Morgunblaðið - 26.05.1983, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAl 1983
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1983
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 210 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakið.
Ríkisstjórn kemur
Spennan í stjórnarmynd-
unarviðræðunum fram á
nótt í gær staðfesti enn að
úrslit í þingkosningunum, 23.
apríl síðastliðinn, voru án
skýrrar niðurstöðu. Forseti
íslands valdi þann kost eftir
misheppnaða tilraun Svavars
Gestssonar að veita engum
umboð. Hins vegar tóku
stærstu flokkarnir á þingi sig
saman og könnuðu, hvort for-
sendur væru fyrir samstarfi.
Þær fundust loks og undir
miðnætti hélt Steingrímur
Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksins, til
Bessastaða, fékk umboð til að
mynda samsteypustjórn
Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks, stjórn sem
styðst við góðan meirihluta á
þingi og sest við völd í dag.
Málefnasamningurinn ber
þess merki að við gífurlegan
vanda er að etja. Langar um-
ræður milli þingflokkanna
um skiptingu ráðuneyta sýna,
að ekki féllu þeir auðveldlega
saman. Þrýstingurinn var
hins vegar orðinn mikill
vegna holskeflunnar sem er á
næsta leiti og fyrsta verk
hins nýja ráðuneytis verður
að gefa út bráðabirgðalög,
sem forða þjóðarskútunni
undan mestum þunga henn-
ar. En eins og á var bent í
kosningabaráttunni af öllum
flokkum er nauðsynlegt að
marka leiðina lengra en
nokkrar vikur fram í tímann.
Margsinnis hefur verið á
það bent hér á þessum stað,
að til eru efnahagsúrræði
gegn þeim vanda sem við er
að etja. Spurningin er hins
vegar sú, hvort stjórnmála-
mönnunum tekst að sann-
færa þjóðina um nauðsyn
hins sameiginlega átaks,
nauðsyn þeirra fórna, sem
færa verður til að á ný skap-
ist hið æskilega jafnvægi í
þjóðarbúskapnum. í því efni
bíða hinnar nýju stjórnar
mikil verkefni, að upplýsa
þjóðina um alla þætti hins
válega viðskilnaðar og segja
rétt frá í öllum greinum. Tak-
ist ekki að koma þeim rökum
til skila, til alls almennings,
sem eru forsendur hinna
harkalegu aðgerða er öll hin
mikla vinna sem stjórnmála-
mennirnir lögðu á sig við
myndun ríkisstjórnarinnar
unnin fyrir gýg. í því efni
hvílir sérstaklega rík skylda
á framsóknarmönnum, sem
setið hafa í ríkisstjórn síðan
1971.
Hinni nýju ríkisstjórn
fylgja góðar óskir allra þjóð-
hollra manna. Það á að gefa
henni tækifæri til að takast á
við hina miklu erfiðleika í
þeirri von að hún geti laðað
fram alla bestu krafta meðal
landsmanna. Stjórnin verður
að sjálfsögðu dæmd af verk-
um sínum.
Ríkisstjórn fer
Sú mistakastjórn, sem nú
er kvödd, var mynduð til
þess fyrst og fremst að kljúfa
Sjálfstæðisflokkinn til fram-
búðar. Þetta mistókst. Það er
það eina sem gott verður sagt
um hana gengna.
Því miður á þjóðin eftir að
súpa seyðið af margvíslegum
mistökum hennar lengi enn.
Arfleifð hennar, sem stefnir
atvinnuöryggi og efnahags-
legu sjálfstæði þjóðarinnar í
hættu, rýrir áframhaldandi
kjör landsmanna þann tíma,
sem það tekur nýja ríkis-
stjórn að rétta þjóðarbúið úr
kútnum. Helztu hættuþættir
þessarar arfleifðar eru:
• 1) Verðbólga stefnir, að
öllu óbreyttu, vel yfir 100%
markið, og setur fjölda fram-
leiðslufyrirtækja stólinn
fyrir dyrnar um framtíðar-
rekstur.
