Morgunblaðið - 26.05.1983, Blaðsíða 35
t
\
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1983 35
breytti athafnalífi vestra í veru-
legum atriðum. Magnús vann að
þessum málum af miklum áhuga
og gerðist verktaki við ýmsar
framkvæmdir í tengslum við hið
nýja dreifikerfi til byggðarlag-
anna meðan á þessum fram-
kvæmdum stóð.
Þegar þessum framkvæmdum
lauk og verkefnum fækkaði,
ákveður Magnús að breyta til.
Börnin eru nú komin á fram-
haldsnámsaldur og það verður því
úr, að fjölskyldan flytur til
Reykjavíkur árið 1963.
Fyrsta árið í Reykjavík starfaði
Magnús hjá Bræðrunum Ormsson
hf., en ári síðar gerðist hann
starfsmaður Landsbanka íslands.
Starfaði hann þar að eftirliti og
umsjón með eignum bankans og
viðhaldi þeirra. Þessu starfi
gegndi Magnús síðan til æviloka,
og naut hann þar trausts og trún-
aðar samstarfsmanna sinna jafnt
sem yfirmanna sinna í Lands-
bankanum. Sérstakt áhugasvið
Magnúsar í þessu starfi hans var
uppbygging og starfræksla sumar-
búða starfsmanna Landsbankans,
bæði í Selvík í Grímsnesi og í
Fnjóskadal. Munu margir eiga eft-
ir að njóta verka hans og forgöngu
á þessum málum.
Magnús átti sér fjölda áhuga-
sviða. Hann var mjög áhugasamur
um norrænt samstarf og tók virk-
an þátt í starfi Norræna félagsins.
Hann var um tíma umsjónarmað-
ur með Neskirkju. Hann var einn
af forgöngumönnum um stofnun
„Samtaka gegn asthma og
ofnæmi“, og formaður þess félags
fyrstu árin.
Magnús gekk ekki heill til leiks.
í fjölda ára þjáðist hann af alvar-
legum asthma, og mátti taka sterk
meðlul ti að halda þessum erfiða
sjúkdómi niðri. Þessi sterku meðul
urðu síðar til þess, að síðustu árin
var hann veill fyrir hjarta. Sið-
astliðið ár var hann mikið sjúkur,
oft á spítala eða lítt rólfær heima.
Mátti sjá að hverju stefndi. En
hann kveinkaði sér aldrei og
mætti iðulega til vinnu, þótt þrek-
ið væri orðið lftið. Það er' því
þreyttur maður og þjáður, sem
kvaddur er nú.
Nú, þegar Magnús, mágur minn,
er allur og horfinn sjónum okkar,
munu margir minnast hans, sem
hins áhugasama og hjálpsama
manns sem vildi hvers manns
vanda leysa, — og varð í því efni
mikið ágengt. Margir munu og
hljóðir flytja honum þakkir fyrir
samfylgdina.
Við, tengdafólk Magnúsar, flytj-
um sérstakar þakkir fyrir vináttu
hans og ánægjuleg samskipti á
liðnum tíma. Við sendum Hönnu
og öðrum vandamönnum sam-
úðarkveðjur.
Drottinn gaf, og Drottinn tók.
Lofað veri nafn Drottins.
Önundur Ásgeirsson
Á rm-Aan báru boóar rísa
og birta vors á tinda skín,
á moóan stjörnur landi lýsa
lifa ætti minning þín.
I’ín sál var hrein og sönn þín ást,
sólhjart skjaldar merki,
og einn af þeim, sem aldrei brást
í orói, trú né verki.
(E. Sigurósson)
Með þessum sígildu orðum vil ég
minnast vinar okkar, Magnúsar
Konráðssonar, sem kvaddur er í
dag.
Kynni og vinskapur fjölskyldna
okkar hefur frá fyrstu tíð sannað
okkur þann vin sem Magnús var,
sem aldrei brást í orði, trú né
verki.
