Morgunblaðið - 23.01.1983, Page 44
^^\skriftar-
síminn er 830 33
iíifi0MOTlííto^lÍíj>
.^fglýsinga-
síminn er 2 24 80
SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1983
Innbrot í ísbjörninn:
Bíldudalur:
Tugum þúsunda
stolið og miklar
skemmdir unnar
TUGIIM þúsunda króna í reiðufé
var stolió hjá ísbirninum hf. við
Norðurgarð í Keykjavík aðfaranótt
laugardags, og gífurlegar skemmdir
unnar, samkvæmt upplvsingum er
blaðamaður Morgunblaðsins fékk í
gær hjá miðborgarstöð lögreglunnar
í Keykjavík. Tveir menn voru að
verki, og náðust þeir á laugardags-
morgun, þar sem þeir munu hafa
verið heima hjá öðrum þeirra.
Hjá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins fengust þær upplýsingar að
mennirnir sætu inni og væri unnið
að rannsókn málsins. 1 gær var
ekki ljóst hve mikið tjón innbrots-
þjófarnir höfðu unnið á innan-
stokksmunum og húsakynnum ís-
bjarnarins, né heldur hvort allt
þýfið væri komið fram. Mennirnir
tveir munu áður hafa komið við
sögu hjá lögreglunni.
Snjóflóð
féll á tvö
fjárhús
MIKIÐ snjóflóð féll úr svokölluðu
Kúðagili ofan Bildudals rétt fyrir há-
degið í gær. Féll það á tvö fjárhús og
voru þar um 60 kindur. Ekki er Ijóst
hve mikið af þeim hefur drepizt.
Flóðið náði ekki niður að byggðinni
og engin slys urðu á mönnum.
Að sögn Páls Hannessonar,
fréttaritara Morgunblaðsins, var
þetta mikið flóð, en ekki var ljóst
hve stórt það var eða hve mikið af
kindum hafði drepist. Þegar Mbl.
hafði samband við hann skömmu
eftir klukkan 12 var verið að hefja
björgunarstarf og ljóst var að
eitthvað af kindunum hafði bjarg-
azt. Þá féllu að sögn Páls nokkur
minni snjóflóð innarlega í bænum
í gærkvöldi, ofan við Dalbraut 16
til 46, en þau ollu engu tjóni. Þó
var fólk flutt úr fjórum húsum til
öryggis.
Snjóflóðið, sem féll í gærmorg-
un tók með sér fjóra raflínustaura
og rauf þar með rafstrauminn frá
Mjólkárvirkjun, en rafmagn er nú
fengið frá dísilrafstöð. Spennistöð,
sem stendur neðan Búðagils,
skemmdist hins vegar ekki.
Byggðasjóður:
Framlag ríkisins hefur aldrei ver-
ið minna að raungildi síðan 1972
Harma að framlagið skuli ekki vera meira, segir Stefán Guðmundsson, varaformaður stjórnar Framkvæmdastofnunar
STAÐA Byggðasjóðs er nú fremur
slæm og hefur framlag rikisins til
hans ekki verið lægra að raungildi
síðan 1972, miðað við verðlag árs-
ins 1982 og byggingarvísitölu. Stef-
án Guðmundsson, alþingismaður
og varaformaður stjórnar Fram-
kvæmdastofnunar, sagði i samtali
við Morgunblaðið, að hann harm-
aði að framlagið skyldi ekki vera
meira, en hann vonaði að Byggða-
sjóður gæti áfram þjónað hlutverki
sínu eins og hann hefði vissulega
gert.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er framlag ríkis-
ins til Byggðasjóðs nú tæpar 70
milljónir króna. Sé litið á fram-
lagið frá árinu 1972 og það reikn-
að til verðlags ársins 1982, miðað
við byggingarvísitölu, kemur í
ljós að framlagið nemur rétt
rúmum 44 milljónum. 1972 og
1973 var það rúmar 48 milljónir
en fór síðan ört vaxandi og varð
mest 1977 eða tæpar 130 milljón-
ir. Síðan hefur það farið minnk-
andi og er nú eins og áður sagði
lægst eða 44 milljónir króna.
„Framlag er ekki sama og ráð-
stöfunarfé, það er meira en
framlagið. Samkvæmt lögum
segir að ráðstöfunarfé skuli vera
um 2% af útgjaldalið fjárlaga, en
því nær það ekki nú. Það er rétt
að þetta er lægra en áður. Auk
framlags ríkisins eru tekjur
sjóðsins eigið fé, lántökur og
tekjur af lánveitingum. En eins
og fram kemur í þessum tölum er
bolmagn sjóðsins til lánveitinga
takmarkað. Sjóðurinn mun samt
sem áður reyna að standa við
hlutverk sitt. Eins og fram hefur
komið mun hluti gengismunar,
50% til 60% fara í gegnum sjóð-
inn til lányeitinga fiskvinnslu-
fyrirtækja. í bréfi frá ríkisstjór-
inni þar að lútandi er að vísu tek-
ið fram að ríkissjóður muni beita
sér fyrir framlagi, sem nemur
þessari upphæð, en ekki sagt
hvaðan það muni koma. Þegar
eru hafnar lánveitingar á þeim
vettvangi og fleiri mál á döfinni,"
sagði Stefán
.