• 2) Langvarandi tap-
rekstur undirstöðuatvinnu-
vega, sem enn horfa framan í
hrikalegar tilkostnaðarhækk-
anir, hefur fært atvinnuvegi í
skuldafjötra og rýrt þjóðar-
framleiðslu og þjóðartekjur. í
jánúar sl. voru skráðir 51
þúsund atvinnuleysisdaga,
sem jafngildir því að 2.350
manns, eða 2,2% vinnufærra
manna, hafi verið atvinnu-
lausir allan þann mánuð.
• 3) Svo langt hefur verið
gengið í skuldasöfnun að
efnahagslegt sjálfstæði þjóð-
arinnar er í verulegri hættu.
• 4) Þrátt fyrir stóraukna
skattheimtu stefnir í 1,8
milljarða króna halla á ríkis-
sjóði 1983, en sú fjárhæð
samsvarar öllum tekjuskött-
um og sjúkratryggingar-
gjöldum einstaklinga í ár.
Mesta hallæris-ríkisstjórn
í sögu lýðveldisins hefur lagt
upp laupana. Með henni er úr
sögunni neitunarvald Al-
þýðubandalagsins í stærri
málum landsmanna. Það var
nauðsynleg forsenda þess að
vinna sig út úr vandanum og
hefja uppbyggingarstarf.
Sjö umsóknir um nýtingu Krísuvíkurskóla
loðdýrarækt tíl mannræktar
Allt frá
SJÖ UMSÓKNIR hafa borist um leigu
á Krísuvíkurskóla og spanna umsóknir
allt frá loódýrarækt upp í mannrækt-
arstöð, þar sem rækta skal líkamlegt
og andlegt atgervi landsmanna, að þvi
er Björn Olafsson, bæjarfulltrúi í Kópa-
vogi, tjáði blaðamanni Mbl. Umsóknir
hafa borist um að koma á fót sumar-
búðum, einkum fyrir börn og þá jafnvel
erlend; hvfldarheimili ( lúxusklassa;
stóriðnað — að skólinn verði nýttur til
þess að hýsa starfsmenn og komið
verði upp iðnaði, sem byggi á jarðhita á
svæðinu.
En mörg ljón eru í veginum til
þess að koma slíkum iðnaði á fót.
Einangrun staðarins, bæta þarf sam-
göngur við Krísuvík, leggja rafmagn
og Hafnarfjarðarbær á orkuréttindi
á svæðinu.
Á meðan menn huga að hvernig
nýta skuli „draugahúsið" í Krísuvík,
grotnar húsið niður og hefur raunar
gert svo allar götur síðan fram-
kvæmdum var hætt. Það hefur staðið
autt síðan 1978 nema hvað um tíma
voru svín höfð í húsinu.
Það var árið 1967 að undirbúning-
ur að byggingu Krísuvíkurskóla
hófst. Framkvæmdir við sjálfa bygg-
inguna hófust 1974 og stóðu samfellt
til 1977. Þá hins vegar voru komnar
fram efasemdir um ágæti þessa húss.
Upphaflega hugsuðu menn sér að
nýta Krísuvíkurskóla fyrir börn, sem
búa við erfiðar heimilisaðstæður;
börn sem af félagslegum ástæðum
geta ekki dvalið hjá foreldrum sín-
um. Það var að frumkvæði skóla-
manna að ráðist var í þetta mann-
virki að sænskri fyrirmynd. Um
miðjan síðasta áratug fóru að koma
upp efasemdaraddir um ágæti slíkr-
ar stofnunar. Jú, Svíar höfðu komist
að þeirri niðurstöðu að það væri ekki
heppilegt að safna saman börnum og
unglingum, sem ættu við erfiðar fé-
lagslegar aðstæður að búa, og þar
með var grundvellinum kippt undan
skólanum.
Það var svo árið 1978 að ákveðið
var að hætta verkinu. Menntamála-
ráðuneytið, sem á 75%, og Samtök
sveitarfélaga í Reykjanesumdæmi,
SASfR, eiga húsnæðið. Síðan hefur
Krísuvíkurskóli grotnað niður og
skemmdir hafa verið unnar. Fjöl-
margar rúður hafa verið brotnar,
ofnum hefur verið stolið úr húsinu og
fleira mætti telja.
