Morgunblaðið - 26.05.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1983
Leitaði
á börn
LÖGREGLAN í Reykjavík leitar nú
manns, sem í gær haföi í frammi
ósiðsamlegt athæfi meðal ungra
barna í Arbæjarhverfi. Hann mun
einnig hafa leitaö á stúlkubarn í
Blesugróf.
Það var um klukkan 17 í gær að
maðurinn sýndi á sér kynfærin í
hópi ungra barna í Árbæjarhverfi.
Hans varð síðan vart í Blesugróf
um klukkan 19 og reyndi hann þá
að afklæða stúlkubarn. Að öðru
leyti varð hann því ekki að meini.
Lögreglunni hefur ekki borizt
nægileg lýsing á manninum og
óskar þess, að geti einhverjir gefið
upplýsingar um hann, snúi þeir
sér til lögreglunnar.
•" * * > *$■£
*■: yL- r < '• »
'MBW' .
Alftarhræ í túninu á Signýjarstöðum.
Páll Jónasson, bóndi á Signýjarstöðum:
W"' ■
... 'ý <
Morgunhlaðiú/Helgi Bjarnason.
Algengt að álftarhræ séu notuð
til að halda fuglinum frá túnum
Málið í rannsókn segir sýslumaður
„ÞES8I aðferð, að drepa álftir og
láta hræin liggja til að haida fuglin-
um frá túnum, hefur veriö notuð áð-
ur og á öðrum bæjum en hér. Ég tel
álftina vargfugl, ekki síður en svart-
bak og við verðum að vernda túnin
fyrir henni á þennan hátt, það er eina
leiðin," sagði Páll Jónasson, bóndi á
Signýjarstöðum í Borgarfirði, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Páll hefur skotið 10 álftir í tún-
inu hjá sér og látið hræin liggja til
Sjónvarp í dag:
Fréttatími og
knattspyrna
ÁKVEÐIÐ hefur verið að síðari úr-
slitaleikur Brighton og Manchester
United í dag verði sýndur beint.
Hefst útsending kiukkan 18.00 og
auk þess verður fréttaútsending að
leik loknum, og ef ástæða þykir til,
einnig fyrir leikinn. Mun þetta í
fyrsta sinn, sem sjónvarpið sendir út
á fimmtudegi, ef undan er skilin út-
sending frá heimsmeistarakeppninni
í knattspyrnu í fyrra. Það var í júlí og
var þá sumarfrí sjónvarpsins rofið.
Að sögn Péturs Guðfinnssonar,
framkvæmdastjóra sjónvarpsins,
þarf að kalla út 6 til 7 menn vegna
þessa. Aðalkostnaður við útsend-
inguna felst ekki í launum, heldur
er það gervihnattakostnaður. Sagði
Pétur, að ekki væri ljóst hver
kostnaður við sendingu efnisins
yrði, það færi eftir því hve margar
þjóðir væru um hana. Hins vegar
væru Landsímanum borgaðar um
40.000 krónur fyrir móttöku hér
heima. Ljóst væri, að fengjuat næg-
ar auglýsingar, borguðu tekjur af
þeim kostnað af útsendingu, enda
væri mínútan seld á 18.000 krónur.
Því hefði laugardagsútsendingin
komið mjög vel út og líklega út-
sendingin í gær. Vegna þess hve
ákvörðun um útsendinguna í dag
hefði borið brátt að, væri óljóst hve
mikið af auglýsingum yrði samfara
henni. Þá bæri að geta þess, að ekki
væri ljóst hve mikið að þessum
auglýsingum hefðu fengizt á hefð-
bundnum auglýsingatímum. Þá
væri það mikil andlitslyfting fyrir
sjónvarpið að geta boðið upp á
þessa þjónustu og að hún gæti afl-
að því aukinna vinsælda.
að halda öðrum frá. Sagði hann
aðra bændur einnig nota þá aðferð
að hengja hræin upp í staura,
venjulegar fuglahræður dygðu
hvergi. Álftin er alfriðuð. Rúnar
Guðmundsson, sýslumaður í Borg-
arnesi, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að mál þetta hefði ekki ver-
ið kært, en Ævar Petersen, nátt-
úrufræðingur, hefði vakið athygli
sína á því. Hefði hann eftir það
beðið lögregluna að kanna málið
nánar og væri það nú í rannsókn.
Ekki kvaðst Rúnar vita til þess, að
mál af þessu tagi hefði áður komið
við sögu hjá sýslumannsembætt-
inu.
Páll Jónasson sagði ennfremur,
að mikið af álft hefði verið í tún-
inu, bæði í vor og fyrravor og stór-
skemmdi það túnin. Álftin sliti
upp grasrótina og skildi við túnin
eins og flag. í vor hefðu til dæmis
verið taldar yfir 300 álftir á 12
hektara túni á Signýjarstöðum.
Páll sagði sér fyllilega kunnugt um
að álftin væri friðuð, en hann liti
engu síður á hana sem vargfugl,
líkt og svartbak og hrafn. Hér væri
bara um sjálfsbjargarviðleitni að
ræða og tími væri kominn til að
endurskoða friðun álftarinnar. Það
hlæðist utan á stofninn líkt og
snjóbolta.
