Morgunblaðið - 19.02.1983, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1983
KA sigraði Gróttu
og vann 2. deildina
KA tryggöi sér sigur í 2. deild ís-
landsmótsins í handknattleik
meö því aö sigra Gróttu, meö
einu marki, í æsispennandi leik á
Akureyri í gærkvöldi. Úrslitin
urðu 20:19 fyrir KA, en í hálfleik
var staðan 9:8 fyrir Gróttu.
Noröanmenn gengu vasklega til
leiks og komust í 5:1 eftir 10 mín-
útna leik. En þá skoruöu þeir ekki
mark í 17 mínútur og Seltirningar
jafna 6:6, og komust síöan í 7:6 og
KA 20
Grótta 19
Koch setti
tvö heimsmet
AUSTUR-þýzka hlaupadrottn
ingin Marita Koch setti tvö
heímsmet á einni helgi á
frjálsíþróttamóti í Seftenberg í
heimalandi sínu. Hljóp hún 60
metra á 7,08 sekúndum og 200
á 22,63. í ööru sætí í 60 metra
hlaupinu varð Marlies Göhr á
7,13 sek. Hún vann síöan
óvenjulega keppnisvega-
lengd, 100 stiku hlaup, á 10,34
sek.
En Koch var ekki ein um aö
setja met, því landa hennar,
Anke Vater, setti heimsmet í
fimmtarþraut innanhúss, náöi
4,654 stigum, en ekki fylgir
sögunni hvaöa greinar voru í
þrautinni. Góöur árangur náö-
ist í 60 metra grindahlauþi
kvenna, sem Bettina Jahn hljóp
á 7,93 sekúndum, og Andreas
Oschkenat náöi öðrum bezta
tíma heims í ár í 60 metra
grindahlaupi karla er hann
hljóp á 7,71. Aðeins finnski
grindahlauparinn Arto Brygg-
are er betri í ár. —ágás
Ashford sigr-
aði Göhr
TVÆR fljótustu konur heims
mættust í keppni í Inglewood
í Kaliforníu fyrir skömmu.
Lyktaöi viöureigninni með því
að Evelyn Ashford Bandaríkj-
unum vann austur-þýzku
stúlkuna Marlies Göhr í 60
stiku hlaupi innanhúss. Ash-
ford kom heilum metra á und-
an Göhr í mark, hljóp á 6,55
sekúndum og var því aðeins
einn hundraðasta frá heims-
meti sínu frá í fyrra. Göhr
hlaut 6,69 sekúndur og banda-
ríska stúlkan Jeanette Bolden
6,73 sek. Á mótinu náði
bandaríski hlauparinn Doug
Padilla bezta heimstímanum í
ár í tveimur enskum mílum,
hljóp á 8:24,68 mínútum.
— ágás
héldu síðan eins marks forskoti í
hálfleik.
Jafnt var síöan á öllum tölum í
seinni hálfleik og skiptust liöin á
um forystuna. Þegar ein mínúta
var til leiksloka var jafnt, 19:19, en
norðanmenn fengu þá knöttinn,
héldu honum vel og Flemming
skoraöi síöan úrslitamarkiö þegar
10 sekúndur liföu af leiktímanum.
Mörk KA: Flemming Bevensee
5, Friöjón Jónsson 3, Kristján
Óskarsson 3, Erlingur Kristjánsson
3, Erlendur Hermannsson 2, Kjeld
Mauritsen 2, Guðmundur Guö-
mundsson 1 og Jakob Jónsson 1.
Mörk Gróttu: Siguröur Sigurös-
son 5, Gunnar Þórisson 5, Jóhann
Pétursson 4, Jón Hróbjartsson 3
og Sverrir Sverrisson 2.
AS.
ÍHTM
Frá leik Hauka og Þórs frá Akureyri. Dakarsta Webster i Haukalíöinu
gnæfir upp yfir vörn Þórs og skorar örugglega.
------------------- Morgunblaöið/Kristján Einarsson.
Haukar unnu Þór
með 30 stiga mun
Haukar lögöu Akureyrarþórsara
auöveldlega aö velli í 1. deildinni
í körfubolta í Hafnarfiröi í gær-
kvöldi, og eru því efstir í deildinni
meö 20 stig eftir 12 leiki. Stúdent-
ar eru í ööru sæti með 18 stig og
Þór í þriðja meö 14 stig eftir 10
leiki. Lyktaði leiknum í gærkvöldi
með 30 stiga sigri Hauka, sem
skoruðu 114 stig gegn 84. Maöur
vallarins var Pálmar Sigurösson,
Haukum, sem skoraöi 50 stig.
Leikurinn var jafn framan af,
staöan 10-10 á sjöttu mínútu. En
þá tóku Haukarnir mikinn sprett
og komust i 30—16, og síðan
45—20, en í hálfleik var staöan
55—36 fyrir Hauka.
Jafnræöi var einnig í stigaskor-
inu fyrstu mínúturnar í seinni hálf-
leik, staöan 64—47 á þeirri fjóröu,
Haukar 114
Þór Ak. 84
en þá hófu Haukarnir flugiö á ný,
og þegar sex mínútur voru til
leiksloka rufu þeir 100 stiga múr-
inn, komust í 100—76.
