar uppreisnin var gerð núna í byrjun ágúst, en hún var strax bæld niður af hörku, sem kunnugt er. Sunnudaginn 2. ágúst voru all- ir skotnir í Nairobi sem ekki voru með skilríki á sér. Einn úr áhöfn minni bjargaði lífi annars manns með því að lána honum hafnar- passann sinn. Þetta gekk allt stórslysalaust hjá mér. Einu sinni urðum við fyrir vélarbilun úti á sjó og við vorum að berjast við að koma henni i gang aftur í 24 tima og það tókst loks, þegar við áttum eftir skammt að kóralrifinu, fimm míl- ur norður af Mombasa, og við komumst á lítilli ferð inn í höfn- ina. Annað sinn vildi það til að það kviknaði í niðri í vél á meðan við vorum með trollið úti, á Malindi- banka. Okkur tókst fljótt að slökkva en það urðu töluverðar skemmdir og við urðum að sigla á hálfri ferð til Mombasa. Eitt síðasta verkefni mitt áður en ég hélt heimleiðis var að draga á flot strandaðan hafrannsókna- bát og það er til marks um þá sterku strauma sem þarna eru, að við vorum 6 eða 7 tíma á leið norð- ur að strandstaðnum, en 21 tíma til baka, eftir þriggja daga stíma- brak við björgunaraðgerðirnar. Við fórum annars að jafnaði 34 túra á ári, frá einum degi og upp í viku, átta daga túra. En það var aldrei hægt að byrja að veiða í þessum lengri túrum, fyrr en síð- ustu dagana og stíma svo yfir nótt til Mombasa, því frystigræjurnar í iestinni voru aldrei í lagi.“ Kannski næst til Mauritius „Fólkið í Kenya er mjög gott og allir áhafnarmeðlimirnir urðu heimilisvinir okkar. I öðrum lönd- um eru menn oft fjandsamlegir í garð yfirboðara sinna, sérstaklega ef þeir eru reknir úr vinnu eða eitthvað slíkt. í Yemen var klagað í forsetann fyrir að ég væri að klára allan fiskinn i Rauðahafinu, eins skynsamlegt og það er. Það eru talaðar 23 mállýskur í Kenya, en fólk sameinast um ensku annars vegar og Ki-Swahili hins vegar. Fiskurinn á þessum slóðum er mjög góður til matar og ekki síður rækjan og humarinn. Aðrar teg- undir sem við borðuðum voru t.d. Barracuda, King Fish, lúða og Rock Cod, sem er svipaður okkar þorski. Þá var líka mikið um Sard- inellu, sem er lík smásíldinni á Akureyrarpolli. Nautakjöt er mjög ódýrt ennþá, en innfluttar vörur allar mjög dýrar. Það er dýrmæt reynsla að hafa búið á slíkum stað og kynnst þessu fólki sem um svo margt er ólíkt okkur, og getað orðið því að liði. Það er leitt til þess að vita, að nú er ekki alveg ljóst hvort um fram- hald verður að ræða á þessari að- stoð og sérlega illt þykir mér, að þeir efnilegustu af nemendum mínum þarna suður frá hafa enn ekki getað fengið að koma hingað og fara á sjó og síðan í Stýrimannaskólann, eða Vélskól- ann. Slíkt væri mikils virði fyrir þessa fjarlægu þjóð. Að minnsta kosti einn þessara nemenda minna er þannig tilbúinn til að greiða fargjaldið sitt sjálfur, fái hann leyfi tl að koma og læra hér og vinna um skeið, sá heitir Joseph Mwanthi. Hvað tekur nú við hjá mér, er ekki alveg ljóst. Ég er enn á laun- um frá Þróunarstofnun og á eftir töluvert sumarfrí. Rætt hefur ver- ið um að fara til eyjarinnar Maur- itius til starfa og er ég því hlynnt- ur að við beinum aðstoð okkar að litlum ríkjum, þar sem hún er bet- ur metin en þar sem stór og rík lönd eru líka með hjálparstarf- semi. Staðreyndin er sú að hálp í smáum stíl skilar oft betri árangri en aðstoð stóru stofnananna." SIB

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.