Morgunblaðið - 23.01.1983, Síða 1

Morgunblaðið - 23.01.1983, Síða 1
76 SÍÐUR 18. tbl. 70. árg. SUNNUDAGIJR 23. JANUAR 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovéskir hermenn í Afganistan: Brenndu yfir 100 þorpsbúa lifandi Lundúnum, 22. janúar. Al\ ALDRAÐUR íbúi lítils þorps í Afg- anistan skýrði frá því í gær, að hann hefði horft á sovéska her- menn hella bensíni ofan í jarð- göng, þar sem 105 þorpsbúar höfðu leitað skjóls, og leggja eld Líbanon: Bandaríkja- menn sjái um varðstöðvar Beirút, 22. janúar. \l\ LÍBANIR hafa samþykkt þá tillögu Bandaríkjamanna að koma fyrir raf- eindaeftirlitsstöðvum mönnuðum Bandaríkjamönnum í fjalllendinu í miðhluta landsins, þar sem síendur- teknar skærur á milli hermanna kristinna hægrimanna og Drúsa hafa átt sér stað. ísraelar hafa til þessa séð um gæslustörf í fjöllunum og vilja halda þeim áfram. Líta þeir svo á, að varðstöðvar sínar þar séu viss þóknun fyrir að draga 25.000 manna herlið sitt frá Líbanon. Líbanir hafa alfarið hafnað þess- um sjónarmiðum ísraela og segja þau brjóta í bága við friðhelgi og sjálfstæði landsins. Þá hyggst Líbanonstjórn leggja á það ríka áherslu, að ísraelar láti af „einokun sinni á landamæra- gæslu", eins og það er orðað. Segir stjórnin, að í skjóli þessa hafil ísraelar flutt hergögn fyrir 201 milljónir Bandarikjadala inn í landið í desembermánuði. Philip G. Habib, sérlegur sendi- maður Bandaríkjastjórnar í Mið- austurlöndum, mun að sögn út- varpsins í Beirút eiga fund með Hosni Mubarak, Egyptalandsfor- seta, í Kairó í dag. Þaðan heldur hann áfram til Saudi-Arabíu áður en hann snýr aftur til ísrael á morgun. að, með þeim afleiðingum að allir, sem í göngunum voru, létu lífið. „Ég gat ekki borið kénnsl á lík- in á eftir, þau voru svo illa farin," sagði gamli maðurinn. Gol Mu- hamed, sem bjó í umræddu þorpi, Padkwhab-E-Shana, í Logar- héraði, skammt suðaustur af Kabúl. Muhamed er einn sex Afgana sem tekið hafa sér ferð á hendur til þriggja Vestur-Evrópuríkja til að skýra frá fjöldamorðunum, þeir fara síðan tii Bandaríkjanna í sömu erindagjörðum. Fjölda- morð þessi voru framin þann 13. september, en ekki hefur frést af þeim fyrr en nú. Afganirnir sex flúðu frá heimalandi sínu í nóvember og segjast ekki munu snúa þangað aftur á meðan ástandið er eins og það er nú. A meðal þeirra er læknanemi, sem heldur því fram, að hún hafi verið pyntuð á meðan fjögurra mánaða dvöl hennar í fangabúðum stóð. MorRunblaöiö/ KOE. ÖSLAÐ I ELGNUM Veðurstofan spáði á hádegi í gær áframhaldi á hlákunni, sem verið hefur að undanförnu. Snjórinn, eða leifar hans, ætti því að vera á hröðu undanhaldi. Myndin sýnir hvernig umhorfs var á einni af götum höfuðborgarinnar í gærmorgun og er vafalítið ekkert einsdæmi. Komu gervihnattarins Cos- mos í gufuhvolfið spáð í nótt Washington, 22. janúar. AP. BANDARÍSKA varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt að bilaði sov- éski kjarnorkugervihnötturinn ('osmos 1042 muni koma inn í gufu- hvolfið á sunnudaginn. Hann mun brenna upp, en hugsanlegt er að geislavirkt brak úr honum nái jörðu. Sovétmenn hafa einnig spáð komu Cosmos á sunnudaginn, „sennilega yfir Arabíuflóa,“ segir Tass. Tass gerir einnig háðulega grein fyrir hræðslu Bandaríkja- manna við hugsanlegri geislavirkni og segir líklegast að Cosmos brenni allur upp til agna. Og nái eitthvað af geislavirkum efnum jörðu, myndi ekki vera um hættulegt magn að ræða. Ovenjuleg fæðing á sjúkrahúsi í Southampton: Barn numið úr látinni móður með keisaraskurði Soulhamplon, 22. janúar. Al\ L/EKNAR á borgarspítalanum í Southampton námu lifandi barn úr móöurkviði í gær, tveimur sólarhringum eftir að móðirin lést. Banamein hennar var hjartaslag og átti hún 11 vikur eftir af