Bókagerðarmenn:
Yfirvinnu-
bann um
helgar í
sumar
Á aðalfundi Félags bókagerð-
armanna, sem haldin var 7. maí
1983 var samþykkt eftirfarandi
tillaga frá tveimur félagsmönn-
um varðandi yfirvinnu félags-
manna:
„Aðalfundur Félags bóka-
gerðarmanna 1983 samþykkir
að banna yfirvinnu félags-
manna sinna á laugardögum
og sunnudögum frá 1. júní til
31. ágúst 1983.“
Stjórn Félags bókagerðar-
manna hefur síðan tilkynnt fé-
lagsmönnum sínum um þessa
ákvörðun aðalfundar.
Hryggbrotnaði
í útafkeyrslu
TUTTUGU og þriggja ára gamall
Selfyssingur hryggbrotnaði, er hann
kastaðist út úr bíl, sem hann missti
vald á í gærmorgun.
Maðurinn var á leið frá Selfossi
og á móts við Steypustöð Suður-
lands hugðist hann loka bílhurð-
inni betur á ferð. Við það mistti
hann vald á bílnum, sem fór út af
veginum og kastaðist maðurinn þá
út úr bílnum. Lögreglan á Selfossi
kvaðst vilja láta þess getið, að
þetta slys hefði ekki orðið ef öku-
maðurinn hefði notað bílbelti.
Sjávarafurðadeild SÍS:
Framleiðsla karfaflaka
32% meiri nú en í fyrra
„UM miðjan maí höfðum við framleitt
um 2.700 lestir af frystum karfa. Er
það 32% meira en á sama tíma í fyrra.
Miðað við sama tímabil hefur fram-
leiðsla okkar fyrir Sovétríkin minnkað
um 6% og er nú 1.470 lestir eða 55%
en í fyrra var hún 77% af karfafram-
leiðslunni. Við höfum þannig gert átak
í því að beina framleiðslunni frá Sov-
étmarkaðnum með því að gefa hverju
frystihúsi upp ákveðið framleiðslu-
magn. Miðað við sama áframhald
stefnum við í álíka miklar birgðir af
Sovétkarfa og voru í lok síðasta árs.
Karfaframleiðsla okkar á aðra mark-
aði hefur næstum því þrefaldast í
magni og hefur það hjálpað okkur
rnikið," sagði Sigurður Markússon,
framkvæmdastjóri Sjávarafurðadeild-
ar SÍS, í samtali við Morgunblaðið.
„Við höfum til dæmis flutt nokkra
tugi lesta af heilfrystum karfa á
mánuði til Israel. Einnig höfum við
flutt i mjög smáum stíl til Svíþjóð-
ar, Kýpur og Japan. Þetta eru allt
nýir markaðir og vega ekki mikið í
þessari stóru mynd. Fyrr á þessu ári
vorum við með mjög líflega fram-
leiðslu á Bandaríkjamarkað, en þeg-
ar verð á karfa lækkaði þar, drógum
við úr henni. Karfablokk lækkaði í
apríl um 11% eða úr 90 centum í 80,
sem er sama verð og var í janúar.
Algengasta flakapakkningin lækk-
aði svo í maí um 4,7% að meðaltali
og er nú á um 91 cent pundið.
Hlutdeild Sambandsins í fisksölu-
samningnum við Sovétríkin er um
einn fjórði eða um 4.000 lestir (af
17.000 af flökum), aðallega karfi og
1.500 af heilfrystum fiski. Þannig,
að ef ekki hefðu verið svona miklar
birgðir í lok síðasta árs, liti dæmið
nokkuð vel út hjá okkur.
Mér lízt þunglega á karfasölumál
nú vegna þess hve aflinn hefur verið
gegndarlaus að undanförnu. Haf-
rannsókn hefur verið að leggja til að
60.000 lestir yrðu veiddar á ári, und-
anfarin ár, og 80.000 lestir nú. í
fyrra fór karfaaflinn í 115.000 lestir
og nú er hann mun meiri en á sama
tíma í fyrra, þannig að þetta er gíf-
urlega mikið umfram það, sem talið
er heppilegt. Hefði aflinn í fyrra að-
eins verið 90.000 lestir eða 50% um-
fram tillögur Hafrannsóknastofn-
unar, hefði varla verið um nokkurt
birgðavandamál að ræða um síðustu
áramót. Við erum farnir að óttast
það, að fljótlega fari að gæta þess í
aflanum, að meira hefur verið veitt,
en lagt hefur verið til. Við erum því
svo undarlega staddir að hafa
áhyggjur af sölumálum og karfa-
magni og einnig af því að aflinn
kunni að minnka. Það hafa verið
tveir meginmarkaðir fyrir karfa,
Sovétríkin og Bandaríkin, en ýmis-
iegt bendir til þess, vaxandi karfa-
markaðar í Vestur-Evrópu. Hann er
ekki stór, en margt smátt gerir eitt
stórt, þegar minni markaðarnir eru
allir taldir sarnan," sagði Sigurður.