Eins og áöur segir var Pálmar
Sigurösson yfirburöamaöur á vell-
inum. Sennilega hafa fjölmargir
áhorfendur komið tii aö sjá hinn
snjalla Robert McField hjá Þór, en
Pálmar stal senunni. McField er af-
buröa snjall leikmaöur og skoraöi
41 stig úr alls kyns færum, en
hittnin var þó slæm á köflum.
Þaö sem réöi úrslitum í þessum
leik var sterk liösheild Haukanna.
Hjá Þór voru McField og Eiríkur
þeir einu sem eitthvaö höföu aö
gera í Haukana.
Stig Hauka: Pálmar Sigurösson
50, Dakarta Webster 23, Hálfdán
Markússon 18, Kári Eiríksson 9,
Ólafur Rafnsson 6, Jón Halldór
Garöarsson 4 og Bogi Hjálmtýsson
4.
Stig Þórs: Robert McField 41,
Eiríkur Sigurðsson 14, Jón Héð-
insson 11, Björn Sveinsson 6,
Konráö Óskarsson 4, Guömundur
Björnsson 2, Valdimar Júlíusson 2
og Þórarinn Sigurösson 2.
Góöir dómarar leiksins voru
Davíð Sveinsson og Jóhann
Björnsson.
IHÞ.
Framúrskar-
andi íþrótta-
konur
Tvær konur voru i hópi átta af-
reksmanna í íþróttum sem Morg-
unblaðiö heiöraði í gær fyrir
frammistööu þeirra í íþrótt sinni í
fyrra. Meðfylgjandi mynd tók
Kristján Örn Elíasson, Ijósmynd-
ari, af Guðrúnu Femu Ágústsdótt-
ur, sundkonur úr Ægi (t.v.) og
Oddnýju Árnadóttur, frjálsíþrótta-
konu úr ÍR, er þær höfðu veitt viö-
urkenningum sínum móttöku.
Guörún Fema og Oddný náðu
báðar stórgóöum árangri á síð-
astliðnu ári og settu fjölda is-
landsmeta. Báöar eru í góöri æf-
ingu og líklegar til enn frekari af-
reka á þessu ári.
Júdómót á
Akureyri
JÚDÓFÉLAG Akureyrar gengst
fyrir opnu júdómóti í íþróttahúsi
Glerárskóla á morgun, sunnu-
dag, klukkan 14,30. Margir
beztu júdómenn landsins, þ.á
m. Bjarni Friöriksson og Hall-
dór Guöbjörnsson, veröa meö-
al þátttakenda, sem alls veröa
um 40.
Breið-
holtshlaup
ÍR-INGAR gangast fyrir svoköll-
uöu Breiöholtshlaupi í dag, en
þaö er um 19 kílómetra hlaup
og fór fram í fyrsta sinn í fyrra.
Hlaupnir eru tveir hringir um
hverfin öll í Breiöholti. Hefst
hlaupiö viö sundlaugina í efra
Breiöholti klukkan 13. Vænt-
anlegir þátttakendur eru beönir
aö mæta tímanlega til skrán-
ingar.
Meist-
aramót
í frjálsum
Meistaramót Islands 14 ára
og yngri í frjálsum íþróttum fer
fram um næstu helgi, 26. og 27.
febrúar nk. Mótiö hefst í Hafn-
arfirði laugardaginn 26. febr. kl.
13 og verður þá keppt í
Ingstökki án atrennu og há-
stökki í pilta-, telpna-, stelpna-
og strákaflokkum. Á sunnudag,
27. febrúar, veröur keppt í
Baldurshaga í sömu flokkum í
50 m hlaupi og langstökki.
Þátttökutilkynningar þurfa
aö berast til Siguröar Haralds-
sonar í sima 52403 í síðasta
lagi þriöjudaginn 22. febrúar.
Þátttökugjald er 15 kr. á grein.
Borð-
tennismót
Víkings
Víkingsmótiö í borötennis
veröur haldiö í Laugardalshöll,
aöalsal, á morgun, sunnudag.
Mótiö er opið punktamót í öll-
um flokkum karla og kvenna.
Keppt er um keramikbikara frá
Glit.
Húsiö opnar kl. 13 fyrir upp-
hitun. Mótiö hefst kl. 14 í 2.
flokki karla og 1. flokki kvenna,
kl. 15 í 1. flokki karla og kl. 16 í
mfl. karla og kvenna. Leikinn er
einfaldur útsláttur í 1. og 2.
flokki karla, 2—3 lotur, í mfl.
karla einfaldur útsláttur, 3—5
lotur. I mfl. kvenna og 1. flokki
kvenna leika allir viö alla 2—3
lotur.
Verðlaun veröa auk bikara
fyrir 1. sætiö í hverjum flokki
gjafir frá Dunlop-umboöinu,
Austurbakka hf., spaöar og
fleira. Auk þess verölaunapen-
ingar fyrir 3 efstu sætin. Verö-
launaafhending veröur sama
dag kl. 21 í Víkingsheimilinu viö
Hæöargarð.
Bikarglíma
íslands
BIKARGLÍMA Glímusambands
íslands fer fram í dag klukkan
18.00 í Vogaskóla.