Morgunblaðið - 26.05.1983, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1983
47
Hjólreiðadagurinn
BÚÍSt við
metþátttöku
á laugardag
BÚIST er viö metþátttöku ( Hjól-
reiöadeginum 1983, sem haldinn
verður á Lækjartorgi á laugar-
daginn. Taliö er að minnsta kosti
sex þúsund börn muni koma
hjólandi á Lækjartorg eftir hádegi
á laugardaginn, grunnskólanem-
ar úr Reykjavík, Mosfellssveit,
Garöabæ, Kópavogi, Hafnarfiröi
og frá Seltjarnarnesi. Á Lækjar-
torgi munu krakkarnir afhenda
söfnunarfé til styrktar uppbygg-
ingu sumárdvalarheimilis fatl-
aöra barna í Reykjadal ( Mos-
fellssveit, en söfnunin stendur nú
yfir á öllu höfuöborgarsvæöinu.
Á Lækjartorgi mun Davíö
Oddsson borgarstjóri taka á móti
börnunum, og þar veröur ýmislegt
til gamans gert. Lúörasveit
Reykjavíkur lelkur, hljómsveltin Iss
kemur fram, Pálmi Gunnarsson og
Bergþóra Árnadóttir syngja, Þor-
geir Ástvaldsson og Magnús
Ólafsson koma fram, allir fá
ókeypis gosdrykki frá Vífilfelli, og
dregnir veröa út 150 glæsilegir
happdrættisvinningar, þar á meðal
11 ný reiöhjól.
Hjólreiöafólkiö leggur af staö frá
15 skólum á höfuöborgarsvæöinu
kl. 14 á laugardaginn, og veröur
hjólaö undir lögregluvernd og meö
aöstoö bílstjóra frá Nýju sendibíla-
stööinni, félaga úr Flugbjörgun-
arsveitinni í Reykjavík, Hjólreiðafé-
lags Reykjavíkur og fleiri. Á Lækj-
artorgi munu félagar úr Svölunum
og Kvennadeild Styrktarfélags
lamaöra og fatlaöra taka viö söfn-
unarfénu.
Holmes varði titilinn
LARRY Holmes og Michael
Dokes héldu heimsmeistaratitl-
um sínum í hnefaleikum um
síöustu helgi. Holmes keppti í
svokallaöri WBC-keppni, Dokes
í WBA-keppninni. Ekki var þó
neinn glæsibragur yfir sigrum
kappanna — báöir unnu þeir
mjög naumlega á stigum.
Tim Witherspoon, sem keppti
gegn Holmes sagði: „Ég er hinn
ókrýndi meistari. Holmes veit aö
hann tapaöi.“ Veömál stóöu
Holmes 6:1 í hag fyrir slaginn en
Tim kom mjög á óvart og geröi
næstum út af viö Holmes í ní-
undu lotu meö fjórum góðum
hægri-handar höggum. Einn
dómaranna dæmdi Holmes sigur
111:118, annar dæmdi honum
115:113 og sá þriöji dæmdi Tim
sigur — 115:114.
Mikiö var baulaö á Michael
Dokes eftlr keppni hans viö Mike
Weaver, fyrrum meistara. „Ég
veit að ég er meistarinn. Ég kom
til aö berjast — ég sótti á meðan
hann varðist," sagöi Weaver.
Stig dómaranna tveggja voru
hnífjöfn: sá fyrsti dæmdi 144:143
fyrir Weaver, annar 144:143 fyrir
Dokes, en sá þriöji kom mjög á
óvart — hann gaf Dokes 145 stig
— Weaver 142. Þar meö varö
sigurinn Dokes — nokkuö sem
margir voru ósáttir viö.
• Tim Witherspoon kemur miklu hægri handar höggi á heimsmeistarann Larry Holmes til vinstri.
Holmes átti í vök aö verjast í sjöundu lotu, en þá var myndin tekin. Witherspoon þótti standa sig mjög
vel í keppninni og sigur Holmes á stigum var umdeildur og mjög naumur. Keppnin fór fram í Las
Vegas.
• Wolfgang Felix Magath besti maöurinn í leiknum í gærkvöldi skorar eina mark leiksins meö þrumufleyg, sem Dino Zoff róöi ekkert við.
Þaö eru Roberto Bettega til vinstri og Marco Tardelli (nr. 8) sem reyna að stööva skot hans. .
— fyrsti sigur liðsins í Evrópukeppni meistaraliða
vinklinum i horninu fjær. Óverjandi
fyrir Zoff.
Það sem eftir lifði fyrri hálfleiksins
voru leikmenn Hamburger miklu betri
— og réðu Þjóðverjarnir algerlega
hraðanum í leiknum.
Italirnir náðu sér alls ekki á strik í
fyrri hálfleiknum og menn eins og
Tardelli, sem slógu í gegn í heims-
meistarakeppninni, beinlínis slakir.
Þeir björguðu einu sinni á linu — frá
Manfred Kaltz. Leikmenn Hamburger
nýttu breidd vallarins mjög vel og
gerðu oft harða hrið að ítalska mark-
inu.
Annars var það Roberto Bettega
sem fékk fyrsta færi leiksins. Strax á
7. min. átti hann hörkuskalla á markiö
eftir sendingu Tardelli, en Stein varöi
frábærlega vel. Þaö geröi hann reynd-
ar aftur i hálfleiknum er Cabrini skaut
utan úr teig.