meðgöngutímanum. Barnið var tekið með keisara- skurði, en líffærastarfsemi móð- urinnar var haldið gangandi með ýmsum tólum og tækjum uns að- gerðin fór fram. Phillip Hick- mott hafði þrábeðið læknana að reyna að bjarga barninu þrátt fyrir hættuna á því að það væri líkamlega eða andlega vangefið. „Við ræddum það fyrir löngu síðan, hvað til bragðs skyldi taka ef Susan yrði alvarlega veik á meðan á meðgöngu stæði. Við vorum sammála um að bjarga lífi Susan ef þess væri kostur, en hún tók það loforð af mér, að ef hún yrði dauðvona, yrði að fjar- lægja barnið og reyna að bjarga því. Ég gerði því aðeins það sem hún bað um. Okkur óraði ekki fyrir því er við ræddum þetta að eitthvað myndi í raun gerast. Ég vildi ekki ganga í gegn um svona lífsreynslu á nýjan leik, en ég hef þó Michael litla. Það virðist vera ailt í lagi með hann og læknarnir segja Iíðan hans eftir atvikum góða,“ sagði Hickmott við fréttamenn í gær. Læknar Southampton-sjúkra- hússins hafa sagt að allt of snemmt sé að spá um framtíð Michaels litla. Hann var aðeins 1,06 kílógrömm við fæðingu og var strax settur í öndunarkassa þar sem hann verður um sinn. Hafa þeir sagt að Michael þurfi að vera minnst 3 mánuði á sjúkrahúsinu undir eftirliti. Ogerlegt sé einnig að sjá á þessu stigi hvort hann er vangefinn eða ekki. Stephen Campion, yfir- læknir á sjúkrahúsinu sagði jafnframt, að svona aðgerðir, eins og gerð var á hinni tvítugu Susan, væru afar sjaldgæfar. Bandaríkjamenn hafa mik- inn viðbúnað vegna komu Cosmos og sérþjálfaðar sveitir sérfræðinga um kjarnorku eru til taks. Lendi Cosmos ekki í Sovétríkjunum munu Banda- ríkjamenn fara á vettvang og koma höndum yfir það geisla- virka brak sem kann að finn- ast. Henry Catto, talsmaður varnarmálaráðuneytisins sagði að ef Cosmos brynni ekki upp til agna væru 70 prósent líkur á því að brak hans myndi hafna í hafi, „sem væri besta lausnin," segir Catto. Hann sagði einnig að 15 prósent lík- | ur væru á því að brakið myndi koma niður í Sovétríkjunum, 3 prósent að Kúba fengi send- inguna og 2 prósent líkur á Bandaríkjunum og/eða Kanada. Við vitum ekki nú hvar Cosmos kemur inn í hjúpinn, en svona sex klukku- stundum áður ættum við gera okkur góða grein fyrir því,“ sagði Catto. Sovétmenn hafa aðskilið eldsneytisbirgðir Cosmos frá aðalhluta hans og koma elds- neytisgeymarnir í humátt á eftir aðalhlutanum. Þó er talið að geymarnir komi ekki inn í lofthjúpinn fyrr en í miðjum febrúar og mestar líkur eru á því að þeir brenni til agna og valdi ekki vandræðum. Hafa bæði Bandaríkjamenn og Sov- étmenn lýst þeirri skoðun. Viðbúnaður Bandaríkjamanna er ekki að ástæðulausu. Svipað gervitungl dreifði geislavirk- um brotum yfir svæði í Kanada fyrir fimm árum og var virknin svo mikil að sér- stakan búnað þurfti til að nálgast brotin. E1 Salvador: Enn haröir bardagar San Salvador, El Salvador, 22. janúar. Al\ STOHSÓKN stjórnarhcrs El Salvador gegn skæruliðum hefur haldið áfram i norðurhluta landsins og hafa 5.000 hermenn setið um skæruliöavígi. Harðir bardagar hafa geisað og mannfall verið umtalsvert þó fregnir af slíku hafi verið frekar stopular. A fóstudaginn féllu þar 8 stjórnarher- menn og 14 skæruliðar. Annars staðar í E1 Salvador hafa skæruliðar gert ýmsar skráveifur. Til dæmis sprengdu þeir í loft upp háspennulínur og rafstöðvar í aust- urhluta landsins með þeim árangri, að næstum hálft landið varð raf- magnslaust og vatnslaust í margar klukkustundir. Þá réðust skærulið- ar á herflokk sem stóð vörð um járnbrautarbrúarstæði í San Miguel-héraði. Hröktu skærulið- arnir stjórnarhermennina á flótta og sprengdu síðan brúna í loft upp. Samgöngutruflun varð talsverð af þessum sökum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.