Morgunblaðið - 19.02.1983, Qupperneq 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
41. tbl. 70. árg.
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Enn átök unglinga og lögreglu í Nörrebro:
Lögreglumaður
slasaðist illa
Kaupmannahöfn, 18. febrúar. AP.
LÖGREGLUMAÐUR kjálkabrotn-
aði í nótt þegar múrsteini var kast-
að að honum þegar til átaka kom á
ný á milli lögreglu og ungs fólks,
sem reyndi að yfírtaka auða bygg-
ingu í Nörrebro-hverfínu.
Átökin upphófust seint í gær-
kvöldi þegar 100 óeirðalögreglu-
menn ráku hóp unglinga úr húsi,
sem þeir höfðu tekið sér bólfestu
í. Að þessu sinni var húsið ekki
með öllu autt því nokkrir ein-
staklingar höfðu þar búsetu. Neit-
uðu unglingarnir að yfirgefa það
þrátt fyrir beiðni íbúanna, sem
kölluðu á hjálp lögreglu þegar
sýnt þótti, að hópnum yrði ekki
hnikað til.
Færðust átökin út á nærliggj-
andi götur í nótt og hlutu nokkrir
ungiinganna talsverð meiðsl í lát-
unum. Sumir voru vart meira en
12 ára gamlir. Yfir 20 voru hand-
teknir. Sjónarvottar segja, að
unglingarnir hafi brotið meira en
100 rúður í bönkum og verslunum
á Nörrebrogade og ennfremur að
tveir lögreglubílar hafi verið stór-
skemmdir.
I>ögreglumenn leiða hér unglinga brott f kjölfar átaka í Nörrebro-hverf-
inu.
Talsmaður BNOC sagði á hinn
bóginn, að með þessari tillögu
væri BNOC ekki að reyna að koma
af stað verðhruni, hvað þá heldur
að ögra keppinautum sínum á
markaðnum. Bandarísk olíufélög
hefðu nú þegar lækkað verðið
niður í 30 dollara tunnuna og með
þessari tillögu væri aðeins verið
að endurspegla markaðsástandið í
dag.
Olíumálaráðherra Kuwait var-
aði Breta við í dag og sagðist vita
til þess, að a.m.k. tvö olíuútflutn-
ingsríki innan OPEC hygðu á und-
irboð. Sagði ráðherrann, að hann
hefði haft spurnir af því að þessar
tvær þjóðir hefðu þegar hafið
samningaviðræður í þessum efn-
um, en nefndi ekki hverjar þær
væru.
„Þessi hættulega ákvörðun hef-
ur það í för með sér, að þessar
tvær þjóðir hafa svipt sig öllum
Efnt til mótmæla
á ný í Póllandi
\ arsjá. 18. febrúar. AP.
MILLI eitt og tvö þúsund ungmenni efndu til mótmælagöngu í Kraká í
dag, eftir að hafa sótt guðsþjónustu. Gangan var til að minnast þess, að í
dag voru tvö ár liðin frá því hin óháðu stúdentasamtök landsins voru
formlega bönnuð í landinu. Þetta er þriðja mótmælagangan á einni viku í
Póllandi eftir að allt hafði verið með kvrrum kjörum í landinu í þrjá
mánuði.
Eftir guðsþjónustuna gengu
stúdentarnir í breiðfylkingu niður
í gamla borgarhlutann í Kraká og
hrópuðu ókvæðisorð í garð stjórn-
valda. Flestir úr hópnum héldu til
síns heima eftir nokkurra mín-
útna göngu, en um 600 manns
héldu göngunni áfram og dreifð-
ust um hin ýmsu borgarhverfi.
Lögregla var kvödd á vettvang til
þess að tvístra hópnum. Ekki kom
til alvarlegra árekstra.
Lögregla beitti kylfum og tára-
gasi á sunnudag til þess að hrekja
Khadafy með
liðsöfnuð
^ Kairó, 18. febrúar. AP.
ÚTVARPIÐ í Súdan birti í kvöld
frétt þar sem sagði, að stjórnvöld
landsins hefðu þungar áhyggjur
vegna liðssafnaðar Líbýumanna
við landamæri ríkjanna.
Sagði í fréttinni, að Líbýu-
menn hefðu komið fyrir mikl-
um herafla, auk fjölda orrustu-
flugvéla og annars vopnabún-
aðar, við landamæri Chad og
Súdan. Þá bárust í kvöld fregn-
ir af liðsflutningum Egypta til
suðurhluta landsins til að vera
við öllu búnir ef Líbýumenn
ætluðu sér að ráðast til atlögu.
í framhaldi af þessari frétt
var frá því skýrt, að leyniþjón-
usta landsins hefði komið upp
um undirróðursflokk, sem
starfaði eftir fyrirmælum frá
Khadafy, leiðtoga Líbýu-
manna.
á brott hóp tæplega 2.000 mót-
mælenda í miðborg Varsjár. Tals-
maður stjórnarinnar neitaði því á
hinn bóginn í viðtali við frétta-
menn, að valdi hefði verið beitt.
Hann staðfesti hins vegar, að efnt
hefði verið til friðsamlegra mót-
mæla.
