Morgunblaðið - 18.09.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.09.1983, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1983 I>að er fólgin í því nokkur kaldhæðni, að menn skuli þá fyrst minnast margra verð- leika Begins, þegar hann yf- irgefur ókyrrt stjórnmálasvið ísraels. Og þó svo að Shamir, væntanlegur eftirmaður hans, muni fylgja ámóta stefnu og þó svo að öllum hafi verið Ijóst lengi, að Beg- in hlaut að víkja, er samt sem áður staðan sú að ísrael- ar telja hann hæfastan leið- toga sinna. Þó skilur hann við landið á barmi efnahagslegs hruns, sundr- að í félagslegu tilliti, friðarsamn- ingurinn við Egypta sem um hríð aflaði honum mikilla vinsælda er nú nafnið eitt. Og hann hleypti af stað styrjöld sem að vísu varð til að uppræta iðju Palestínuskæru- liða í Suður-Líbanon, en varð síð- an, þegar ísraelar héldu áfram stríðinu, eina styrjöldin sem ísra- elar hafa ekki verið einhuga um, að hafi verið háð til að berjast fyrir tilveru sinni. Begin var mælskumaður svo að af bar. Þegar Sadat Egyptalands- forseti og hann fluttu ræður sínar í Knesset í nóvember 1977 talaði Begin blaðalaust að venju, af inn- lifun og þrótti sem honum var lag- ið þá og aflaði honum virðingar og aðdáunar. En frá því hann leiddi Likud til sigurs í maí 1977 var hann umdeildur. Vinir hans dáðu hann og kölluðu hann „konung", andstæðingar hans „elskuðu að hata hann“ eins og það mætti orða á slæmu máli. Frá því hann missti Alizu konu sína í fyrra og nánasta sam- starfsmann sinn, Simca Ehrlich varaforsætisráðherra, var sýnt að hann var bugaður maður. Þó að Meö Sadat í Jerúsalem 20. nóvember 1977. hann tryði án efa að „aðgerðirnar í Líbanon" eins og innrásin er kölluð í ísrael, tók hann nærri sér gagnrýni sem að honum safnaðist og hann harmaði af einlægni mannfall ísraela í þeim átökum. Eftir fjöldamorðin í flótta- mannabúðunum við Beirut og eft- irleik þeirra varð hann aldrei samur. Skýrsla rannsóknamefnd- arinnar leiddi í ljós óafsakanlegt ábyrgðarleysi og næsta óskiljan- lega linkind, en svo virðist sem Begin hafi í sjálfu sér ekki tekið þá gagnrýni jafn nærri sér og ásakanir um að hann bæri ábyrgð á dauða hundruða ungra ísraela. Eins og áður sagði komst Men- achem Begin til valda í kosningun- um 1977. Hann hafði þá setið á þingi fyrir Herut-flokkinn, sem hann var einn stofnandi að, í næstum þrjátíu ár. Margir töldu að Verkamannaflokkurinn myndi verða við stjórnvölinn um ókomin ár, en Begin gerði sér grein fyrir vaxandi ólgu innan Verkamanna- flokksins hjá sephardim-gyðing- um og til þeirra höfðaði hann óspart í kosningabaráttunni 1977 og með þeim afleiðingum, að hann varð forsætisráðherra þá um vor- ið. Begin var þá ekki að tvínóna við að gera þær breytingar, sem hann hafði talað um í kosningabarátt- unni, hann leyfði stórauknar land- nemabyggðir Gyðinga á vestur- bakka Jórdanár, Aröbum þar til mestu skapraunar, hann gerði Moshe Dayan fyrrverandi áhrifa- mann innan Verkamannaflokks- ins að utanríkisráðherra og af því verður meðal annars ráðið að ástæðan fyrir því að ísraelar hafa enn ekki innlimað vesturbakkann sé loforð þess efnis sem hann gaf Dayan. í nóvember lýsti Sadat Eg- yptalandsforseti því yfir að hann myndi fara hvert á land sem er ef það gæti orðið friði í þessum heimshluta til framdráttar. — Jafnýel í Knesset. Begin henti orð Sadats á lofti og áður en vika var liðin var heimsóknin fastmælum Með Elizu konu sinni 1939. bundin. Ýmsir lágu Begin á hálsi fyrir fljótfærni og sögðu að kæmi Sadat yrði það ekki af heilindum gert. En Begin sat að venju við sinn keip og þessir dagar Sadats í Jerúsalem breyttu sögunni — og breyttu ástandinu í þessum heimshluta og vöktu með mönnum vonir um frið. Sem að vísu nú virð- ast fjarlægari en áður. Þó svo að fyrsti fundur Sadats og Begins tækist, varð að halda áfram ef takast átti að ryðja úr vegi þeim mörgu hindrunum sem voru fyrir því að samningur yrði gerður milli þjóðanna. Ágreining- ur kom upp meðal Sadats og Beg- ins, ástæðan virðist einfaldlega hafa verið sú, að þeim líkaði ekki hvorum við annan og tortryggni var af beggja hálfu. Ezer Weiz- mann varnarmálaráðherra ísra- els, og Sadat náðu hins vegar betra sambandi sín í millum. Það var að sönnu friðarviðræðunum til framdráttar, en vakti jafnframt reiði Begins og lyktaði því eins og kunnugt er með að Weizman sagði af sér. Menachem Begin fæddist í Bresk-Litovsk í Póllandi í ágúst 1913. Hann ólst upp í Póllandi, nam lög og lauk prófi í þeirri grein. Ungur hreifst hann af kenningum síonismans og barðist óspart fyrir að útbreiða þær með- al pólskra Gyðinga. Á stríðsárun- um var hann handtekinn í ofsókn- um nazista. Hann komst úr búð- unum og til Litháen. Þar hand- tóku Sovétmenn hann og sendu hann til þrælkunarvinnubúða í Síberíu vegna fylgni hans við síon- isma. Honum var veitt sakar- uppgjöf 1942 og komst þá til Pal- estínu. Þangað hafði Áliza kona hans komizt nokkru áður. Foreldr- ar hans létust bæði í útrým- ingarbúðum nazista í Póllandi. Eftir komuna til Palestínu leiddi hann hópinn Irgun Zvai Le- umi, sem hélt uppi baráttu gegn því umboði sem Bretar fóru með f Palestínu á þessum árum. Irgun Olyirpia CPD 3212 Fyrirferðalítil og örugg reiknivél Áreiðanleg og fjölhœf reiknivél sem eyðir ekki borðplássi að óþörfu. Olympia vél sem reikna má með þótt annað bregðist. Leitið nánari upplýsinga. KJARAINI ARMULI 22 - REYKJAVIK - SÍMI 83022 Hvaö er Simichrome H APPICH 1 Simichrome Po Pojishing pjsle Nýtt frábært fægikrem sem hreinsar og fægir alla málma: Gull, silfur, tin, kopar, stál og fl. Ein túpa fyrir allt. Varnarfilma myndast, sem heldur gljáanum lengur. Prófiö Simichrome strax í dag og þiö notiö aldrei annaö. Fæst í flestum verslunum og bensínsölum. B.Ólafsson & Berndsen hf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.