Morgunblaðið - 26.05.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1983
3
Frá aðalfundi Arnarflugs í gærdag. Ijósmynd Mbl Ol.K.M
Heildartekjur Amarflugs jukust um 82% á árinu 1982:
Eiginfjárstaðan jákvæð
um 8,3 milljónir króna
Rekstrartap félagsins um 12,8 milljónir króna
Skattskráin 1982 í Norðurlandsumdæmi vestra:
58,4% hækkun
skatta milli ára
HEILDARÁLAGNING beinna skatta á einstaklinga í Norðurlandskjördæmi
vestra árið 1981, nam 112.603.954 milljónum, sem er 58,4% hækkun milli
ára, en skattskrá fyrir framtalsárið 1982 liggur nú frammi. Á skrá eru 7.054,
en þar af greiddu tekjuskatt 3.555, samtals 49.746.850 milljónir, hækkun
milli ára 57,5%. Eignaskatt greiddu 1.211 aðilar 2.657.275, sem er 76,8%
hækkun og útsvar greiddu 6583 aðilar, samtals 50.870.513 milljónir, hæækun
HEILDARTEKJUR Arnarflugs á
síðasta ári námu rúmlega 287 millj-
ónum króna og höfðu aukizt um
rúmlega 82% frá árinu á undan. Sem
fyrr voru erlend verkefni burðarás-
inn í rekstri félagsins og námu tekj-
ur af þeim um 86,5% af heildartekj-
um. Dessar upplýsingar komu fram í
ræðu Agnars Friðrikssonar, fram-
kvæmdastjóra Arnarflugs, á aðal-
fundi félagsins í gærdag.
Heildargjöld félagsins námu
tæplega 300 milljónum króna og
höfðu hækkað um 96% frá árinu
1981. Þannig varð tap á rekstri
ársins 1982 um 12,8 milljónir
króna. Þá hefur verið tekið tillit
til afskrifta, sem námu um 13,8
milljónum króna, og fjármagns-
gjalda, sem höfðu aukizt verulega
vegna mikillar eignaaukningar fé-
lagsins á árinu, sem að hluta var
fjármögnuð með lánsfé.
Niðurstöðutölur efnahagsreikn-
ings hækkuðu um rúmlega 98% í
um 118,1 milljón króna. Munaði
þar mestu um kaupin á hluta af
eignum íscargó, alls 29 milljónir
króna, og kaupin á Boeing
707—320C-vörufiutningaþotu, en
bókfært verð hennar nam í árslok
15,7 milljónum króna. Þrátt fyrir
taprekstur ársins 1982 var eigin-
fjárstaða félagsins í árslok jákvæð
um rúmlega 8,3 milljónir króna.
Yfir háannatímann á síðasta ári
var Arnarflug með tíu vélar í
rekstri, tvær Boeing 707-fraktþot-
Cjaldeyrisdeildir lokaöar:
20% trygg-
ingarfé tekið
af þeim gjald-
eyri sem af-
greiddur er
„VEGNA opinbcrra umræðna um
breytingar á gengi íslenzku krónunn-
ar í tengslum við yfirstandandi við-
ræður um stjórnarmyndun, er talið
nauðsynlegt að fella niður gengis-
skráningu frá og með deginum í dag
og þangað til annað verður ákveðið."
segir m.a. í frétt frá Seðlabanka Is-
lands í gærdag.
„Til að draga úr óþægindum
vegna þessarar ráðstöfunar, munu
gjaldeyrisviðskiptabankarnir ann-
ast yfirfærslur fyrir þá, sem nauð-
synlega þurfa á erlendum gjaldeyri
að halda, en munu þá taka 20%
tryggingarfé. Slíkar yfirfærslur
verða síðar gerðar upp á nýju gengi,
þegar skráning hefur verið tekin
upp að nýju. Ennfremur munu
bankarnir kaupa erlenda seðla og
ferðatékka af ferðamönnum miðað
við síðast skráða gengi," segir
ennfremur í frétt Seðlabanka Is-
lands.
ur, eins Boeing 720-farþegaþotu,
eina Boeing 737-farþegaþotu, eina
Lockheed Electra-vöruflutninga-
vél og til innanlandsflugsins voru
notaðar tvær Twin Otter-vélar,
ein Piper Cheyenne-vél, ein Piper
Chieftain-vél, sem síðan var skipt
fyrir nýja Cessna 402-flugvél, og
loks ein Cessna Counquest-skrúfu-
þota.