Pólsk yfirvöld leita nú dyrum
og dyngjum að einum stjórnenda
útvarpsstöðvar Samstöðu. Dómar
voru í gær kveðnir upp yfir einum
yfirmanna stöðvarinnar og átta
samstarfsmönnum hans. Voru
dómarnir almennt fremur vægir.
Hafa yfirvöld lýst yfir ánægju
sinni með árangurinn af aðgerð-
um sínum gegn þeim meðlimum
Samstöðu, sem hafast við í felum.
Mynd smellt af hennar hátign
Símamynd AP.
Elísabet II Bretadrottning er nú á ferðalagi um Mið-Ameríku. Mynd þessi var tekin í gær á Cayman-eyj-
um er skólabörn fögnuðu komu hennar. Eins og sjá má notuðu sum barnanna tækifærið til að smella
mynd af hennar hátign, enda hreint ekki á hverjum degi sem drottningin kemur í heimsókn.
Bráðabirgðasamkomulag tókst íyrir tilstilli Philip Habib:
Brottflutningur erlendra
herja hefet í byrjun mars
Beirút, 18. febrúar. AP.
VIDRÆÐUFliLLTRÚAR ísraela og I.íbana náðu í dag fyrir tilstilli Philip
Habib, sérlegs sendifulltrúa Bandaríkjamanna í Miðausturlödnum,
bráðabirgðasamkomulagi um fyrsta hluta brottflutnings erlends herliðs
frá Líbanon.
Samkvæmt samkomulaginu I Heimildir innan líbönsku ríkis-
munu fyrstu hermennirnir yfir- stjórnarinnar hermdu í dag, að
gefa Líbanon í byrjun mars. | fyrstu ísraelsku hermennirnir
Verðstríð og undirboð af-
leiðing verðlækkunar BNOC?
Lundúnum, 18. febrúar. AP.
OLÍUSÉRFRÆÐINGAR líta nú
margir hverjir svo á, að breska ríkis-
olíufélagið, BNOC, hafí stigið fyrsta
skrefið í væntanlegu olíuverðstríði
með tilkynningu sinni um 3 dollara
verðlækkun á hverri tunnu í dag.
Verð á hverri tunnu er nú komið
niður í 30,50 dollara. Telja sérfræð-
ingarnir, að þess verði ekki langt að
bíða að verð á olíu lækki niður í 25
dollara.
rétti til samningaviðræðna við
önnur aðildarríki innan OPEC um
34 dollara grunnverð samtak-
anna,“ sagði ráðherrann.
Athyglin beinist einkum að
fjórum þjóðum innan OPEC; Níg-
eríu, fran, Alsír og Líbýu. Þá bár-
ust fregnir frá Qatar þess efnis, að
viðræður hefðu þegar hafist á
milli OPEC-ríkjanna við Persa-
flóa um sameiginlega verðlækkun
á hráolíu.
Síðar í dag barst frétt frá
norska ríkisolíufélaginu, Statoil,
um að það hygðist fara að dæmi
BNOC og lækka olíuverð um
3—3,50 dollara á næstunni, eftir
því hvort olían væri seld beint um
borð í tankskip eða siglt með hana
til kaupandans.
myndu færa sig frá miðhálendinu
niður að ströndinni í nágrenni
Beirút. Á sama tíma myndu her-
menn Palestínumanna og Sýrlend-
inga færa sig um set frá fjöllunum
niður í Bekaa-dalinn í austurhluta
landsins.
Aðstoðarmaður Habib, Morris
Draper, fór í sérlega sendiferð í
gærkvöldi til Beirút til þess að
skýra þarlendum ráðamönnum frá
hugmyndum Habib. Gemayel, for-
seti, gaf þá samþykki sitt fyrir
hönd Líbana að því gefnu, að
fyrsti hluti brottflutningsins væri
hluti stærri áætlunar um brott-
flutning alls ísraelsks herliðs frá
landinu. Alls munu nú vera um
60.000 ísraelskir hermenn í Líban-
on.
Habib hyggur á för til Sýrlands
í næstu viku til þess að tryggja
samþykki forsetans, Hafez Assad,
fyrir brottflutningi herliðs þeirra
frá Líbanon. Þá er talið, að full-
trúar Líbanonstjórnar fari á sama
tíma til herstöðva Arababanda-
lagsins í Túnis til þess að eiga
samningaviðræður við ráðamenn
PLO um brottflutning þeirra her-
liðs.
V-Þýskaland:
Sovéskur njósn-
ari handtekinn
Karlsruhe, Vestur-Þýskalandi.
18. Tebrúar. AP.
VESTUR-ÞÝSKA innanríkisráóu-
nevtið skýrði frá því í dag, að sóv-
éskur viðskiptafulltrúi hefði verið
handtekinn og sakaður um njósnir.
Um leið og þetta var tilkynnt
var sú fregn þýskra blaða, að
Rússinn væri aðeins einn hlekkur
í viðtækri njósnakeðju, borin til
baka. Ráðuneytið vildi að öðru
leyti ekkert tjá sig um mál þetta.
Verði fulltrúinn sekur fundinn á
hann yfir höfði sér allt að 10 ára
fangelsisdóm.