I síðari hálfleiknum sóttu italirnir
mun meira — í upphafi hans tóku þeir
öll völd á vellinum. Þeir vildu víta-
spyrnu á 73. mín. er Stein ýtti Platini
frá er hann hafði vippaö yfir hann og
ætlaði að hlaupa áfram, en ekkert var
dæmt. Þjóðverjarnir fengu einnig sín
færi — Magath lyfti t.d. rétt yfir mark-
ið i dauöafæri, og Groh skaut beint á
Zoff er hann komst á auðan sjó inn á
teig.
Sigur Hamburger var mjög sann-
gjarn — liðið lék betur þegar á heild-
ina er litiö — leikmenn liðsins unnu
mun betur en ítalska liðið.
„VIO LÉKUM frábæra knattspyrnu — bæöi þegar við sóttum og þegar við
þurftum aö verjast,“ sagði Ernst Happell, þjálfari þýska liðsins Hamburger
SV, sem í gærkvöldi tryggói sér sigur í Evrópukeppni meistaraliða í
knattspyrnu er þaö sigraöi Juventus frá Ítalíu 1:0 á Ólympíuleikvanginum í
Aþenu. „Við náðum að leika með fullri einbeitingu allan leikinn og allt sem
viö ætluöum okkur tókst. Ég sá ekki vel atvikið þegar ftalirnir vildu fá
vítaspyrnu — þegar Stein átti aö hafa brotiö á Platini — það var skyggt á
útsýnið fyrir mér þá,“ sagói Happell. Þegar Happell var spuróur um dóm-
gæsluna sagöi hann að rúmenski dómarinn hefði staðið sig mjög vel.
„Dómari er alltaf eins og guð, og ég trúi á guö.“
Giovanni Trappatoni, þjálfari Ju-
ventus, sagðist heldur ekki hafa séð
atvikiö nógu vel þegar leikmenn hans
vildu vítaspyrnu í seinni hálfleiknum.
„Það sló okkur alveg út af laginu að fá
markið svona snemma á okkur — og
við náðum okkur ekki nógu fljott á
strik eftir þaö. „Hamburger sýndi allar
sínar bestu hliöar — og við vissum vel
við hverju mátti búast við af þeim —
en þrátt fyrir það tókst okkur ekki aö
vinna.“
Trappatoni var spurður hvers
vegna hann hefði tekið Paolo Rossi út
af í síðari hálfleiknum. „Ditmar Jakobs
hafði hann alveg í vasanum, þannig að
Rossi komst aldrei i færi. Ég hélt að
Domenico Marocchino gæti frekar
skapað usla í þýsku vörninni. Þá var
Felix Magath alltof oft óvaldaður á
miöjunni á mikilvægum augnablikum
— og markið sem hann geröi var stór-
glæsilegt og ég held aö skotiö hafi
verið algerlega óverjandi.“ Síðan
bætti hann við: „Hamburger sigraði
— þannig aö þeir voru betra liðið.“
Eins og fram kom var það Felix
Magath sem skoraði sigurmarkiö. Það
kom strax á áttundu minútu og ekki
furða þó það hafi slegiö leikmenn Ju-
ventus út af laginu. Þvílíkt mark. Þau
gerast varla fallegri. Hann fókk bolt-
ann vinstra megin á vellinum — plat-
aöi Bettega og óð inn að teig. Þegar
þangaö kom lét hann vaða á markið
og boltinn söng í netinu alveg efst í
Sanngjarn sigur Hamburger
Ármann stofnar
íþróttaskóla
Glímufélagið Ármann hefur
stofnað íþróttaskóla, sem félagið
starfrækir í íþrótta- og félags-
miöstöö sinni viö Sigtún.
Sumarmánuðina, júní og júlí,
efnir skólinn tl námskeiöa í fim-
leikum, leikfimi, glímu, frjáls-
íþróttum, knattleikjum og leikjum
fyrir 8—14 ára iökendur.
Kennarar veröa: Ásta ísberg,
Erna Jónsdóttir, Guöni Sigfús-
son, Þór Albertsson og Þórir
Kjartansson.
Hvert námskeið varir í hálfan
mánuð, sem þátttakendur geta
svo framlengt. Nemendur velja um
tímana kl. 9—12 og 13—16 þ.e.
þrjár klst. daglega. Hvert nám-
skeiö kostar kr. 500 - Systkini
njóta afsláttar.
Innritun fer fram daglega frá og
með þriðjudeginum 24. maí til
föstudagsins 27. mai kl. 10.30—12
og kl. 14—16 í Ármannshúsinu viö
Sigtún eða í síma 38140.
Með þessari starfsemi vill félag-
ið veita börnum og unglingum,
sem eigi komast i sumardvöl utan-
bæjar eða í vinnu í borginni holl
viðfangsefni í góöum íþrótta-
mannvirkjum hjá valinkunnum
íþróttakennurum.
Skoðunarferðir eru fyrirhugað-
ar.
Félagiö álítur að eigi sé nauö-
synlegt að starfrækja sumarbúðir
utan borgarinnar, þar sem innan
hennar eru ágæt íþróttamannvirki
sem búa að ýmsu, sem er vert að
skoða og læra um.