Morgunblaðið - 26.05.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1983
7
✓
| Lærið vélritun |
Ný námskeiö
hefjast miövikudaginn 2. júní n.k.
Vélritunarskólinn,
Suöurlandsbraut 20, sími 85580.
v__________________________________/
V__________________________________
Karlmannaföt
frá kr. 1.795,00
kr. 474,00
kr. 315,00 og <5,00
kr. r"
&
Terylenebuxur, nýkomnar
Gallabuxur
Flauelsbuxur
Gallabuxur, kvensnið
Stretch- og gallabuxur
Regngallar
o.m.fl. ódýrt.
Andrés, herradeild,
Skólavöröustíg 22, sími 18250.
kr.
kr.þ
kr
Útgerðarmenn
— skipstjórar
TOGVÍR fyrirliggjandi. Ýmsir sverleikar allt frá
11 mm. Hagstætt verö.
Jónsson & Júlíusson,
Ægisgata 10, sími
25430.
Pelsar og
leðurfatnaður
Greiðsluskilmálar
Minkapelsar í
úrvali
Verið velkomin.
PELSINN
Kirkjuhvoli -sími 20160
Valdastefna
Alþýðubanda-
lagsins
' ','a ihaldsins
Þeb W»PU ‘“‘ verki
há 6ttieun6"S.
Uppgjöfin skýrð
I nafnlausri skýringargrein í Þjóðviljanum í gær segir Svavar
Gestsson frá því, hvers vegna hann gafst upp á hinni von-
lausu stjórnarmyndunartilraun sinni á laugardag. Skellir
hann „skuldinni" auðvitað á viöræðuaöila og Sjálfstæðis-
flokkinn. Staðreyndin er hins vegar sú, að frá upphafi lá Ijóst
fyrir að Svavar Gestsson gat aldrei myndaö ríkisstjórn. Skýr-
inguna er aö finna í stefnu Alþýöubandalagsins eins og rakiö
er í Staksteinum í dag.
Sé sUTnuskrá Alþýöu-
bandalagsins lesin kemur í
ljós, að flokkurinn stefnir
að sósíalísku þjóðskipulagi
hér á landi að pólskri eða
sovéskri fyrirmynd. Leið
Alþýðubandalagsins að
þessu markmiði er vald-
beiting ef allt annað þrýtur
eða eins og segir í stefnu-
skrá þess:
„Helstu valdamiðstöðv-
arnar í nútíma auðvalds-
þjóðfélagi mynda eina
samfellda heild og því
verður aldrei til langframa
stjórnað samtímis eftir
tveim andstæðum megin-
reglum. Á fyrsta stigi getur
því hin sósíalíska hreyfing
smátt og smátt komið sér
upp stofnunum og aflað sér
valdaaöstöðu. sem gerir
henni kleift að takmarka
og skilorðsbinda á ýmsan
hátt verkanir þeirra lög-
mála er ríkja { auðvalds-
skipulaginu. En þegar hún
kemst svo langt að geta í
verulegum mæli sett eigin
sjónarmið og viðmiðunar-
gildi í stað hinna borgara-
legu verður hún líka að
vera þess albúin að stíga
skrefið til fulls og ná úr
höndum borgarastéttarinn-
ar helstu valdamiðstöðvum
þjóðfélagsins. Með hverj-
um hætti þessu markmiði
verður náð er auðvitað
ekki undir hreyfingunni
einni komið, en hún getur
unnið að því að það gerist
friðsamlega. Til þess eru
að sjálfsögðu því meiri lík-
ur sem lýðræðishefð á sér
dýpri rætur og aðstaða yfir-
stéttar til beinnar valdbeit-
ingar er erfiðari.“
Lesiö í textann
Stefnuskrá Alþýðu-
bandalagsins er rituð á sér-
kennilegu tungumáli, enda
er hún ekki fyrir alþýðuna
til aflestrar heldur hina
nýju stétt og „gáfumenn**
hennar, hugmyndasmiðina
miklu, hina sönnu arftaka
Marx og Engels. En hver
er boðskapurinn í þeim
kafla stefnuskrár Alþýðu-
bandalagsins, sem vitnað
er til hér fyrir ofan?
1) Kapítalismi og komm-
únismi, „hinar tvær and-
stæðu meginreglur“, geta
ekki þróast samtímis til
langframa. Önnur megin-
reglan verður að víkja fyrir
hinni. Alþýðubandalagið
vill að kapítalismi víki og
kommúnismi taki við.
