Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982
29
Tónlistardagar Dómkirkjunnar:
Guði til dýrðar og
fólki til uppbyggingar
Kór Dómkirkjunnar og söng-
stjóri hans sjá um framkvæmd
Tónlistardaganna sem haldnir
verða undir yfirskriftinni: Soli
Deo gloria — Guði til dýrðar og
fólki til uppbyggingar. Markmið
tónlistardaganna á hverju ári á að
vera að: Kynna eitt tónskáld sér-
staklega, fá eitt tónskáld til að
semja verk sérstaklega fyrir Tón-
listardagana og greiða veg lengra
aðkomins tónlistarfólks.
Dómkórinn í Reykjavík við Dómkirkjuna.
Fyrstu Tónlistardagar Dóm-
kirkjunnar verða 29.—31. október
næstkomandi og verða þá haldnir
þrennir tónleikar og ein messa.
Páll Isólfsson verður kynntur og
er það vel við hæfi í Dómkirkjunni
að hann skyldi verða fyrstur fyrir
valinu. Öll orgelverk Páls verða
flutt og skiptast Hörður Áskels-
son, Haukur Guðlaugsson og
Marteinn H. Frðriksson á um að
leika verkin.
Hjálmar Ragnarsson tónskáld
hefur samið verk sérstaklega fyrir
Tónlistardagana og nefnir hann
það „Gloria in excelsis. Þá hefur
Kirkjukór Akraness verið boðið að
syngja á Tónlistardögunum og
verður hann með eina tónleika
undir stjórn Hauks Guðlaugsson-
ar, söngmálastjóra þjóðkirkjunn-
ar. Haukur hefur ákveðið að
hætta með Kirkjukór Akraness og
verður þetta að líkindum síðasta
tækifærið til að hlýða á Kirkjukór
Akraness undir hans stjórn.
Við messu á Tónlistardögunum
flytur Dómkórinn verkið „Hneig
þú eyra að hrópi mínu, Guð“ eftir
Mendelssohn í fallegri þýðingu
Þorsteins Valdimarssonar og Elín
Sigurvinsdóttir syngur einsöng.
Hlutur Dómkórsins og stjórn-
anda hans, Marteins H. Friðriks-
sonar, verður að sjálfsögðu mestur
í Tónlistardögunum en að sögn
formanns og stjórnanda kórsins
verður starfsemi hans með hefð-
bundnu sniði að öðru leyti í vetur.
Jólatónleikar og vortónleikar
verða haldnir og nú um þessar
mundir er verið að taka upp jóla-
lög á vegum nýstofnaðrar Skál-
holtsútgáfu sem gefin verða út á
snældu fyrir jólin.
Marteinn H. Friðriksson, aönfntjóri Dómkórsins (Lv.), og Wincie Jóhanns-
dóttir, formaður kóraina. MorgunbiaðiA/ Kristján
„ÞÓ ÞAÐ sé í sjálfu sér nóg
um að vera í íslensku tónlist-
arlífi, þá er flutningur og
samning kirkjulegra tónlist-
arverka lítill og hefur farið
minnkandi. Til þess að reyna
að hafa áhrif á þróunina og
bæta úr þessu að einhverju
leyti, hefur verið ákveðið að
Kór Dómkirkjunnar gangist
fyrir árlegum tónlistar-
viðburði á haustin undir
nafninu „Tónlistardagar
Dómkirkjunnar“, sögðu
Marteinn H. Friðriksson,
söngstjóri Dómkórsins, og
Wincie Jóhannsdóttir, for-
maöur kórsins, í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins.
Kaupmannahafnar?
bjóðum
Islendinga
sérstaklega
velkomna.
iSmaa hieml
JERNBANEGADE
u Vestergade
Munið
Vínkjallarann
músik
og dans.
FIMMTUDAGA - FÖSTUDAGA - LAUGARDAGA
KIDDI VILHELMS SPILAR OG SYNGUR.
Borðapantanir í si'ma 01 —110295
Beztu kveðjur «,
^- Baldur Heiðdal.
Margrél Kjartansdóllir.
Rádhus
plads
Vestcrbrogade
umu
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
0KENWOOD KASSETTUTÆKI
- m -----— —----------------------- KY.7n- ClálfwlvÞ..* I .
i-----------i mk. urvct
KX-70: Sjálfvirkur lagaleitari. Innstilling
fyrir síendurtekna spilun á sömu kass-
ettuhliðinni eöa sama laginu. Sórstakur
upptökurofi fyrir hljóönema sem gerir
mögulegt að syngja eöa tala ofaní
upptökur. Tveir DC mótorar og Amorph-
ous Alloy tónhaus, upplýstur tveggja lita
upptökumælir og innbyggt DOLBY kerfi.
Stilling fyrir Normal METAL og CrOJ
Tón- og suöhlutfall betra en 68dB, tíö-
nisvörun 20— 18kHz, ganghraöafrávik
minna en 0.04%(WRMS), rafeindastvröir
snertirofar. Greiðslukiör 3.000 útt
Rest a 4 man.
Staðgreiðsluverð 6.555.
með lagaleitarg, dolby og sispilun
AKRANES Bjarg SAUÐÁRKRÓKUR Radio og sjónv. þjónustan SEYÐISFJÖRÐUR Versl. Stál
BORGARNES Kaupf. Borgf. B. AKUREYRI KEA EGILSSTAÐIR Versl. Skógar
ÍSAFJÖRÐUR Póllinn SIGLUFJÖRÐUR Versl. ögn HELLA Versl. Mosfell
BOLUNGARVÍK Einar Guðf. HÚSAVÍK Bókav. Þórðar Stef. SELFOSS Radio og Sjónv. stofan
FALKIN N
SUÐURLANDSBRALTT 8 SÍMI85884