Morgunblaðið - 10.03.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 1983
31
Viljum ekki láta líta
á okkur sem plágu
Þessar glæsilegu stúlkur úr
Kópavogi komu niður á Morgun-
blað, hundóánægðar með „niðrandi
og villandi" frásögn Morgunblaðs-
ins af unglingaráðstefnunni á laug-
ardaginn. Á baksíðu Morgunblaðs-
ins á sunnudaginn stóð í mynda-
texta að fjallað væri um vandamál
unglinga á höfuðborgarsvæðinu.
„Þetta er rangt," sögðu þær. „Það
var verið að fjalla um málefni ungl-
inga í Kópavogi. Það er alltaf verið
að tala um þetta svokallaða „ungl-
ingavandamál", en það er það nafn
sem fullorðnir eru gjarnir á að gefa
því sem við köllum einfaldlega
„málefni" okkar. Með því að tala
sífellt um „vandamál" er verið að
líta á okkur sem plágu, og við eigum
erfitt með að sætta okkur við það.“
í textanum var einnig talað um
það að þeir unglingar sem stæðu að
ráðstefnunni væru margir hverjir
þeir sömu og kæmu saman á Hall-
ærisplaninu um helgar. Þetta töldu
stúlkurnar að væri aukaatriði, og
til þess eins fallið að gera lítið úr
vinnu þeirra á ráðstefnunni. Eitt
atriði enn í myndatextanum vildu
stúlkurnar gera athugasemd við.
Sagt var að allir fullorðnir hafi orð-
ið að yfirgefa ráðstefnuna eftir að
flutningi inngangserinda var lokið.
„Þetta er alrangt," sögðu stúlkurn-
ar, „það var enginn rekinn út, held-
ur fóru þeir fullorðnu einfaldlega."
Þessir ákveðnu fulltrúar unglinga í Kópavogi heita frá vinstri talið í efri röð:
Halldóra Ingþórsdóttir, Þórdis Ingadóttir og Ragna Sæmundsdóttir. f neðri röð
frá vinstri eru Elína Smáradóttir, Hólmfríður Ólafsdóttir og María Lea Guðjóns-
dóttir.
Flugleiðir draga í efa í auglýsingu í Morgunblaðinu í gær að efri kúplingsdæla í
SAAB 99 fáist í Cannes í Frakklandi.
Að athuguðu máli segjum við: RUGL
Metnaður SAAB liggur í því að búa til bíla með lága bilanatíðni og reynslan sýnir að það
hefur tekist - hins vegar verður aldrei komið alveg í veg fýrir bilanir,
- og lendi SAAB- eigandi í þeirri aðstöðu að þurfa efri, nú eða neðri kúplingsdælu - hvort
heldur er í Cannes eða annarsstaðar í Evrópu þá er það minnsta mál í heimi því
það eru milli 12 og 1300 SAAB verkstæði og þjónustuaðilar víðsvegar um Evrópu til
þjónustu reiðubúnir á stundinni.
POGETUR AffiGGJULAUS FARIÐ
MEÐSAAB-INN HNNTIL EVFCPU
Rugleiðum óskum við alls hins besta,
með kúplingsdælukveðjum
TÖGCUR HR
SAAB
UMBOÐÍÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530