2) Til þess að ná mark-
miðinu í lið 1) þarf að
leggja „valdamiðstöðvam-
ar“ í íslenska „auðvalds-
þjóðfélaginu" undir sig.
3) Leiðina á að fara í
áfongum. Fyrst eiga al-
þýðubandalagsmenn aö
koma sér fyrir í stofnunum
sem geta ráðið miklu um
gang mála í þjóðfélaginu,
„afla sér valdaaðstöðu" til
að skáka öðrum aðilum „í
auðvaldsskipulaginu". í
þessum tilgangi vilja
kommúnistar geta notaö
verkalýðshreyfinguna, þeg-
ar þeir eru utan ríkisstjórn-
ar og kalla menn til upp-
þota á „alþingi götunnar"
jregar þá skortir meiri-
hlutafylgi á þingi.
4) I þeim ríkisstjórnum
sem setið hafa síðan í sept-
ember 1978 hafa kommún-
istar látið eins og þeirra
„eigin sjónarmið og við-
miðunargildi" hafi ráðiö
miklu og að ýmsu leyti
komið í stað „hinna borg-
aralegu".
5) Enginn vafi er á því,
að kommúnistar líta svo á
að handhöfn stjórnar-
myndunarumboðs sé besti
lykillinn að því „að stíga
skrefið til fulls og ná úr
höndum borgarastéttarinn-
ar helstu valdamiðstöðvum
þjóðfélagsins". Fögnuður-
inn yfír umboðsmennsku
Svavars Gestssonar í síð-
ustu viku staðfestir mikil-
vægi þess trúnaðarstimpils
í augum kommúnista.
6) Það er ekki undir Al-
þýðubandalaginu sjálfu
komið hvort það ákveður
að vinna að útrýmingu nú-
verandi stjómarhátta á fs-
landi „friðsamlega" eða
með ofbeldi, því að í
stefnuskrá flokksins er
einungis sagt, að hann
„geti unnið að því“ að
valdatakan fari fram í friði.
Valdbeiting er alls ekki úti-
lokuð.
Stefnt að
upplausn?
Geir Hallgrímsson,
formaður Sjálfstæðis-
fíokksins, komst þannig að
orði í ríkisfjölmiölum á
miðvikudagskvöld, að
efnahagsvandinn nú væri
meiri en núlifandi íslend-
ingar heföu kynnst Ný
stjórn hlýtur að skýra allri
þjóðinni nákvæmlega frá
einstökum þáttum í því erf-
iða dæmi sem hún ætlar aö
reyna að láta ganga upp.
En almenningur veltir
því fyrir sér, hvort það sé
einleikið að jafn illa horfí í
þjóðarbúskapnum og raun
ber vitni. Hvers vegna sátu
fráfarandi ráðherrar jafn
lengi aögeröarlausir og
fíutu sofandi að feigðarósi?
Allt fram á þetta ár börðu
alþýðubandalagsmenn sér
á brjóst þegar minnst var á
stjórnarslit og sögðu, að
það yrðu sko aðrir en þeir
sem hlypu frá vandanum!
Hæst hrópuðu kommúnist-
ar um þetta eftir að stjórn-
in var hætt að geta tekist á
við vandann vegna þess að
hún hafði ekki lengur
meirihlula á þingi.
Kommúnistar skyldu þó
ekki hafa metið ástandið
þannig, að við núvcrandi
aðstæður væri besti kostur-
inn til að útrýma „auö-
valdsskipulaginu“ á ís-
landi sá, að upplausnin yrði
sem mest? Þessari spurn-
ingu er ekki unnt að svara
nú en viðbrögð Alþýðu-
bandalagsins á næstu dög-
um og vikum munu gera
I það.
Um daginn. þegar við tæmdum stóru geymsluna og tókum til á geymsluloftinu,
fundum við nokkurt magn af hinum gullfallegu, sígildu ljóðabókum, sem ísafold gaf út
fyrir 40-50 árum í bókaflokknum
ISLENSK
ÚRVALSLJÓÐ
Bækurnar voru óbundnar, en nú höfum við bundið þær í fallegt band og seljum þær í sérstökum
öskjum, allar 12 bækurnar saman - eða eina og eina.
Þessar litlu bækur eru
SÍGILD GJÖF
og hægt að gefa allt safnið sem stórgjöf eða nokkrar i einu - jafnvel eina og eina
- í sérstöku tilefni eða bara til að syna hlýjan hug.
Við önnumst áletranir. ef gefandinn vill gera gjöfina enn persónulegri.
ÍSAFOLD