I baráttu hans við erfiðan
sjúkdóm sýndi hann einstakt þrek
og hetjulund fram á síðustu stund.
Hönnu og fjölskyldu sendum við
innilegar samúðarkveðjur.
Að lokum vil ég taka mér í
munn þessi orð: „Ég mun ætíð
minnast hans, þá er ég heyri góðs
manns getið."
Lárus Þórarinsson
í dag er til moldar borinn
Magnús Konráðsson, rafvirkja-
meistari.
Eins og ávallt þegar menn falla
frá á góðum aldri verður sú hugs-
un ofarlega í huga að kallið hafi
komið fyrr en skyldi. Einkum
verður sú hugsun þó áleitin þegar
í hlut á sá sem hverfur frá mörg-
um ástvinum — sá sem líklegur
var til að gefa mikið og þiggja
mikið, njóta efri ára í faðmi stórr-
ar fjölskyldu.
En Magnús Konráðsson hefur
nú kvatt og hlotið hvíld frá þeirri
byrði sem erfiður sjúkdómur
óhjákvæmilega lagði á hann síð-
ustu árin. í því felst mikil huggun
þeim sem nú eiga um sárast að
binda — auk þeirrar, sem minning
um góðan dreng veitir.
Kynni okkar Magnúsar hófust
er ég var smástelpa vestur á Flat-
eyri. Magnús kom þangað frá ísa-
firði, ungur rafvirki, og varð fljót-
lega heitbundinn frænku minni,
Hönnu Ásgeirsdóttur frá Sól-
bakka. Af endurminningum mín-
um frá bernskudögum er brúð-
kaup þeirra Magnúsar og Hönnu
ein sú ferskasta og jafnframt sú
síðasta frá „gamla" Sólbakka.
Brúðkaup þeirra hlýtur því einnig
að hafa verið stór stund í lífi mínu
enda í fyrsta sinn sem ég hafði
verið við slíka athöfn. Ég man
þegar við krakkarnir fengum full-
ir eftirvæntingar að sjá brúðina
þar sem hún sat í litlu herbergi
áður en sjálf hjónavígslan fór
fram í stofunni i nýbyggðu húsi
Ragnheiðar Eiríksdóttur og Ás-
geirs Torfasonar, tengdaforeldra
Magnúsar. Einnig minnist ég
óþolinmæði okkar krakkanna þar
sem við biðum á efri hæð „garnla"
Sólbakka-hússins eftir að brúð-
kaupsgestir stæðu upp frá borðum
á neði hæðinni og röðin kæmi að
okkur! Ég sé einnig fyrir mér eins
og það hefði gerst í gær brúðhjón-
in og gestina ganga yfir lækjar-
brúna að nýja húsinu þar sem
brúðargjafirnar biðu.
Ég hef nú aðeins lýst broti af
þeim minningum sem ég á frá
upphafi hins farsæla hjónabands
Magnúsar og Hönnu, frá þeim
degi er hann tengdist frændfólki
mínu á Sólbakka. Magnús og
Hanna hófu búskap sinn í
Sveinshúsi á Flateyri. Á næstu ár-
um stækkaði fjölskyldan ört. Böm
þeirra, Ragnheiður Ásta, Ásgeir,
Björn, Jens, Torfi og Þorbjörg
fæddust öll á Flateyri, og það má
með sanni segja að Magnús og
Hanna hafi átt miklu barnaláni að
fagna.
Þessir „litlu“ frændur mínir og
frænkur eru nú öll uppkomin og
flutt úr föðurgarði, vel menntað
atgervisfólk.
Á þeim árum sem þau Magnús
og Hanna bjuggu á Flateyri lét
Magnús, auk vinnu sinnar sem
rafvirki, ýmis félagsmál til sín
taka, og var m.a. oddviti um ára-
bil. Á miðjum sjötta áratugnum
fluttu þau hjónin með börnin sex
til Reykjavíkur þar sem Magnús
gerðist starfsmaður Landsbanka
Islands. Heimili þeirra var á
Grettisgötu, Hraunteigi og síðast
að Staðarbakka 8.
