Morgunblaðið - 26.05.1983, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1983
Norska sendiherranum
í íran sýnt banatilræði
Osló, 25. maí. Krá Jan Erik Lauré, frí llarilara
NORSKI sendiherrann í Teheran varð
fvrir nokkrum dögum fyrir skotárás er
hann var á leið heim frá einkasam-
kvæmi um miðnæturleytið. Sendiherr-
ann, Nic A. Fougner hlaut smávægileg
meiðsl er hann fékk í sig glerflísar úr
rúðu bifreiðarinnar, sem hann ók í.
„I>að var augljóslega verið að reyna að
ráða mig af dögum,,, sagði hann.
Fougner hafði rétt áður en skotið
Gripnir
með tonn
af ópíum
Istamabad, Pakistan, 25. maí. AP.
TOLLVERÐIR í Islamabad til-
kynntu í dag, að þeir hefðu hand-
tekið tvo eiturlyfjasmyglara, sem
reynt hefðu að smygla meira en
einu tonni af ópfum út úr landinu.
Telja embættismenn að smyglar-
arnir séu hlekkir f keðju alþjóð-
legra eiturlyfjasmyglara.
Upprunalega komu ópíum-
birgðirnar frá Afganistan og
var verið að flytja þær til La-
hore, um 300 km suður af Islam-
abad, þegar upp komst um
smyglarana. Komust tollverðir
á sporið þegar þeir stöðvuðu
flutningabifreið með fölsku
skrásetningarnúmeri.
Hafði ópíuminu verið komið
fyrir í fölskum botni bifreiðar-
innar. Reyndust það alls vera
1.085 kíló þegar tollverðir höfðu
vigtað varninginn. Farmur þessi
slagar hátt í heildarþyngd alls
ópíums, sem tollverðir í Pakist-
an komust yfir fyrstu þrjá mán-
uði ársins.
Morgunblaðsins.
var á hann ekið framhjá varðstöð,
þar sem hann varð ekki var við neitt
óvenjulegt. Hann hafði hins vegar
vart ekið framhjá stöðinni er fyrsta
kúlnahríðin small í glugga bifreið-
arinnar og munaði ekki nema hárs-
breidd að ein kúinanna hitti hann í
höfuðið.
„Ég vissi að það voru gatnamót
um 30 metra framundan. Ég var
eins og gefur að skilja lítið hrifinn
að því að hætta mér út úr bílnum og
á bersvæði. Því tók ég þá áhættu að
aka að gatnamótunum, þar sem ég
ætlaði að forða mér mér úr skotlín-
unni, en áður en það tókst dundi
önnur kúlnahríð á bílnum," sagði
sendiherrann.
Þrátt fyrir að ein kúlanna úr
skothríðinni hæfði bensíngeymi bif-
reiðarinnar tókst sendiherranum að
komast alla leið heim án frekari
skakkafalla. Hringdi hann í kunn-
ingja sinn, íranskan lækni, og gerði
hann að sárum sendiherrans.
Sendiherrann hefur skýrt frá því,
að iðulega séu unglingspiltar í
varðstöðvunum i borginni og telur
hann fullvist, að einn þeirra hafi
Kaupmannahofn:
Einn lést
í öflugri
sprengingu
Kaupmannahöfn, 25. maí. AP.
STARFSMAÐUR bensínstöóvar
nærri miðborg Kaupmannahafnar lét
lífið og fimm manns slösuðust þegar
öflug sprenging varð á einni af bens-
ínstöðvum Shell rétt fyrir hádegið í
gær.
Að sögn lögreglu gereyðilagðist
bensínstöðin í sprengingunni og
nokkrar byggingar í næsta ná-
grenni urðu fyrir skemmdum. Ekki
er vitað hvað sprengingunni olli, en
líklegast er talið að bensíngufur
hafi safnast saman í kjallara stöðv-
arinnar og sprenging hafi orðið
þegar neisti hljóp í gufurnar.