56,4%.
368 lögaðilar eða fyrirtæki eru á
skrá í Norðurlandskjördæmi
vestra. Heildarálagning á þá nam
27.752.718 milljónum og er það
hækkun um 62,8% frá síðasta ári.
Þar af greiddu 83 tekjuskatt
4.319.304 milljónir, hækkun milli
ára 82,8%. 172 greiddu eignaskatt
2.990.693 milljónir, sem er 67,9%
hækkun.
Skattar voru lagðir á 360 börn
alls 431.873 þúsund, sem er 45%
hækkun frá fyrra ári. Tekjuskattur
af þeirri upphæð nam 311.990 þús-
undum, sem er 43,6% hækkun. Út-
svar greiddu 244, samtals krónur
118.180, sem er hækkun um 48,1%.
Hæsti skattgreiðandi einstakl-
inga í Norðurlandskjördæmi vestra
er Bjarni Þorsteinsson, fiskverk-
andi, Siglufirði, með 329.065 þús-
und.
2. Sigurður Jónsson, apótekari
Sauðárkróki, 270.557 þúsund
3. Erlendur Hansen, iðnrekandi,
Sauðárkróki, 262.814 þúsund.
4. Guðjón Sigtryggsson, skipstjóri,
Skagaströnd 229.800 þúsund.
5. Sigursteinn Guðmundsson,
læknir, Blönduósi, 223.109 þúsund.
Lögaðilar.
1. Kaupfélag Skagfirðinga 2.681.099
milljónir.
2. Þormóður rammi, Siglufirði
1.717.084 milljón.
3. Húseiningar hf. Siglufirði
1.649.363 milljón.
4. Síldarverksmiðjur ríkisins,
Siglufirði 1.544.155 milljón.
5. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga,
Hvammstanga, 1.024.583 millljón.
6. Kaupfélag Austur-Húnvetninga
846.728 þúsund.
Siglingaáætlun
frá frá frá
Lissabon Leixoes Bilbao
M.s. MÚLAFOSS 14/5 16/5 18/5
M.s. MÚLAFOSS 9/6 10/6 06/6
M.s. SKEIÐSFOSS 4/7 5/7 7/7
M.s. SKEIÐSFOSS 18/8 19/8 22/8
Nánari upplýsingar í meginlandsdeildinni.
Ný lönd
og nýjar
hafnir
í beint samband
við ísland
Nú hafa tvö ný lönd til viðbótar bæst í hóp
reglubundinna viðkomustaða Eimskips. Siglt
verður mánaðarlega til Lissabon og Leixoes
í Portúgal og til Bilbao á Spáni. Sérstök þjón-
ustuhöfn verður einnig starfrækt í Barcelona
og um leiðeröruggog reglubundin flutnings-
þjónusta milli Islands, Spánar og Portúgal
orðin að veruleika. Þannig opnum við ís-
lenskum inn- og útflytjendum stóraukin tæki-
færi til nýrraog hagkvæmra viðskiptasambanda.
Umboðsmaður í þjónustuhöfn
Barcelona
Comercial Combalia - Sagrera S.A.
Via Layetana 15
Barcelona - 3
Simi: 319 0712
Telex: 54704 E
Umboðsmenn í áætlunarhöfnum
Lissabon Leixoes Bilbao
Keller Maritima Lda.,
Praca D. Luis,
9 - 3, P-B. 2665,
Lisbon.
Sími: 669 156/9
Telex: 12817 P
Burmester & Co. Lda.,
Rua da Reboleira, 49,
Porto.
Leixoes.
Sími: 21789
Telex: 22735 P
Centramares S.L.,
J. Ajuriaguerra, 9-6,
Bilbao
Simi: 445 8600
Telex: 32015 E
Flutningur er okkar f ag
EIMSKIP
Sími 27100