Eftir að menn hurfu frá því að
koma á fót skóla, hefur Krisuvík-
urskóli velkst um í kerfinu. Fyrstu
hugmyndir um nýtingu hússins voru
á þá lund, að komið yrði á fót betrun-
arhæli fyrir unga afbrotamenn en
dómsmálaráðuneytið mun hafa
hafnað því. Þá var það reifað að hús-
ið yrði innréttað til ráðstefnuhalds
fyrir rikisstofnanir, en ríkið taldi sig
ekki hafa efni á því. Þá voru hug-
myndir þess efnis að Samtök áhuga-
fólks um áfengisvandamálið, SAÁ,
yfirtæki húsið en það rann einnig út
í sandinn.
Því er það svo, að þetta 2.0002 hús
mitt í auðninni við Krísuvík stendur
ónotað — hús að andvirði um 12
milljónir króna. Fúkkalykt lagði að
vitum þegar blaðamaður Mbl. var
þar fyrir skömmu. Víða mátti sjá
brotnar rúður, læsingar úr hurðum
voru á brott og allir ofnar horfnir.
Gólf á neðri hæð voru undir vatni og
enn mátti sjá snjóskafla í húsinu.
Vatn og vindar næða um húsið og
smám saman eyðileggja það. Von-
andi tekst á næstunni að finna
Krísuvikurskóla hlutverk; enn eitt
dæmið um vanhugsaða fjárfestingu í
þjóðfélagi okkar.
H.Halls.
Þegar blaðamenn Mbl. voru í ferð, var snjór í húsinu og við norðurhlið þess voru enn snjóskaflar.
Öllum ofnum hússins hefur verið stolið.
Fjölmargar rúður hafa verið brotnar ( húsinu.
Uyndir. Kriatján Eintrsson.
Víða voru gólf undir vatni.
Sauðburður
Undur og stórmerki
verjum degi
- , -igjfe
Það að ekki sé tekið út með sældinni
að koma í þennan heim, né á tíðum
heldur að lifa i honum, eru svo sem
ekki ný sannindi. Þó eru alltaf ein-
hverjir að reyna það á eigin skrokk á
hverjum degi, sumir ef til vill í fyrsta
skipti, eins og ærin Golsokka og hrút-
lambið sem hún bar um miðja siðustu
viku geta borið vitni um.
Ærin Golsokka er tveggja vetra,
smá vexti, sem bar sínu fyrsta lambi
á miðvikudaginn i síðustu viku.
Strax á þriðjudagskvöldið mátti sjá
af hegðun hennar að hverju stefndi,
því hún henti sér niður með stuttu
millibili og jarmaði, eins og siður
mun vera kinda sem svona er ástatt
fyrir. Á miðvikudagsmorguninn
reyndi hún að stela lömbum frá ný-
bornum kindum, en það mun og vera
háttur kinda sem komnar eru að
burði. Um hádegisbilið komu hríð-
irnar með stuttu millibili, en ekki
var allt sem skyldi, því ærin stóð í
sífellu upp, og áður en lauk hafði hún
reikað yfir þvert hólfið sem hún var
í. Þegar ljóst var að ekkert gekk og
sóttin var að fara af henni, varð
mannskepnan að hafa afskipti af
málinu og grípa til einhverra ráða og
tala myndirnar skýrustu máli um,
hvernig það gekk fyrir sig. Fyrst var
að ná kindinni til að hjálpa henni, en
hún var ekki alveg á því fyrst til að
byrja með, þó úr því rættist um síðir.
Á tímabili var óttast að lambið
fæddist andvana, vegna þess hversu
erfiðlega burðurinn gekk, en sem
betur fer reyndist það við bestu
heilsu eftir allar þrengingarnar, þá
loks það kom í heiminn, og gaf frá
sér langþráð lífsmarkið. Lambið
reyndist vera hrútur með óvenju
stóra hnífla og voru þeir helsta
orsökin fyrir því hversu erfiðlega
burðurinn gekk.
Ljósmyndirnar tók ljósmyndari
Morgunblaðsins, Kristján Örn
Elíasson.