Morgunblaðið - 24.11.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. NÓVEMBER 1982
3
„Meðan lífið yngistu
AB gefur út nýja skáldsögu Kristjáns Albertssonar
Út er komin hjá Almenna bókafé-
laginu ný skáldsaga eftir Kristján
Albertsson. Heiti hennar er Meðan
Kristján Albertsson
lífið yngist og er samkvæmt bókar-
kynningunni nútímasaga sem gerist
að miklu leyti í Reykjavík og á Akur-
eyri.
„Hún kynnir okkur sérkenni-
legar persónur úr athafnalífi,
stjórnmálalífi og menningarlífi og
margt ber á góma í fjörugum við-
ræðum sem ekki hvað síst snúast
um fornt og nýtt í íslensku þjóð-
lífi,“ segir í bókarkynningu.
„Óvenjuleg örlög óvenjulegs
fólks verða uppistaða ástarsögu
sem vænta má að ýmsum þyki
nokkuð einstæð í íslenskum bók-
menntum."
Kristján Albertsson hefur nú
lifað langa ævi og hefur mörgu og
margvíslegu kynnst. Má vænta
þess að sagan beri nokkur merki
þess.
Meðan lífið yngist er 180 bls. og
unnin í Prentverki Akraness.
Aðalfundur LÍÚ
hefst í dag
AÐALFUNDUR Landssambands islenskra útvegsmanna hefst kl. 14.30 í
dag, miðvikudag, en aðalfundurinn verður haldinn í Átthagasal Hótel Sögu.
Fundinum lýkur á fóstudag.
I upphafi fundarins flytur
Kristján Ragnarsson, formaður
LIU ræðu, en síðan flytur
sjávarútvegsráðherra, Steingrím-
ur Hermannsson, ávarp. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa
munn Jón Jónsson fiskifræðingur
flytja ræðu um ástand helstu
fiskistofna við ísland. Fundar-
mönnum verður skipt í þrjá um-
ræðuhópa og í þeim fjallað um eft-
irtalin atriði: 1. Fiskveiðistefnu og
veiðitakmarkanir, 2. Rekstrarskil-
yrði og afkomu fiskveiðiflotans, 3.
Gæði fiskafla og sjávarvörufram-
leiðslu.
Að matarhléi loknu ræðir Ólaf-
ur Davíðsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar, um rekstrarskil-
yrði og afkomu fiskveiðiflotans og
Björn Dagbjartsson, forstjóri
Rannsóknarstofnunar fiskiðnað-
arins, um gæði fiskafla, en að er-
indum þeirra loknum verða leyfð-
ar fyrirspurnir.
A fimmtudag starfa starfshóp-
ar og síðdegis verður sameiginleg-
ur fundur þar sem kynnt verða
nefndarálit um vátryggingu skipa
undir 100 rúmlestum að stærð og
nýbyggingarsjóð fiskiskipa. Þá
munu starfshópar gera grein fyrir
störfum sínum.
Á föstudag fer m.a. stjórnarkjör
fram.
Geir Hallgrímsson
Þórir Lárusson
Landsmálafélagið Vörður:
Aðalfundur í kvöld
AÐALFUNDUR Landsmálafélags-
ins Varðar verður haldinn i kvöld,
miðvikudagskvöld, klukkan 20.30, í
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Þórir Lárusson, sem verið hefur
formaður Varðar sl. tvö ár hefur
ekki gefið kost á sér til endur-
kjörs. Uppstillinganefnd, sem kos-
in var á félagsfundi Varðar fyrir
u.þ.b. þremur vikum, hefur gert
tillögu um eftirfarandi stjórn:
Formaður: Gunnar Hauksson.
Meðstjórnendur: Júlíus Hafstein,
Gísli Jóhannsson, Elín Pálmadótt-
ir, Gústaf B. Einarsson, Guð-
mundur Jónsson og Kristinn
Jónsson. Til vara: Ragnheiður
Eggertsdóttir, Þórarinn Þórar-
insson og Svala Lárusdóttir.
Ræðumaður kvöldsins verður
Geir Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins. (Fréiutilkvnning)
Flkniefnamisferli:
Núeru
skíöaferðimar
til Aushirrflds
aðhefjast!
Við bjóðum sérstakt nýársverð
í ferðina 2. janúar:
Verð frá 7.427.00 krónum!
Austurríska skfðaparadfsin bfður þfn:
Kitzbuhel, Zillertal, Lech eða Badgastein.
Fyrsta flokks hótel, vinaleg „pensjónöt", litlir bjálka-
kofar, stór þakskegg, gluggahlerar, bitar í loftum,
vingjarnlegt fólk,
— hlýlegt andrúmsloft!
T-lyftur, stólalyftur, svifbrautir, skíðaskólar, kennarar í
rauðum úlpum, brautir merktar miðað við getu skíða-
mannsins, barnabrekkur, safarileiðir
— endalaus skfðasvæði!
Veitingahús í miðjum brekkum, pylsur, fjallabrauð,
heiður himinn, gúllassúpa, Jágertee, tært fjallaloft, öl,
sólstólar, Obstler, útsýni
— GlUhwein!
Gufuböð, sundlaugar, sleðaferðir, matsölustaðir, róman-
tískar gönguferðir, dans, kaffihús, söngur
— austurrfsk stemning!
Skíðaferðirnar til Austurríkis eru draumaferðir fyrir alla.
öll aðstaða er frábær og hentar jafnt skussum sem
skíðameisturum
- skfðakunnáttan verður eiginlega
að aukaatriði!
Við fljúgum beint ( snjóinn í Innsbruck annan hvern
sunnudag í vetur frá og með 19. desember.
Þrennt situr nú inni
ÞRENNT situr nú í gæzluvarðhaldi
vegna umfangsmikils fíkniefnamis-
ferlis sem fíkniefnadeild lögreglunn-
ar í Reykjavík hefur að undanfornu
verið að rannsaka. Þegar mest var
sátu sex manns inni vegna rann-
sóknar málsins. Á fostudag var
tveimur sleppt úr gæzluvarðhaídi en
einn maður var úrskurðaður í viku
gæzluvarðhald. Þá var manni sleppt
á mánudagsmorguninn.
Tvær ungar konur sitja nú inni
og maður. Önnur konan var úr-
skurðuð í 30 daga gæzluvarðhald
og hin til 1. desember, eða í 15
daga gæzluvarðhald.
Gódan daginn!