Ragnheiður, tengdamóðir
Magnúsar, sem fylgdi fjölskyld-
unni til Reykjavíkur, hefur æ síð-
an dvalið á heimili þeirra og er nú
á tíræðisaldri.
Magnús Konráðsson var áreið-
anlega mikill og góður heimilis-
faðir, maður reglusemi og atorku.
En hann var án efa ekki síst mikill
barnavinur. Um það bar fram-
koma hans við börn glöggt vitni.
Þegar stóri barnahópurinn var
að vaxa úr grasi — og jafnvel áður
en þau fluttu suður fór ég að bæta
mínu barni í hópinn af og til. Son-
ur minn, Kristján, var þar fyrst í
fóstri nokkurra mánaða gamall og
reyndist hann eiga hjá þeim hjón-
um athvarf þegar á þurfti að
halda um margra ára skeið — á
Grettisgötunni, Hraunteignum og
í sumarbústaðnum við Álftavatn.
Hið hlýja viðmót, sem við áttum
ævinlega að mæta hjá Magnúsi og
fjölskyldu hans, var þess áreiðan-
lega valdandi að þangað var svo
oft leitað.
Mér er það nú á þessari stundu
ofarlega í huga að hafa í raun "
aldrei getað launað Magnúsi og
fjölskyldu hans greiðasemi þeirra
og þá vinsemd sem þau hafa ávallt
sýnt mér, og sem Kristján sonur
minn naut ekki síst góðs af í
bernsku. Fátækleg orð nú megna
vart að tjá það sem ég þó gjarnan
vildi ef ég mætti: Haf innilega
þökk fyrir allt.
Elsku Hanna, ég votta ykkur
öllum dýpstu samúð.
Jóhanna Kristjánsdóttir.
Leiðrétting
f FYRIRSÖGN á minningargrein
hér í Mbl. um síðustu helgi um
Dröfn Magnúsdóttur, urðu þau
leiðu mistök að föðurnafn hennar
misritaðist. í fyrirsögn stóð
Magnúsdóttir í stað Markúsdóttir.
Er beðist afsökunar á mistökun-
um um leið og þau eru leiðrétt.
fór þá til starfa í Landsbankanum
en Ragnar hélt áfram sína braut.
í minningargrein í Morgun-
blaðinu á hvítasunnudag hefur
einn bekkjarbræðra Ragnars rak-
ið æviferil hans og þarf ekki þar
um að bæta. Á eitt vil ég þó leggja
áherslu. Bókaútgáfan Hlaðbúð,
sem Ragnar hóf lýðveldisárið og
stundaði í tvo áratugi, var merk
menningarstofnun, vegna útgáfu
kennslubóka, þjóðlegs fróðleiks og
fræðirita. Sjálfsagt hefur það ver-
ið skaði að Ragnar fór á miðjum
aldri úr dómskerfinu, Hlaðbúð
held ég þó að geri meira en að
jafna metin.
Þátt í mannlýsingu á Ragnari
sæki ég á Gladstones grund. Sam-
tíða voru þeir einu sinni í London
Ragnar og Halldór Kr. Júlíusson.
Höfðu þeir báðir aðgang að sömu
dómsstofnun í London, en þar
hafði Ragnar dvalið um skeið.
Heyrði ég Halldór síðar segja
þannig frá í samkvæmi: „Bretum
féll Ragnar Jónsson vel í geð, þeir
notuðu um hann orðið gentleman-
like og þótti þeim hann fríður
maður." Nægir þetta um yfirborð-
ið. Erfiðara er að lýsa þvf innra.
Kemur nú í hug atvik er eitt sinn
skeði á ferðalagi að Kleifarvatni.
Vorum við Ragnar Jónsson þar
ásamt fleira fólki, þar á meðal var
listmálarinn Nína Tryggvadóttir.