Slíkur var krafturinn í spreng-
ingunni, að allir fjórir hjólbarðar
leigubifreiðar, sem átti leið fram-
hjá stöðinni, sprungu við þrýsting-
inn sem myndaðist.
Allt tiltækt lið lögreglu og
slökkviliðs var kallað á staðinn og
tókst að ráða niðurlögum eldsins
fljótlega. Hjálpaði það nokkuð til
við slökkvistarfið, að úrhellisrign-
ing var þegar slysið varð.
Veður
víða um heim
Akureyri 3 alskýjað
Aþena 27 heiðskírt
Barcelona 19 lóttskýjað
Berlin 15 skýjað
Chicago 25 skýjað
Dyflinni 16 heiðskirt
Feneyjar 16 skýjað
Frankfurt 11 rigning
Helainki 20 heiðskírt
Hong Kong 27 rigning
Jerúsalem 23 skýjað
Jóhannesarborg 15 heiðskirt
Kaíró 35 heiðskirt
Kaupmannahöfn 15 rigning
Las Palmas 21 lóttskýjað
Lissabon 22 heiðskírt
London 17 heiðskírt
Los Angeles 26 skýjað
Madríd 22 heiðskirt
Malaga 20 skýjað
Mallorca 20 lóttskýjað
Mexíkóborg 27 skýjað
Miami 30 skýjað
Moskva 30 heiðskírt
Nýja Dehlí 35 skýjað
New York 24 heiðskirt
París 16 skýjað
Perth 20 heiðskírt
Rio de Janeiro 29 skýjað
Reykjavík 9 skýjað
Rómaborg 20 skýjað
San Francisco 17 heiðskfrt
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Sydney 19 rigning
Tel Aviv 24 skýjað
Tókýó 18 skýjað
Vancouver 26 heiðskírt
Vínarborg 12 rigning
Þórshöfn 7 alskýjað
sent kúlnahríðina á eftir bíl hans.
Sagði hann ungu piltana oft vera
mjög taugaóstyrka af ótta við að-
gerðir skæruliða.
Sendiherrann hefur bæði tilkynnt
skotárásina til yfirvalda í Iran, auk
þess sem hann hefur gert norska
utanríkisráðuneytinu viðvart. Fast-
lega er ráð fyrir því gert, að Norð-
menn sendi opinber mótmæli til Ir-
an vegna þessa atviks.
Belfast:
Sprenging
særði 12
Belfast, 25. maí. AP.
TÓLF manns slösuðust þegar öflug
sprengja, sem komið hafði verið
fyrir í sendiferðabifreið, sprakk fyrir
utan lögreglustöð í Belfast í gær-
morgun. Auk manntjónsins urðu
miklar skemmdir á eignum.
Tveir lögreglumenn voru á með-
al þeirra sem slösuðust, þar af
annar í lífshættu. Hinir voru
flestir óbreyttir borgarar á hlaup-
um í skjól eftir að viðvörun hafði
borist rétt áður en sprengjan
sprakk.
„Það er með ólíkindum, að eng-
inn skyldi slasast í þessum ósköp-
um,“ sagði varðstjórinn Bill
McAllister. Sagði hann símhring-
ingu hafa borist 10 mínútum áður
en sprengjan sprakk og einn sinna
manna hefði slasast þegar hann
hjálpaði til við að rýma nágrennið.
Harold Macmillan, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sem verður ní-
ræður í febrúar næstkomandi, sést hér í fylgd Karls Bretaprins þar sem þeir
koma til Sheldonia-leikhússins í Oxford þar sem prinsinn tók við heiðurs-
skjali síðastliðinn miðvikudag.
Bretadrottning í fjögurra
daga heimsókn til Svíþjódar
Stokkhólmi, 25. maí. AP.
ELÍSABET II Bretadrottning
og eiginmaður hennar Filipp-
us prins komu í dag til
Stokkhólms í fjögurra daga
opinbera heimsókn. Mikið
var um dýrðir við komu
þeirra með konunglegu
snekkjunni Britannia í fögru
veðri.
