Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982
45
á svið og banna honum að reykja
enda væru reykingar bannaðar í
salnum. Sá næsti átti að koma
upp á sviðið um leið og hann
heyrði klyngja í glösum, en þá
átti hann að biðja um tónlist og
stjórna síðan „hljómsveitinni".
Sá þriðji átti að skjóta dávaldinn
í afbrýðikasti er hann sæi hann
gerast of nærgöngulan við stúlku
eina í salnum.
Eftir að hafa gefið fyrirmælin
vakti dávaldurinn mennina og
fengu þeir sér sæti í sal. Frise-
nette tók þá til við að stöðva
hjartslátt sinn í eina mínútu og
gekk það að óskum eins og áður
greinir. Síðan dáleiddi hann hvít-
an, reiðan hana, svo haninn varð
ljúfur eins og lamb, settist niður,
slappaði af og fékk sér sígarettu.
Frisenette fékk sér einnig að
reykja og það var eins og við
manninn mælt, — „lögreglu-
þjónninn" kom strax upp á svið
og harðbannaði honum að reykja
og vildi hann helst fara með dá-
valdinn niður á stöð. Að þessu
atriði loknu sló dávaldurinn
saman glösum og „hljómsveitar-
stjórinn" kom strax upp á svið,
bað um tónlist og tók til við að
stjórna „hljómsveitinni". Frise-
nette fékk nú stúlku eina úr saln-
um til að koma upp á svið og um
leið og hann fór að gera sér dælt
við hana kom sá „afbrýðisami"
upp, greip skammbyssu sem lá
þar á stól og skaut dávaldinn.
Hann var strax vakinn og var
greinilegt að honum var nokkuð
brugðið fyrst á eftir.
Síðasta atriðið hjá Frisenette
var að dáleiða „hljómsveitar-
stjórann” aftur og í þetta skipti
lét dávaldurinn hann liggja stíf-
an og láréttan á milli tveggja
stólbaka og Jörundur klifraði
upp á magann á honum, en sá
stífi lét sig hvergi.
Þannig lauk þessari ágætu
kvöldskemmtun og þar með
væntanlega löngum og glæsi-
legum ferli dávaldsins Frise-
nette. Meðfylgjandi myndir tók
ljósmyndari Morgunblaðsins,
Ragnar Axelsson, á skemmtun-
inni á fimmtudagskvöldið.
— Sv.G.
iniDssonnR
OOO
INNRITUN
OG UPPLÝSINGAR
KL. 13-19
SIMAR: 38126 74444
llll
Kennslustaðir
Reykjavík
~ INNRITUN
mánudag til föstudags
Jazzballett er sérstaklega
holl og góð hreyfing og
vægast sagt mjög skemmti-
legur. Viö höfum fengiö til
liös viö okkur stórgóöan
kennara Kristínu Svavars-
dóttur, sem kennt hefur
jazzballet í 10 ár í Dan-
mörku.
DRRSSHAll