Framan af vissum við varla að
Ragnar var með, svo lítið lét hann
á sér bera. Þegar farið var yfir
einn Kleifarvatnshöfðann, víkur
Ragnar sér að Nínu og spyr hana
eitthvað út í einhverjar gamlar
myndir. Fyrst var eins og Nína
yrði hálfforviða, en þó eins og feg-
in og varð skjót til svara. Síðan
tókust milli þeirra langar sam-
ræður og fylgdist ég lítt með þeim,
en nokkuð er það, að mest hélt
Nína sig að Ragnari það sem eftir
var ferðar. Þetta var nokkuð tákn-
andi fyrir Ragnar. Hlédrægni
hans duldi fyrir flestum hve hann
var félagslyndur og fjölmenntað-
ur.
Nokkru eftir þrítugt kvæntist
Ragnar, var þá komin honum við
hlið ung stúlka og falleg með
söngröddina skæra, hjartagæsku
gædd, en öllu meiri lífshraðaþrá
en Ragnar Jónsson. Eignuðust þau
tvö börn, stúlku og pilt, en slit.u
síðar samvistir. Þetta var indælt
ævintýri í lífi Ragnars, ég held
beggja. Dóttirin giftist ung til
fjarlægrar heimsálfu. Leyndist
ekki að Ragnar hefði kosið að hafa
þá fjölskyldu sér nær. Þeim mun
meir naut hann návistar og um-
hyggju sonar og heimilis hans.
Af þeim myndum sem prýddu
veggi á heimili Ragnars, veit ég að
honum þótti mjög vænt um eina.
Hún var gerð af skólabróður hans,
Jóhanni Briem, er einnig gerði
myndirnar í Fomum dönsum, sem
Hlaðbúð gaf út. Myndin sýnir ung-
an og svipbjartan dreng, er situr á
mosató í klettariði undir hamra-
borgum. Hann heldur á bók,
niðursokkinn í að lesa. Myndin
varpar frá sér birtu og hlýju.
Þetta fannst manni stundum vera
mynd af Ragnari sjálfum. Hvíta-
sunnubirta hvílir yfir mynd hans í
hugum þeirra, er þekktu hann
best. Fylgja hlýjar kveðjur
vammlausum hal og vítalausum,
sem lagður er í för á hærri kletta-
rið.
Ilalldór Sigfússon
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða aö berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
Til þess aö gera þér mögulegt aö
eignast þessa glæsilegu eldavél
bjóöumst viö til aö taka gömlu
eldavélina þína upp í fyrir 1000
kr. Engar áhyggjur, viö komum til
þín meö nýju véllna og sækjum
þá gömlu án tilkostnaöar fyrir þig
(gildir fyrir stór-Reykjavíkur-
svæöiö)
Sértu úti á landi. — Haföu sam-
band. Umboðsmenn okkar sjá
um framkvæmdina.
Dragöu ekki aö ákveöa þig. Viö
eigum takmarkaö magn af þess-
um glæsilegu ELEKTRA eldavél-
um á þessum kostakjörum.
Verð Elektra de Luxe kr. 19.900
Minus gamla eldavélin kr. 1.000
kr. 18.900
Útborgun kr. 4.500 síðan
2.500 krónur á mánuöi
aö viðbættum kostnaöi.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaöastræti 10 A Sími 16995
Elektra
De Luxe
eldavélin,
ein glæsilegasta
eldavélin
á markaðnum.
Litir: Gulur, brúnn og grænn.
Mál 60x60 (90) tm.
Rafeindastýrö klukka
Tímarofi
Áminníngarklukka
Sjálfvirkur
steikingarhitamælir
Laus ofnhurö sem
auövelt er aö
fjarlægja viö þrif
Vertu velkominn til
okkar; viö munum með
ánægju sýna þér þessa
glæsiíegu vél.
Mesta eldavélaúrvalið
er hjá okkur,
verö við allra hæfi.