10 mvtra brvitt skarú
í vvqinn austan llcllu
\ ejjaskemmdirnar miklu austan vió llellu
á Kant'árvöllum í gji-r. Vatnavextir grófu
undan veginum og mikil malbikshella féll
nióur. ru(;ir bíla bióu betíiya vegna
skemmdanna. sem VegKgeró ríkisins var
art lagfæra sírtdeyis í t»ær.
MorijunblaAið H.W
NOKKKAK vegaskemmdir uröu í
fyrrinótt vegna vatnsvertursins og
flóóa sem af því leiddi, samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. fékk hjá
vegaeftirlitinu í gærmorgun.
Skammt fyrir austan Hellu
skemmdist þjóðvegurinn mikið
þegar hann rofnaði við brúna yf-
ir Gaddstaðasíki. Þar myndaðist
10 metra breitt skarð í veginn,
þegar síkið flæddi yfir hann, en
farvegurinn undir brúnni stífl-
aðist af krapi og klaka.
Víðast hvar á landinu voru
gífurlegir vatnavextir og ár og
lækir flæddu yfir vegi og sums
staðar lónaði vatnið yfir ak-
brautirnár. Norðurá lónaði upp á
veginn við Hreimstaði í Norður-
árdal í gær og var vegurinn ófær
af þeim sökum. Ekki var kunn-
ugt um fleiri lokaða vegi, en
Dalsá í V-Húnavatnssýslu
flæddi yfir veginn, þó var fært
þar þegar síðast fréttist. Þá rann
Viðimýrará í Skagafirði yfir
veginn og var víðar sömu sögu að
segja, að sögn vegaeftirlitsins.
Lesendaþjónusta Morgunblaðsins:
Spurt og svarað um áfeng-
ismál og aðra vímugjafa
Hringið í síma 10100 frá mánudegi til föstudags, kl. 10—11
ÁFENGISMÁL og vandamál af
völdum annarra vímuefna hafa
mjög verirt til umrærtu á undan-
fornum misserum, Morgunblaðirt
mun á næstu dögum og vikum gefa
lesendum sínum kost á að bera
fram fyrirspurnir um áfengismál
og önnur vimuefni og mun Morg-
unhlaðið sírtan afla svara virt þeim
spurningum og birta spurningar og
svör í blartinu. Samtökin SÁÁ hafa
tekirt að sér að afla þessara svara
frá sérfrórtum artilum.
Lesendur Morgunblaðsins
geta borið fram fyrirspurnir um
hvað eina sem tengist þessum
málefnum, hvort sem um er að
ræða viðbrögð við aðsteðjandi
vanda, fyrirbyggjandi aðgerðir
eða annað, sem fyrirspyrjandi
hefur áhuga á að fá upplýsingar
um.
Þeir, sem vilja bera fram
fyrirspurnir, eru beðnir um að
hringja í síma 10100 kl. 10—11
frá mánudegi til föstudags og
verða þá fyrirspurnir þeirra
teknar niður og birtast ásamt
svari nokkrum dögum síðar.
Æskilegt er, að fyrirspurnir séu
bornar fram undir fullu nafni,
en það er þó ekki skilyrði. Morg-
unblaðið væntir þess, að þessi
þjónusta geti stuðlað að aukinni
fræðslu um áfengismál og aðra
vímugjafa.
80 svín
drápust
(Jrænhóli, 22. janúar.
UM 80 svín drápust í svínabúi
Benny Jensens á Lóni rétt utan
Akureyrar í morgun. Mikil krapa-
stífla myndaðist í Lóninu rétt við
bæinn og fyllti svínahúsið á mjög
skömmum tíma og króknuðu svín-
in úr kulda og enn er líklegt art
fleiri drepist.
Það var upp úr klukkan 10 í
morgun að þessi stífla myndað-
ist og vegna skafla og ísalaga
myndaðist fyrirstaða neðan við
búið með þeim afleiðingum að
dældin, sem svínahúsið stóð í,
fylltist. Erfiðlega gekk að ná í
aðstoð og það var ekki fyrr en
um klukkan 12 að náðist í gröfu
til að ræsa stífluna fram. Benny
Jensen hefur verið með stórt
svínabú þarna um nokkurra ára
skeið, en nú voru tiltölulega fá
svín í húsinu enda jólin nýaf-
staðin. Alls hafa verið nokkuð á
annað hundrað svína í húsinu og
hefur meirihluti þeirra drepizt.
Er hér um tilfinnanlegt tjón
fyrir eigandann að ræða.