Brittania lagði af stað frá
Portsmouth á laugardag með
drottninguna um borð en Fil-
ippus prins kom til móts við
hana í gærkvöldi eftir að
hafa verið á ferðalagi um
Zambíu.
Þetta er í annað skipti sem
Bretadrottning og eiginmaður
hennar sækja Svía heim, en Karl
Gústaf XVI konungur er fjar-
skyldur drottningunni. Fyrri
heimsókn þeirra var árið 1956 í
tengslum við hestaíþróttir
Ólympíuleikanna, þegar drottn-
ingin hafði aðeins ríkt í nokkur ár
og núverandi konungur Svíþjóðar,
Karl Gústaf, var aðeins tíu ára
gamall.
Komu snekkjunnar, sem sigldi
til hafnar í fylgd freigátunnar
Mínervu og fjögurra tundur-
skeytabáta, var fagnað með 21
fallbyssuskoti og á bryggjunni
var saman kominn mikill mann-
fjöldi til að fagna þeim hjónum og
fylgjast með komu þeirra.
Þau munu gista konungshöllina
meðan á þessari fjögurra daga
heimsókn stendur, en skipulögð
dagskrá er alveg fram á föstudag
þegar þau halda áleiðis til Gauta-
borgar.
Verkalýðsleiðtogi dæmdur:
Fékk fimm ára
dóm fyrir and-
ófsaðgerðir
Moskvu, 25. maí. AP.
Einn forsprakka neðanjarðarhreyf-
ingarinnar Smot var í dag úrskurð-
aður í fangelsi á ný. Fékk hann að
Hundrað manns saknað
eftir að skip sökk á Níl
Karíó, 25. maí. AP. »
Kanö, 25. maí. AP.
FARÞEGASKIP með meira
en 600 manns innanborðs,
flesta frá Súdan og Egypta-
landi, brann og sökk á ánni
Nfl árla í morgun suður af
Abu Simbel í suðurhluta
Egyptalands, að því er lög-
regluyfirvöld tilkynntu í dag.
Ellefu klukkustundum eftir að
slysið átti sér stað tilkynnti tals-
maður innanríkisráðherra,
Fakhreddin Khaled, að meira en
500 manns hefði verið bjargað af
björgunarsveitum og sjö lík hefðu
fundist í fljótinu innan um krókó-
díla og forareðju. Khaled sagði að
björgunaraðgerðir stæðu enn yfir,
en nokkrir farþeganna munu hafa
komist syndandi til lands og verið
hjálpað þar af nærstöddum.
Ekki er ljóst hver voru upptök
eldsins, en talið er aö áin sé átta-
tíu metra djúp á þeim slóðum sem
slysið átti sér stað.
Skipið, sem var í eigu fyrirtækis
í Nílardal, lagði af stað frá Aswan
á mánudag og áætlað var að sigla
til súdönsku hafnarborgarinnar
Wadi Halfa, sem er um 320 kílóm-
etra leið.
þessu sinni fimm ára dóm fyrir and-
ófsaðgerðir þegar mál hans var tek-
ið fyrir af dómstóli í Leníngrad.
Lev Volokhonsky, en svo heitir
verkalýðsleiðtoginn, er ekki þar
með laus úr prísundinni, því að
lokinni fimm ára fangelsisdvöl
bíður hans fjögurra ára þrælkun-
arvinna í einhverjum afskekktum
hluta landsins.
Sérstaklega var þess getið í
ákærunni á hendur Volokhonsky,
að hann hefði gert sig sekan um
dreifingu á andsoveskum áróð-
ursbæklingum, þar sem farið hefði
verið niðrandi orðum um þjóðfé-
lagið.
Volokhonsky hefur áður verið
dæmdur til fangelsisvistar og þá
fyrir svipuð afbrot gegn ríkinu.
Var frá því skýrt í réttarhöldun-
um, að leitt væri til þess að vita,
að menn á borð við Volokhonsky
sýndu engin merki iðrunar þrátt
fyrir fyrri brot.